Morgunblaðið - 30.10.2008, Side 44
FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 304. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Bótasjóðir skoðaðir
Þrjú stærstu tryggingafélög
landsins, Sjóvá, Tryggingamiðstöðin
og Vátryggingafélag Íslands, eru nú
til nákvæmrar skoðunar hjá Fjár-
málaeftirlitinu vegna þess að ekki
þykir tryggt að bótasjóðir þeirra
standi jafn traustum fótum og haft
var eftir forstjórum félaganna í
Morgunblaðinu sl. mánudag.
»Forsíða
Innherjaviðskipti skoðuð
Fjármálaeftirlitið, FME, er nú
með til skoðunar hvort innherja-
viðskipti hafi átt sér stað í aðdrag-
anda falls bankanna. Þetta á einnig
við um viðskipti starfsmanna ráðu-
neyta, sem geta búið yfir inn-
herjaupplýsingum. »6
Fjöldauppsagnir
Meira en 450 manns hefur verið
sagt upp í byggingariðnaðinum í vik-
unni og búast má við fleiri upp-
sögnum áður en mánuðurinn er úti. Í
gær var meðal annars sagt upp um
160 manns hjá Byggingafélagi Gylfa
og Gunnars og um 70 manns hjá
Formaco. »2
Mikið tap lífeyrissjóða
Óttast er að eignarýrnun lífeyr-
issjóðanna vegna bankahrunsins
geti orðið nálægt 80 milljörðum
króna en engin skerðing verður á líf-
eyri á árinu. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Þörf áminning
Forystugreinar: Sparað til öryggis
Lífshættulegt fikt
Ljósvaki: Fjölhæfur útvarpsnýliði
UMRÆÐAN»
Uppgjör við Litla-Bretland …
Sökudólgurinn er Alþingi
Eru Íslendingar vitrir?
Andóf eða einelti?
!3 3! 3 3" "3"
4
%5*'
/ *,
%
6#
#**&* /* !3!
3! 3 3! "3 3!
3!
. 7 1 '
!3 3 3 3!!
"3 89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'7*7<D@;
@9<'7*7<D@;
'E@'7*7<D@;
'2=''@&*F<;@7=
G;A;@'7>*G?@
'8<
?2<;
6?@6='2,'=>;:;
Heitast 1 °C | Kaldast -10 °C
N og NV 3-10 m/s,
hvassast við a-strönd-
ina. Skýjað að mestu
norðan til en annars
víða bjartviðri. » 10
Birgi Erni Stein-
arssyni finnst krútt-
in hafa óþarfa
áhyggjur og veltir
fyrir sér af hverju
þau kvarta. »38
AF LISTUM»
Sært lista-
mannastolt
LEIKHÚS»
Stefán kynnir töfraheim
brúðuleikhússins. »39
Gríðarleg viðbrögð
hafa orðið við grein
Bjarkar Guðmunds-
dóttur í The Times
þar sem hún fjallar
um Ísland. »36
TÓNLIST»
Björk skrif-
ar í Times
FÓLK»
Pitt hyggst ekki giftast
barnsmóður sinni. »41
FÓLK»
Bond-stúlkan er tvífrá-
skilin. »42
Menning
VEÐUR»
1. Þjóðin í gíslingu Sjálfstæðisflokks
2. Starfsmannafundur hjá BYGG
3. Símahrekkur dregur dilk á e. sér
4. Svört mánaðamót
Íslenska krónan styrktist um 0,8%
Íslensku óperunni
Janis
Joplin
ÞRÁTT fyrir
kreppu seldu all-
ar plötubúðir í
miðbænum meira
í október en á
sama tíma í fyrra.
Talsmenn búð-
anna segja helstu
ástæður aukinnar
sölu vera tvær:
Að erlendir
ferðamenn hafi
nú fleiri krónur á milli handanna en
áður vegna falls krónunnar og að ís-
lensk plötuútgáfa sé í blóma. Sölu-
hæstu plöturnar í öllum búðum eru
nýútkomnar íslenskar plötur.
Verslunarstjóri Skífunnar spáir
því að flestir kaupi íslenskar bækur
og geisladiska í jólapakkana í
ár. | 41
Aukin plötu-
sala í kreppu
Plötur Rokseljast
þessa dagana.
ELLEFU skotvopnum hefur verið
stolið að undanförnu í fjórum að-
skildum málum sem eru í rannsókn
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Þegar hafa þrír menn verið
handteknir vegna eins málsins og
tvö skotvopn endurheimt en þeim
hafði verið stolið í síðustu viku.
