Morgunblaðið - 07.11.2008, Qupperneq 15
Fréttir 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
TIL STÓÐ að stjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins tæki umsókn Ísland til
afgreiðslu í þessari viku. Nú liggur
hins vegar ljóst fyrir að það getur
ekki orðið fyrr en eftir helgi þ.e. í
fyrsta lagi á mánudag. Þetta sagði
Geir H. Haarde forsætisráðherra á
blaðamannafundi í stjórnarráðinu
síðdegis í gær. „Ástæðan [fyrir frest-
un] er sú að það er ekki búið að ljúka
þeirri viðbótarfjármögnun sem talað
var um að við þyrftum að klára,“
sagði Geir og vísaði þar til umsókna
Íslands til hinna Norðurlandaþjóð-
anna um fjármögnun í formi lána eða
gjaldeyrisskiptasamninga.
Eins og fram hefur komið hefur
Noregur þegar orðið við ósk Íslend-
inga, en önnur lönd hafa enn sem
komið er ekki afgreitt beiðni Íslend-
inga og á því strandi. Spurður hversu
lengi Íslendingar gætu beðið eftir af-
greiðslu stjórnar Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins sagði Geir erfitt að svara
því nákvæmlega. „Þetta er eitt af
þessum málum þar sem gildir að því
fyrr sem það kemst hreyfing á það
því betra. Við bíðum náttúrlega eftir
því að geta opnað gjaldeyrismark-
aðinn hérna og sú staða er óbreytt
þangað til eitthvað hreyfist í þessu.“
Strauss-Kahn sér enga
meinbugi á samstarfi
Fram hefur komið í umræðunni að
samningur Ísland við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn um lán var sett sem skil-
yrði fyrir því að aðrar þjóðir lánuðu
Íslendingum fjármagn. Spurður
hvort þetta hafi nú snúist við, í ljósi
þess að sjóðurinn bíði eftir samn-
ingum Ísland um fjármögnun frá öðr-
um löndum, rifjaði Geir upp að legið
hefði ljóst fyrir frá upphafi að íslensk
stjórnvöld þyrftu meira fjármagn en
sjóðurinn myndi leggja til. „Pening-
arnir þurfa ekki að vera komnir í
veskið, en það þurfa að liggja fyrir
fyrirheit um að við náum langleiðina
upp í þetta [þ.e. mat sjóðsins um að
Íslendingar þurfi 730 milljarða króna
fjármögnun á næstu tveimur árum]
áður en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
gengur frá sínu máli,“ sagði Geir og
tók fram að í samtali sínu við Dom-
inique Strauss-Kahn, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, fyrr í vikunni hefði
Strauss-Kahn fullyrt við sig að hann
sæi enga meinbugi á samstarfi Ís-
lands og sjóðsins.
Við látum ekki kúga okkur
Spurður hvort eitthvað sé hæft í
þeim vangaveltum að fulltrúar Breta
og Hollendinga muni leggjast gegn
lánveitingum til Ísland, hvort heldur
það væri lán frá Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum eða lán úr neyðarsjóði
Evrópusambandsins, þar til nið-
urstaða hafi náðst í deilum Íslendinga
við Hollendinga og Breta vegna Ice-
save-reikninganna sagðist Geir líta
svo á að umsókn um lán frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum annars vegar og
lausn í Icesave-málinu hins vegar
væru tvö aðskilin mál.
„Það er ljóst að það eru ákveðnar
þjóðir innan Evrópu sem vilja blanda
þessum tveimur málum saman og við
teljum það algjörlega óviðunandi og
ógeðfellt. Og við munum ekki láta
kúga okkur til þess,“ sagði Geir.
Spurður hvort Íslendingar hefðu ein-
hverja tryggingu fyrir því að ekki
væri verið að blanda þessum tveimur
málum saman svaraði Geir því neit-
andi, en benti jafnframt á að þjóð-
irnar hefðu ekki meirihluta í stjórn
sjóðsins. Spurður hvernig samn-
ingum við Breta og Hollendina um
lausn Icecave-málsins miðaði svaraði
Geir því til að þar væru engir sér-
stakir samningar í gangi nú um
stundir.
Afgreitt eftir helgi?
Forsætisráðherra segir afgreiðslu láns og sættir í Icesave-deilu tvö aðskilin mál
Ekki hægt að fjalla um umsókn Íslands fyrr en viðbótarfjármögnun er lokið
Morgunblaðið/Kristinn
Geir H.
Haarde
Dominique
Strauss-Kahn
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Ásmundur Stefánsson og Paul M. Thomsen á
blaðamannafundi sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í síðasta mánuði.
UMSÓKN Íslands til alþjóðagjald-
eyrissjóðsins um lán sem jafn-
gildir 260 milljörðum króna að nú-
virði hefur, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, ekki enn verið
dreift til stjórnarmanna sjóðsins.
