Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 38

Morgunblaðið - 07.11.2008, Side 38
Bókajól Forleggjarar vonast til að sem flestir kaupi bækur fyrir jólin. VERÐ á bókum frá Forlaginu helst nær óbreytt frá því í fyrra þrátt fyr- ir verðbólgu. „Við tókum bara pólitíska ákvörð- un um það að taka á okkur þær kostnaðarhækkanir sem hafa orðið á árinu að langmestu leyti,“ segir Eg- ill Örn Jóhannsson, forstjóri For- lagsins. „Verð bóka fyrir þessi jól verður það sama eða nánast það sama og í fyrra. Það mætti því segja að það sé raunlækkun milli ára. Við höfum tröllatrú á bókinni og vonum að Íslendingar muni eftir sem áður kaupa bækur til gjafa um jólin.“ Arnaldur hækkar örlítið Miðað er við að engin skáldsaga muni kosta meira en 5000 krónur út úr búð. „Í mörgum tilfellum stendur verð bóka í stað á milli ára. Á þeim bókum sem hækka munar ekki meira en fimm til tíu prósentum á milli ára. Sem dæmi má nefna að Arnaldur Indriðason hækkar um á milli tvö og þrjú prósent frá því í fyrra.“ Egill segir að ef öllum kostn- aðarhækkunum hefði verið velt áfram út í verðlagið, þá hefði þurft að hækka verð um að minnsta kosti fjórðung milli ára. Ný íslensk skáld- saga hefði þá kostað ríflega 6000 krónur. Bækurnar hækka lítið 38 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 VÍKINGUR Heiðar Ólafsson leikur píanókons- ert nr. 3 eftir Bartók á tón- leikum Sinfón- íuhljómsveitar Ís- lands 5. desember. Fyrr á árinu vann Vík- ingur ein- leikarakeppni pí- anónemenda við Juilliard tónlistarháskólann þar sem hann lék sama konsert. Upphaflega áttu Inessa Galante og Juha Uusitalo að koma fram á tónleikunum í boði Stoða, en vegna breyttra aðstæðna þar og geng- isbreytinga þurfti að breyta efnis- skrá og flytjendum á síðustu stundu. Vonast er til þess að söngvararnir komi fram með hljómsveitinni á næsta eða þar næsta starfsári. „Stoðir hafa kostað listamennina og við höfum valið listamenn í dýrari kantinum, Kiri Te Kanawa kom til dæmis í fyrra,“ segir Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri Sinfón- íuhljómsveitarinnar. „Nú eru Stoðir í greiðslustöðvun og treysta sér ekki til þess að vera með.“ Hann segist þó mjög ánægður með að fá Víking í staðinn. „Þetta er eiginlega dæmi um það hvað við höfum verið heppin í þessum þrengingum, þótt þær hafi komið illa við okkur. Okkur hefur tekist að snúa því sem hefur dunið á okkur upp í eitthvað jákvætt.“ Þeir sem höfðu þegar keypt miða á áður auglýsta dagskrá geta fengið þá endurgreidda í miðasölu. Galante og Uusitalo koma ekki Árni Heimir Ingólfsson SAFNAHELGI á Suðurlandi hefst í dag og stendur fram á sunnudag. Þá munu söfn um allt Suðurland og í Vest- mannaeyjum bjóða upp á fjöl- breytta dagskrá. En auk hins sögulega og menningarlega hluta verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu. Það eru Safnaklasi Suðurlands og Matarkista Suð- urlands sem standa að helginni. Meðal fjölmargra dagskráratriða má nefna sýningar, tónleika, fyrirlestra, upplestra og leiðsagnir. Svo verður víða hægt að smakka á gömlum og nýjum réttum. Dagskráin er birt í heild á vefnum www.sofnasudurlandi.is. Fræði Söfn og hefðir