Í öðru máli er lýst eftir karli og
konu vegna þjófnaðar á Mauser-riffli
úr íbúð í Mosfellsbæ. Segir lögreglan
að ekki hafi verið tekin skot með
rifflinum.
Þá voru tekin riffill og haglabyssa
úr bílskúr á höfuðborgarsvæðinu
fyrir nokkru og er sá þjófnaður í
rannsókn.
Á mánudag voru sex skotvopn tek-
in úr íbúð í Breiðholti en þar hafði
þjófur fundið lykil að byssuskáp og
stolið vopnunum. Um er að ræða
fimm haglabyssur og riffil.
Að sögn lögreglunnar er undirrót
skotvopnaþjófnaða vanalega sú að
þjófarnir reyna að skipta gripunum
fyrir fíkniefni. Slæmt sé þó til þess
að vita að vopnin séu í höndunum á
óþekktum aðilum. orsi@mbl.is
Ellefu
skotvopn-
um stolið
Morgunblaðið/Þorkell
FJÖLDI fólks lagði leið sína niður í Aðalstræti 6 í gær.
Þar bauð viðbragðshópurinn In defence upp á símaver
með ókeypis símtölum til útlanda. Tilgangurinn er að
auðvelda Íslendingum að upplýsa vini og kunningja er-
lendis um stöðu Íslands og vekja athygli á herferðinni
„Íslendingar eru ekki hryðjuverkamenn“, sem hópurinn
stendur fyrir. Herferðin hófst eftir að bresk yfirvöld
beittu hryðjuverkalöggjöf gegn Landsbankanum.
„Ég er sko enginn hryðjuverkamaður“
Íslendingar taka upp hanskann fyrir land og þjóð
Morgunblaðið/Ómar
FYRIRSÆTAN Ásdís Rán Gunn-
arsdóttir prýðir forsíðu búlgarska
glanstímaritsins Max sem kom út í
gær.
Ásdís flutti nýlega með eigin-
manni sínum, knattspyrnukapp-
anum Garðari Gunnlaugssyni, til
Búlgaríu þar sem hann gekk til liðs
við fótboltaliðið CSKA Sofia.
Inni í blaðinu er líka viðtal við Ás-
dísi sem blaðamaðurinn Pavel Kolev
tók. Hann segir engan vafa leika á
því að Ásdís sé mun frægari í Búlg-
aríu en eiginmaður hennar.
„Allavega enn sem komið er, en
það er kannski vegna þess að Garð-
ar hefur ekki enn spilað fyrir CSKA
Sofia, þannig að það vita ekki allir
hver hann er,“ segir Kolev.
Eiginkonurnar vinsælar
Það mun þó ekki vera nýmæli að
eiginkonur knattspyrnumanna kom-
ist í fréttirnar í Búlgaríu, þær eru
mjög vinsælar í landinu og þá sér-
staklega eiginkonur leikmanna
CSKA Sofia.
Með því að prýða forsíðu Max
fetar Ásdís í fótspor ekki minni
kvenmanna en Charlize Theron,
Monicu Bellucci og Gisele Bünd-
chen.
Dagurinn í gær var annars stór
hjá Ásdísi, því það var ekki nóg með
að hún prýddi forsíðu Max, heldur
kom hún fram í einum vinsælasta
sjónvarpsþættinum í Búlgaríu.
„Hann er sýndur á stærstu sjón-
varpsstöðinni í Búlgaríu þannig að
það má alveg segja að það gangi allt
í haginn hjá Ásdísi um þessar mund-
ir,“ segir Kolev. jbk@mbl.is | 36
Prýðir forsíðu Max
Ásdís Rán er í forsíðuviðtali í búlgörsku tímariti og kom
einnig fram í einum vinsælasta sjónvarpsþætti landsins
Morgunblaðið/Valdís Thor
Farsæl Ásdís Rán Gunnarsdóttir
gerir það gott í Búlgaríu.
Í HNOTSKURN
»Fyrir utan Max sóttu fimmeða sex önnur búlgörsk
tímarit eftir því að taka for-
síðuviðtal við Ásdísi.
» Hægt er að fylgjast meðlífi og fyrirsætuferli Ásdís-
ar Ránar á heimasíðunum:
www.asdisran.com og
www.asdisran.blog.is.