Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 13
Fréttir 13ALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008
Allir
krakkar sem
mæta fá fría
jólahúfu.
Erum staðsett í sama húsi og Office1 Skeifunni 17
Kíkið við á alvöru jólamarkað. Jólapappír, jólakort, jólagjafir, seríur og allt sem tengist jólunum á ótrúlegu verði.
„Þjóðin sem átti
fyrsta kven-
forsetann á
heimsvísu og
bauð fram fyrsta
kvennalistann til
þings á nú að
sýna umheim-
inum að við höf-
um kjark og þor
til að horfast í augu við mistök og
gjaldþrot karlakapítalismans og
setja konur til verka.“
„Afborganir á
lánunum hækka,
höfuðstóll lán-
anna hækkar en
þær eignir, sem
fólkið á, þær
rýrna í verði.
Þannig að í stað-
inn fyrir það að
það sé stuðlað að
því að þjóðin hverfi frá fátækt til
bjargálan þá er þjóðin að fara núna
frá bjargálnum til fátæktar.“
„Og á hverjum
bitnar þessi stýri-
vaxtahækkun?
Jú, á heimilum
landsmanna, á
fólki sem missir
vinnuna í kjölfar
þess að fyrirtæk-
in í landinu eru
komin í slíkan
vanda að jafnvel vel rekin fyrirtæki
geta lent í miklum greiðsluerfið-
leikum.“
„Skattahækk-
anir, gjald-
skrárhækkanir
eru ekki til þess
að aðstoða fjöl-
skyldur og heim-
ilin í landinu. En
grunnatriði er að
aðstoða fólk, að-
stoða fjölskyldur
við að halda hús-
unum sínum, heimilunum sínum,
hvernig svo sem til þeirra lána var
stofnað.“
„Við settum
hér neyðarlög
fyrir mánuði, 6.
október. Fyrsta
frumvarpið frá
ríkisstjórninni
eftir að neyðar-
lögin voru sett,
sem varða þann
vanda sem við er-
um í núna, er að
líta dagsins ljós í dag. Þetta upplifir
fólk í bráðavanda sem aðgerðaleysi,
sem leti, sljóleika, skilningsleysi á
aðstæðum fólks.“
Sagt í
umræðunum
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
Jón
Magnússon
Höskuldur
Þórhallsson
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir
Kolbrún
Halldórsdóttir
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
„VIÐ munum ekki lága kúga okkur í því máli og við mun-
um ekki láta þann svarta blett sem þessir Icesave-
reikningar eru verða okkur til trafala,“ sagði Geir H.
Haarde forsætisráðherra í utandagskrárumræðum á Al-
þingi í gær og vísaði til þess sum Evrópuríki hafi gefið í
skyn að þau samþykki ekki lán til Íslendinga innan
stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) nema að sátt
náist í deilum við Hollendinga og Breta vegna Icesave-
reikninganna. Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mun
ekki taka aðstoðarbeiðni Íslendinga fyrir í dag eins og til
stóð. Því hefur verið frestað fram á mánudag.
Máttlaus björgunarleiðangur
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, var
málshefjandi í umræðunum um stöðu heimilanna og
þótti lítið til „björgunarleiðangurs Geirs H. Haarde“
koma. Hann fælist í stýrivaxtahækkun, að setja krónuna
á flot og í að frysta afborgarnir af lánum, frekar en að
lækka vextina, sem myndi hjálpa til frambúðar. „Það er
þetta sem á sínum tíma var kallað að lengja í henging-
arólinni,“ sagði Ögmundur og vakti athygli á því að
26,5% dráttarvextir þýddu að af milljón króna láni þyrfti
að greiða 265 þúsund krónur á ári í vexti. „Hvaða afleið-
ingar halda menn að það hafi í för með sér fyrir skuldsett
fyrirtæki eða heimilin?“
Geir var hins vegar ekki á sama máli og Ögmundur og
sagði ríkisstjórnina önnum kafna við björgunarstörf.
Nefndi hann m.a. möguleika Íbúðalánasjóðs til að rýmka
heimildir gagnvart fólki í greiðsluerfiðleikum, aukna
þjónustu Ráðgjafarstofu heimilanna, ráðstafanir til að
gera fólk kleift að leigja íbúðir sem það hefði misst,
breytingar á reglum um námslán og aukið námsframboð
í háskólum og framhaldsskólum.