í matargerðarlist Húsið á Eyrarbakka. TÓNLISTARFÉLAG Ak- ureyrar efnir til hádegistón- leika í dag í Ketilhúsinu. Tónleikarnir eru í hádeg- istónleikaröð félagsins sem kölluð er Föstudagsfreistingar. Að þessu sinni koma fram þau Eydís Úlfarsdóttir sópran, Helga Ágústsdóttir sellóleikari og Aladár Rácz píanóleikari. Þau flytja verkið Zwei Ge- sänge op. 91 eftir Johannes Brahms. Verkið samdi Brahms um miðja 19. öld og færði vinahjónum sínum handrit að því að gjöf þegar þau höfðu eignast sitt fyrsta barn. Tónleikarnir hefjast kl. 12:15 og aðgangseyrir er 2000 kr., eldri borgarar borga 1500 kr. Tónlist Brahms fluttur á hádegistónleikum Eydís Úlfarsdóttir sópran. ÞAÐ verður vegleg opnun í Galleríi Ormi í Sögusetrinu á Hvolsvelli á morgun kl.14. Þar verður opnuð sýning með átján vatnslitamyndum sem Sigurjón Jóhannsson, listmál- ari og leikmyndahönnuður, hefur unnið fyrir Sögusetrið af helstu atburðum og per- sónum Njáls sögu. Jafnframt kemur út vegleg syrpa af póst- kortum með myndum Sig- urjóns. Einnig verða endurbætur á Kaupfélags- safninu kynntar en það hefur nú verið lagfært nokkuð, m.a. komið fyrir hljóðleiðsögn. Sögusetrið er á Hlíðarvegi 14 og er heimasíða þess: www.njala.is. Myndlist Vatnslitamyndir úr Njáls sögu Sigurjón Jóhannsson Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Í HÚSINU á Seljavegi 32 vestur í bæ, sem áður hýsti Landhelgisgæsl- una, eru vinnustofur um 50 myndlist- armanna. Á morgun, laugardag, standa listamennirnir fyrir opnu húsi frá klukkan 13 til 15. Gestum gefst þá kostur á að skoða vinnustofurnar en einnig að taka þátt í því sem þeir kalla A-5000 - og eignast myndverk fyrir lítið fé. A-5000 er sameiginlegt verkefni allra þeirra listamanna sem leigja vinnustofur í húsinu. Hver leggur til að minnsta kosti eitt verk í hinni stöðluðu stærð A-5; sum eru unnin sem fjölfeldi í allt að fimm eintökum. Verkin verða sýnd í sameiginlegu rými á jarðhæðinni, en gestum býðst að kaupa verkin á verði sem þau segja „sannkallað kreppuverð“ eða 5.000 krónur. Myndverkin eru ein- göngu merkt á bakhliðinni þannig að kaupendur vita ekki eftir hvern þau eru fyrr en þeir fá verkin í hend- urnar. „Hér í húsinu er fólk sem vinnur í alla mögulega miðla,“ segir einn lista- mannanna sem leigja vinnustofu í húsinu, Þórunn Hjartardóttir. „Hér eru málarar, grafíklistamenn, leik- mynda- og fatahönnuðir, perform- anslistamenn, vídeólistamenn, leir- listamenn. Þetta er fjölbreytilegur hópur á fjölbreytilegum aldri.“ Þórunn segir A-5000 gefa gestum tækifæri til að eignast ódýr en vönd- uð myndverk – sem geta verið kjörin til jólagjafa – og kynnast um leið því sem verið er að gera í húsinu. Fer í að lækka leiguna „Við verðum með opið hús en stöndum um leið í þessari óvenjulegu fjáröflun. Okkur þótt hugmyndin góð, að verkin væru í ákveðinni stærð og að fólk vissi ekkert eftir hvern þau eru. Andvirði þeirra fer síðan beint í að lækka leiguna á húsinu.