Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 14

Morgunblaðið - 07.11.2008, Page 14
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is SAMKVÆMT íslensku stjórnar- skránni er ekkert því til fyrirstöðu að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið (ESB) og ætti ferlið ekki að taka nema nokkra mánuði, sagði Eiríkur Tómasson lagaprófessor á hádegisfundi um þjóðaratkvæðagreiðslur og stjórnar- skrána sem Framsóknarflokkurinn boðaði til í gær. Ljóst sé að ljúki viðræðunum þannig að Ísland ætli að gerast aðili að ESB þurfi að breyta stjórnar- skránni en svo það sé hægt þarf að rjúfa Alþingi og ganga til þingkosn- inga. Nýtt Alþingi þurfi svo að sam- þykkja tillöguna óbreytta. Þá yrði gengið út frá því, þó það sé ekki skil- yrði skv. stjórnarskránni, að Íslend- ingar fengju að kjósa um aðildina í þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og gert hefur verið í flestum Evrópuríkjum. Að ýmsu að hyggja Eiríkur sagði að í slíkum kosning- um væri að ýmsu að hyggja svo sem að kynna vel tillöguna sem borin væri upp til þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Hann gagnrýndi að ekki væri búið að færa stjórnarskrána nær nú- tímanum og setja lög um þjóðarat- kvæðagreiðslu. „Í raun hefði átt að gera það strax árið 1944,“ sagði hann. Jón Kristjánsson, formaður stjórnarskrárnefndar, sagði að loknu erindi Eiríks að nefndin væri enn formlega til en hún hefði ekki komið sér saman um neitt meðan hún var að störfum. Aðildarviðræður tækju stuttan tíma Morgunblaðið/RAX Áhyggjur Eiríkur sagði nöturlegt að sjá Alþingi sitja aðgerðalaust hjá og bíða eftir að fá mál frá ráðherrum. Staða þingsins er honum áhyggjuefni. 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008 VESTURRjúpnaskot í VesturröstRemington og Winchester Fjölmiðlar og lýðræði tjáningarfrelsi eða ritskoðun                  !  " $      #  Sitja allir við sama        Frummælendur eru: Þorbjörn Broddason %      #  Reynir Traustason    &' Jón Magnússon   ( $    Fundastjóri:    ) $( *    Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík laugardaginn 8. nóvember og hefst kl. 13:00.     % $  *        -Fyrirspurnir og umræður- Allir velkomnir Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is „VIÐ finnum að það er gríðarleg fjölgun. Í október var til dæmis 100% aukning miðað við október í fyrra,“ segir Vilborg Oddsdóttir, fé- lagsráðgjafi hjá Hjálparstofnun kirkjunnar. Sífellt fleiri leita nú félagslegrar aðstoðar vegna fjárhagsþrenginga og segir Vilborg greinilegt að sam- setning hópsins sem er hjálpar þurfi hafi breyst. „Þeir sem eru byrjaðir að koma núna eru fólk sem missti vinnuna í sumar, t.d. þessir litlu verktakar í byggingariðnaði sem hafa ekki greitt tryggingagjöldin og eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Þeir hafa jafnvel verið tekjulausir undanfarna tvo mánuði.“ Að sama skapi fjölgar nú fólki sem áður leitaði eingöngu aðstoðar um jól, s.s. stjórar barnafjölskyldur á lægstu laununum. „Þau duga ekki til lengur. Eftir að matur og afborganir af lánum fóru líka að hækka um leið og yfirvinna er kannski skorin niður þá getur fólk þetta ekki lengur og nær ekki endum saman.