Beini kröftunum í jákvæðar áttir
„Flestir finna á eigin skinni fyrir fjárhagslegu tjóni og
margir bera kvíðboga fyrir nánustu framtíð,“ sagði Geir
og bætti við að erfðir tímar væru framundan. „En ég vil
biðja landsmenn að beina kröftum sínum í jákvæðari átt-
ir og ég fullvissa fólk um að ríkisstjórnin mun gera allt
sem í hennar valdi stendur til að lágmarka tjón þjóð-
arinnar vegna bankahrunsins og aðstoða heimilin í land-
inu til að komast í gegnum þá brimskafla sem þau þurfa
að fara í gegnum,“ sagði Geir.
Morgunblaðið/Kristinn
Vilja svör Alþingi veit enn ekkert um skilmála í samningi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Látum ekki kúga okkur,
segir Geir Haarde
Lengt í hengingarólinni með því að frysta afborgarnir
af lánum frekar en að lækka vexti, að mati Ögmundar J.
FLEIRI hópar samfélagsins munu þurfa að horfast í
augu við efnahagserfiðleika en áður hefur verið. Þetta
kom fram í máli Björgvins G. Sigurðssonar við-
skiptaráðherra á Alþingi í gær. „Það er sem sagt yngra
fólk. Í mörgum tilfellum fólk sem er með langa skóla-
göngu að baki og hefur haft mjög góða stöðu á atvinnu-
markaði,“ sagði Björgvin og bætti við að þetta fólk
væri oft með miklar fjárskuldbindingar á bakinu, bæði
í erlendum lánum og innlendum. Koma þyrfti sér-
staklega til móts við þennan hóp og bjóða upp á úrræði
fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Stjórnum viðskipta-
bankanna hefði þegar verið falið það verkefni.
Ungt fólk í erfiðleikum
Bankastjórnir fæðast
Varanlegar bankastjórnir verða
valdar í dag, að því er fram kom á Al-
þingi í gær. Árni M. Mathiesen, fjár-
málaráðherra, skipar í stjórnirnar að
höfðu samráði alla stjórnmála-
flokka. Árni leggur áherslu á að valið
verði fólk sem hefur reynslu af
bankastörfum eða úr viðskiptalíf-
inu. Hins vegar þrengi möguleikana
að það sé oft sama fólk og kom ná-
lægt gömlu bönkunum.
60-80% gjaldþrota
Viðskiptanefnd fundaði í gær með
gestum um bráðavanda atvinnulífs-
ins og segir Ágúst Ólafur Ágústs-
son, formaður
nefndarinnar, að-
ila vinnumark-
aðarins hafa ver-
ið frekar
svartsýna. Sam-
tök iðnaðarins
teldu að 60-80%
allra fyrirtækja
væru tæknilega
gjaldþrota.
„Stærsta verk-
efnið er að koma
gjaldeyrisviðskiptum í lag þannig að
verð komist á krónuna,“ segir Ágúst
Ólafur og bætir við að bæði Samtök
atvinnulífsins og Viðskiptaráð Ís-
lands sjái aðeins tvo kosti í stöð-
unni: Að halda í krónuna eða sækja
um aðild að Evrópusambandinu.
Eitt gangi yfir alla
Félagsmálaráðherra skorar á við-
skiptabankana að fara að sömu
reglum og Íbúðalánasjóður þegar
kemur að húsnæðislánum. Sagði
ráðherra á Al-
þingi í gær að sér
væri fyrirmunað
að skilja hvers
vegna þeir gætu
ekki gert það. Að
öðrum kosti yrði
að athuga hvort
Íbúðalánasjóður
geti tekið yfir lán
bankanna. Birkir
J. Jónsson var
málshefjandi í ut-
andagskrárumræðu um stöðu fast-
eignaeigenda og gerði athugasemd
við það að útbúnar væru sérreglur
utan um þá sem eru með húsnæð-
islán hjá Íbúðalánasjóði þannig að
þeir geti haldið húsnæði sínu á
sama tíma og fólk með lán hjá rík-
isbönkunum sé borið út af heimilum
sínum.
Eftirlaunin burt
Þingflokkur VG hefur lagt fram frum-
varp þess efnis að eftirlaunalögin
umdeildu verði felld úr gildi. Segja
þingmenn flokksins þolinmæði sína
á þrotum. Ríkisstjórnin hafi nú haft
hálft annað ár en ekkert gert í mál-
inu. VG leggja einnig til að launa-
greiðslur til æðstu ráðamanna sem
eru umfram 450 þúsund skerðist um
20%. halla@mbl.is
ÞETTA HELST …
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Jóhanna
Sigurðardóttir