“ Myndlistarmennirnir hafa greini- lega áhyggjur af ástandinu og eins og aðrir sem þurfa að standa skil á vísi- tölutengdum greiðslum, finna þeir vel fyrir hækkunum, að viðbættu því að Landsbankinn greiðir leiguna ekki lengur niður. „Uppsagnir á vinnu- stofum byrjuðu strax um síðustu mánaðamót,“ segir einn listamann- anna. Meðal leigjendanna eru Finnur Arnar Arnarson, Katrín Elvars- dóttir, Steingrímur Eyfjörð, Þór Vig- fússon, Hulda Stefánsdóttir, Ragnar Kjartansson, Harpa Árnadóttir og Sigurjón Jóhannsson. Myndlistarmenn sem leigja á Seljavegi 32 opna húsið og selja verk á 5.000 krónur Listaverkin á kreppuverði Morgunblaðið/Einar Falur Eftir hvern? Nokkrir listamannanna með verk í A-5 stærð sem verða til sölu á 5000 kr. Enginn með verk eftir sig. SIGURÐUR Pálsson ljóð- og leikskáld var í gær sæmdur heiðursorðu franska ríkisins, Chevalier de l’Orde du Mérite, við athöfn í franska sendi- ráðinu. Sigurður veitti orðunni viðtöku úr hendi franska sendiherrans, Oliviers Mauvisseau. Með þessum hætti vildi franska ríkið þakka Sigurði ríkulegt og mikilvægt framlag hans til kynningar franskrar menningar á Íslandi. Hann hefur þýtt yfir tuttugu verk úr frönsku: skáldsög- ur, leikrit, ljóð og ritgerðir. Þá hefur úrval ljóða Sigurðar verið gefið út í franskri þýðingu. Á liðnu ári hlaut Sigurður Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Minnisbók, þar sem hann minnist Frakk- landsára sinna. „Sigurður hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sambandi Frakklands og Íslands á liðnum árum,“ sagði Mauvisseau sendiherra. Sendiherrann talar fyrirtaks íslensku og segist hafa kynnst Sigurði í Frakklandi áður en hann kom til starfa hér, en þá hafði hann þegar kynnst ljóðum hans, í tvítyngdri útgáfu með þýðingum Régis Boyer. „Sigurður þekkir Frakkland og hefur skrifað mikið um það og hefur líka fært franskar bók- menntir til Íslands. Frakkland vill heiðra hann fyrir það starf. Sigurður birtir afar áhugaverða mynd af Frakklandi í skrifum sínum og þýðingar hans eru mjög vandaðar.“ Sendiherrann segir að með orðunni sé Sigurði þakkað fyrir þetta mikla og vandaða starf, sem einskonar menningarlegur sendiherra. Sigurður hefur áður verið heiðraður af franska ríkinu, þegar Jack Lang, menntamálaráðherra Frakka, sæmdi hann riddaraorðu lista og bók- mennta, árið 1990. efi@mbl.is Sigurði Pálssyni veitt heiðursorða Morgunblaðið/Ómar Heiður Sigurður þáði faðmlag frá Mauvisseau þegar hann var kominn með orðuna í barminn. Heiðraður fyrir kynningu á franskri menningu Quantum of Solace er stanslaus keyrsla frá upphafi til enda, spennufíkl- ar þurfa ekki að kvarta 38 » Rekstur hússins við Seljaveg er erfiður um þessar mundir. SÍM, Samband íslenskra myndlist- armanna, leigir húsið af ríkinu fyrir listamennina sem greiða leiguna. „Nú höfum við misst eina styrkt- araðilann sem við höfðum, Lands- bankann,“ segir Áslaug Thorlacius, formaður SÍM en þaðan fékk félag- ið um 1,6 milljónir á ári. „Svo er leigan tengd vísitölunni þannig að við finnum vel fyrir verðbólg- unni. Ég vona að aðrir komi til og styðji okkur, til dæmis húseig- andinn, ríkið. Á opna húsinu vilj- um við sýna fólki hvað fer fram í húsinu. Þetta er aðstaða fyrir mjög stóran hóp og hún er góð. En þetta er dýrt,“ segir Áslaug. Góð aðstaða en leigan dýr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.