Að sögn heimildamanns Morg-
unblaðsins bendir þetta til þess að
umsókn Íslands sé ekki að fullu
frágengin. Telur hann líklegast að
ekki sé hægt að ganga endanlega
frá umsókninni þar sem íslensk
stjórnvöld eigi eftir að ganga frá
lánum frá öðrum ríkjum og þannig
skýra í umsókninni hvernig og
hvaðan stjórnvöld hyggist afla
lánsfjármagns.
Samkvæmt öðrum heimildar-
manni blaðsins hefur stjórn sjóðs-
ins leyfi til þess að stytta af-
greiðslutíma lánsumsóknar niður í
48 klst. frá því að umsókninni er
dreift til stjórnarmanna.
Ekki reyndist unnt að fá upplýs-
ingar um það hjá fjölmiðladeild al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins hvenær
umsókn Íslands myndi vera á dag-
skrá. Hún var ekki komin á dag-
skrá eftir því sem fram kom á dag-
skrárvef sjóðsins.
Umsókn Íslands enn ekki dreift til stjórnar
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
VÖRUKARFAN hækkaði um 5–
13% í öllum verslunarkeðjum að
Hagkaupum og 10–11 undanskildum
á fjögurra vikna tímabili frá septem-
ber til október samkvæmt verðmæl-
ingu verðlagseftirlits ASÍ.
Kannaðar voru verðbreytingar í
Bónus, Krónunni, Nettó, Kaskó,
Hagkaupum, Nóatúni, Samkaupum-
Úrvali, 10–11, 11–11 og Samkaup-
um-Strax. Mest var hækkunin í
Nettó þar sem hún var 12,7% en
minnst var hún í Hagkaupum þar
sem hún var 1,8%.
Segir í upplýsingum frá ASÍ að
miklar hækkanir séu áberandi í
flestum vöruflokkum körfunnar.
Undantekningin er þó mjólkurvörur,
ostar og egg.
ASÍ skiptir niðurstöðum könnun-
arinnar upp eftir lágvöruverðsversl-
unum, stórmörkuðum og klukkubúð-
um og kemur þá í ljós að í fyrst-
nefnda flokknum urðu mestar
hækkanirnar í Nettó eða 12,7% en
minnstar í Krónunni eða 6,5%.
Hækkaði karfan um 7,3% í Bónus og
10,6% í Kaskó.
Í stórmörkuðum urðu mestar
hækkanir í Samkaupum-Úrvali þar
sem vörukarfan hækkaði um 8,1%
milli mánaða. Minnstar voru hækk-
anirnar í Hagkaupum eða 1,8% sem
fyrr segir. Í Nóatúni hækkaði karfan
hins vegar um 4,7%.
Í klukkubúðum urðu mestu hækk-
anirnar í Samkaupum-Strax þar sem
vörukarfan hækkaði um 12,5% en
minnstar hækkanir urðu í 10–11 þar
sem vörukarfan hækkaði um 2,6%
milli mánaða. Karfan hækkaði um
6,7% í 11–11.
Kjöt allt að 29% dýrara
Sé rýnt í einstaka vöruflokka kem-
ur í ljós að afar misjafnt er eftir
verslunum hversu mikið þeir hækka.
Brauð og kornvörur hækka minnst í
Hagkaupum, um 0,1% en mest í
Samkaupum-Strax eða um 14,7%.
Kjötvörur hækka minnst í Bónus eða
um 1,7% en mest í Nettó þar sem
þær hækka um 28,6% milli mánaða.
Mjólkurvörur lækka í Hagkaup-
um og Kaskó eða um 0,8% en hækka
mest í Krónunni eða um 2,2%. Græn-
meti og ávextir lækka sömuleiðis
mest í Hagkaupum eða um 2,5% en
hækka mest í Bónus og þá um 17,2%.
Sætindi lækka einnig í verði í
Hagkaupum eða um 4,7% en hækka
mest í Krónunni, um 17,8%. Í flokkn-
um ýmsar matvörur er hækkunin
minnst í 10–11 þar sem hún 2,3% en
mest í Samkaupum–Úrvali þar sem
hún er 15,6%. Drykkkjarvörur
lækka í verði í Samkaupum-Strax
um 1,6% en hækkka mest í Sam-
kaupum–Úrvali, um 9,6%. Loks
lækka hreinlætis- og snyrtivörur um
2% í Hagkaupum en þær hækka
mest í Bónus, um 16,2%.
Tilboð hafa áhrif
Vert er að geta þess að í verðmæl-
ingum ASÍ er ekki um verðsaman-
burð milli verslana að ræða, heldur
eru verðbreytingar í verslunarkeðj-
unum sjálfum kannaðar. Í vörukörf-
unni eru algengar matartegundir,
s.s. brauðmeti, morgunkorn, pasta,
kjöt, fiskur, grænmeti, ávextir,
pakkavörur, kaffi, gos og safar auk
hreinlætis- og snyrtivara. Eiga þess-
ar vörur að endurspegla almenn inn-
kaup meðalheimilis.