“ Að sögn Vilborgar eru það þung skref fyrir fólk að leita til hjálparstofnana, flestir leiti allra annarra leiða fyrst. Sá fasti hópur fólks sem leitað hefur hjálpar gegnum árin hefur fyrir löngu brennt allar brýr að baki sér í bankakerfinu, en þeir sem núna koma hafa hingað til ekki verið á svörtum lista bankanna og leita fyrst þangað eftir framfærslulánum. „Þetta er ekki fyrsta skrefið sem fólk tekur. Framan af heldur það að ástandið lagist og reynir að fleyta sér áfram sjálft. En þeir sem koma til okkar núna eru búnir að fá það sem þeir geta hjá fjölskyldunni og eiga ekki neina fyrirgreiðslu hjá bönkunum lengur. Maður heyrir fólk segja að það geti bara ekki beðið fjölskylduna um meiri pening.“ Búast má við að miklar annir verði hjá Hjálparstofnun kirkjunnar eftir áramót þegar uppsagnir taka gildi. Viborg segir þau nú búa sig undir að veita fólki viðtalsráðgjöf á staðnum. „Þetta er náttúrlega ofboðslega erf- itt skref að taka og við finnum mikið fyrir reiði fólks. Það er betra að hún bitni á okkur en að hún sé óskil- greind og ekki hægt að beina henni neitt.“ Allar aðrar leiðir eru lokaðar Nýir hópar fólks leita nú aðstoðar hjálparstofnana Morgunblaðið/RAX Neyð Hjálparstarfsmenn segjast finna fyrir mikilli angist og örvæntingu fólks sem til þeirra leitar. Því finnist sem allar leiðir séu því lokaðar. HITT húsið, Neytendasamtökin og Reykjavíkurborg hafa tekið hönd- um saman og ætla að bjóða ungu fólki á aldrinum 16-25 ára upp á ókeypis og óháða fjármálafræðslu á mannamáli. Verkefnið ber nafnið „Klár í kreppu?“ og að námskeiði loknu eiga þátttakendur að vera færir um að stjórna eigin fjár- málum á ábyrgan hátt. Þátttak- endur fá USB-lykil sér til eignar sem hefur að geyma persónulegt bókhaldsforrit og fjármálafræðslu á mannamáli. Námskeiðið er bæði fyrir þá sem að eru illa staddir í fjármálum og fyrir þá sem vilja fræðast um fjár- mál almennt í forvarnarskyni. Námskeiðið mun standa yfir í einn mánuð og það verður haldið einu sinni í viku í Hinu húsinu, Póst- hússtræti 3-5. Það fer fram þriðju- dagana 11. nóvember, 18. nóv- ember, 25. nóvember og 2. desember og er frá kl. 17 til 19. Skráning fer fram á heimsíðunni www.hitthusid.is. Klár í kreppu? SAMNINGUR milli Landic Ísland og Miðbæjarhótela/Centerhotels um leigu á rúmlega 3.000 fermetr- um í Aðalstræti 6 og 8 í Reykjavík felur í sér fjölgun herbergja á hót- elinu um 75. Stefnt er að því að Plaza muni opna á milli núverandi hótels í Aðalstræti 4 yfir í húsnæðið í Aðalstræti 6 og 8, segir í tilkynn- ingu. Þar kemur auk þess fram að stefnt sé að opnun nýja rýmisins á vormánuðum. Til skoðunar er að leigja jarðhæðina í Aðalstræti 8 undir veitingarekstur, verslun eða aðra þjónustu. Plaza bætir við sig ÁKVEÐIÐ hefur verið að helmingur jólasöfnunar Hjálparstarfs kirkj- unnar verði að þessu sinni helg- aður hjálparstarfi innanlands. Til þess hefur ekki komið áður að sögn Vilborgar, enda þörfin ekki verið slík sem hún er nú. Að auki hefur nú þegar verið sótt fé í neyðarsjóð Hjálparstarfs- ins, en hann er allajafna helgaður erlendu hjálparstarfi auk þess sem hefðbundinn hátíðarkvöldverður kirkjuþings var lagður niður til að bregðast við ástandinu og þeim peningum varið í hjálparstarfið. Hjálparstarf kirkjunnar er líkt og aðrar hjálparstofnanir, s.s. Fjöl- skylduhjálp og Mæðravernd, að miklu leyti háð styrkjum og frjáls- um framlögum. Fjárþörfin meiri en áður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.