Vogir Hagstofunnar, sem notaðar
eru við útreikning á vísitölu neyslu-
verðs, eru hafðar til hliðsjónar, en
þær segja til um hversu stór hluti
ákveðnir vöruflokkar eru af neyslu-
körfu meðalheimilis.
Þá er bent á að skoðað eru það
verð sem er í gildi í verslununum
hverju sinni og því geta tilboð á ein-
stöku vörum haft áhrif á niðurstöður
könnunarinnar.
Verðmælingar verðlagseftirlits ASÍ milli september og október kynntar í gær
Matvara hækk-
ar mikið í verði
Í HNOTSKURN
»Í könnun verðlagseftirlitsASÍ á hækkunum á mat-
vöru milli annarrar og fjórðu
viku septembermánaðar
mældist mesta hækkunin
2,9%, í Bónus. Hækkanirnar
nú eru því töluvert meiri en
síðast þegar mælt var.
»Frá september í fyrra tilseptember í ár rýrnaði
kaupmáttur launa um 4%.
» Í október mældist tólfmánaða verðbólga 15,9%.
* +# , , - . # * & & ,
0,# ,
1 , 2 & # &
3 )# & " 4#
+ 2 2 ))# &%- 5 # ,
6 + ,
)# 7 & + # ,
8
8
8
!" #!$ % ! #$"!
„ÞAÐ væri full-
komlega óvið-
unandi ef menn
væru að blanda
saman með þess-
um hætti liðsinni
til Íslendinga í
mjög þröngri
stöðu, sem þeir
eiga rétt til miðað
við aðild sína í
sjóðnum, og því
að knýja okkur til þess að ganga að
einhvers konar samningum án þess
að tekið sé tillit til þeirrar lagalegu
stöðu sem við teljum að við höfum,“
segir Össur Skarphéðinsson iðn-
aðarráðherra um að samkomulag
vegna innistæðna í íslenskum bönk-
um í Bretlandi og Hollandi kunni að
vera forsenda láns frá alþjóðagjald-
eyrissjóðnum (IMF).
Aldrei hafi verið sagt opinberlega
að slíkir samningar séu skilyrði fyrir
láni. Össur telur ólíklegt að Bretar
og Hollendingar geti komið í veg
fyrir að Ísland fái lán hjá IMF. „Það
væri í andstöðu við það sem ég tel að
þeir hafi gefið til kynna. Í IMF ræð-
ur einfaldur meirihluti,“ segir Össur.
elva@mbl.is
Komi ekki
í veg fyrir
lán IMF
Össur
Skarphéðinsson
HÆSTIRÉTTUR þyngdi í gær
refsingu yfir fyrrum ritstjórum DV
fyrir að birta áfengisauglýsingu í
blaðinu. Í héraði höfðu þeir Jónas
Kristjánsson og Mikael Torfason
verið dæmdir til að greiða 200 þús-
und krónur hvor í sekt en Hæstirétt-
ur tvöfaldaði sektina.
Ritstjórarnir kröfðust sýknu og
báru m.a. fyrir sig að ekki hefði verið
um auglýsingu að ræða heldur um-
fjöllun. Einnig bentu þeir á að
ákæruvaldið hefði ekki gefið viðhlít-
andi skýringu á því hvers vegna þeir
voru saksóttir en ekki útgefandi
blaðsins. Þeir hefðu ekki tekið
ákvörðun um að birta auglýsinguna
og líklega hefði Jónas verið í fríi dag-
inn sem hún var sett í blaðið. Meiri-
hluti Hæstaréttar féllst ekki á þetta
og segir m.a. í dómnum að í lögbund-
inni ábyrgð sem á ritstjórum hvíli
felist að þeim bar að yfirfara það efni
blaðsins sem þeir voru ábyrgir fyrir
og að gæta þess að efni sem birt væri
í blaðinu væri ekki andstætt lögum.
Jón Steinar vildi sýkna
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttardómari skilaði sératkvæði og
vildi sýkna. Vísaði hann til sérat-
kvæðis síns í nýlegum dómi yfir rit-
stjóra Blaðsins en þá komst Jón
Steinar að þeirri niðurstöðu að
áfengisauglýsingabannið væri brot
gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar því birting slíkra auglýsinga í
erlendum miðlum væri látin átölu-
laus. runarp@mbl.is
Ritstjórar DV
dæmdir fyrir
auglýsingar
BRETAR styðja að Ísland fái lán
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,
samkvæmt heimildum úr breska
fjármálaráðuneytinu. Fullyrðir
heimildamaður að Bretar hafi
ekki reynt að koma í veg fyrir að
Ísland fái lánið, né aðrar þjóðir.
Bretar styðji lánveitinguna, enda
sé þess ekki að vænta að úr nein-
um málum leysist, fáist lánið ekki.
Bent er þó á að eitt skilyrða
fyrir því að lönd fái lán frá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum sé að jafn-
ræðis sé gætt gagnvart lán-
ardrottnum.
Ísland
fái lánið