Morgunblaðið - 07.11.2008, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
5 8 3 9
9 7 4 8 6
4 3 1 7
2 6
3 8 4 5
5 7
2 9 6 8
1 8 3 4 9
4 5 7 2
5 8 4 2
6 7 2 3
3 1 9
5 2 4
5 7 9 4 6
2 1 3
8 7 9
5 2 8 6
2 7 9 1
8 1 5
1 7 8 2
9 3 6
8 2 3
2 5 1 3 6
5 8 9
4 5 9
6 9 1 4
7 4 2
4 2 6 8 7 1 5 3 9
3 1 8 5 2 9 6 4 7
7 5 9 4 3 6 1 2 8
2 9 3 6 1 4 8 7 5
6 8 7 9 5 3 4 1 2
5 4 1 2 8 7 9 6 3
8 7 2 1 6 5 3 9 4
1 3 4 7 9 8 2 5 6
9 6 5 3 4 2 7 8 1
2 4 3 1 9 7 6 5 8
9 1 5 2 6 8 7 4 3
6 7 8 3 4 5 2 9 1
4 6 9 8 1 2 5 3 7
5 2 1 9 7 3 8 6 4
8 3 7 4 5 6 1 2 9
7 5 4 6 8 9 3 1 2
1 8 2 5 3 4 9 7 6
3 9 6 7 2 1 4 8 5
7 1 6 9 5 8 2 3 4
5 3 4 7 1 2 9 8 6
2 8 9 3 4 6 7 5 1
1 7 8 6 2 5 4 9 3
9 5 2 4 7 3 6 1 8
4 6 3 8 9 1 5 2 7
6 2 5 1 8 7 3 4 9
8 9 7 5 3 4 1 6 2
3 4 1 2 6 9 8 7 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
dagbók
Í dag er föstudagur 7. nóvember,
312. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Það var sagt Víkverja, að þessisetning væri komin inn í ís-
lenzkt mál til þess að vera. Því til
staðfestingar heyrði Víkverji sungið
lag í útvarpinu, þar sem í textanum
segir m.a.: Það var sagt mér að …
Mér var sagt er sem sagt á útleið úr
íslenzku máli.
Víkverji varð meira en lítið undr-
andi, þegar hann las í Morgunblað-
inu, að starfsfélagi hans væri að
hissa sig á hinu og þessu. Víkverja
rekur ekki minni til þess að hafa séð
eða heyrt þessa sögn fyrr og varð
fyrir bragðið miklu hissari en kollegi
hans. Svo er að sjá hvernig nýmæl-
inu reiðir af.
Svona tekur tungan breytingum
upp á hvern dag.
x x x
Víkverji fylgist einsog hver annarmeð fréttastraumnum úr fjár-
málaheiminum. Margt vekur þar
furðu og reiði. Það er einsog þeir
sem hafa verið kallaðir til forystu og
ábyrgðar í bankabjarginu hafi ekki
þolað að ganga þar inn, heldur um-
svifalaust breytzt í purrkunarlausa
peningamenn á þröskuldinum.
Meira að segja forystumenn í verka-
lýðshreyfingunni skorast ekki undan
því að leika bankaleikinn af fullum
krafti. Formaður Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur tekur fullan þátt
í því að hygla toppmönnum bankans,
þar sem hann situr í stjórn, og veita
þeim forréttindi fram yfir óbreytta
félagsmenn sína, í hverra umboði
hann situr í stjórn bankans. Og eng-
inn fær óbragð í munninn. Stjórn
VR segir formanninn njóta trausts
áfram og hann hefur nóg sjálfstraust
til að sitja áfram einsog ekkert hafi í
skorizt. Lífeyrissjóður Víkverja er
inni í lífeyrissjóði VR svo Víkverji
telur þetta mál sér skylt og lýsir yfir
vantrausti á formann VR.
x x x
Og Víkverji spyr alþingismenn:Hvenær ætlið þið að leiðrétta
eftirlaunin ykkar? víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 gagnlegur
hlutur, 8 bætir, 9 að-
gæta, 10 útdeili, 11
drekka, 13 að baki, 15
iðja, 18 sveðja, 21 dauði,
22 þukla á, 23 duglegur,
24 hugsanagang.
Lóðrétt | 2 aðgæsla, 3
lóga, 4 grípa, 5 knappt, 6
óhapp, 7 afkvæmi, 12
magur, 14 hest, 15 róa,
16 hindra, 17 flandur, 18
hvassan odd, 19 púkinn,
20 tungl.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 spjör, 4 kunna, 7 ræpan, 8 ræðin, 9 díl, 11
kæna, 13 firð, 14 skera, 15 kuti, 17 tala, 20 æða, 22 enn-
ið, 23 nýrað, 24 afurð, 25 akkur.
Lóðrétt: 1 sprek, 2 Japan, 3 rönd, 4 karl, 5 niðji, 6 ann-
að, 10 ígerð, 12 asi, 13 fat, 15 kveða, 16 tinnu, 18 afrek,
19 arður, 20 æðið, 21 anga.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. Rc3 Rc6 4. Bb5
Rd4 5. Rxd4 cxd4 6. Re2 Dg5 7. Rxd4
Dc5 8. Rxe6 fxe6 9. a4 a6 10. d4 Dc7
11. Bd3 d6 12. 0-0 Bd7 13. Be3 Rf6
14. f4 d5 15. e5 Re4 16. c4 g6 17. Dc2
0-0-0 18. Hfd1 Kb8 19. c5 a5 20.
Hdb1 Bc6 21. b4 axb4 22. Hxb4 Kc8
23. a5 Kd7 24. a6 bxa6 25. Hxa6 Hb8
26. Hbb6 Hxb6 27. cxb6 Dc8 28.
Ha7+ Bb7 29. Da4+ Kd8 30. Da5
Hg8
Staðan kom upp í A-flokki Haust-
móts Taflfélags Reykjavíkur sem
stendur nú yfir í húsakynnum félags-
ins í Faxafeni 12. Alþjóðlegi meist-
arinn Sævar Bjarnason (2.219) hafði
hvítt gegn Sverri Erni Björnssyni
(2.150). 31. Ba6! Hg7 32. Bxb7 Hxb7
33. Ha8 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Refsispil.
Norður
♠ÁG754
♥G5
♦D
♣KD753
Vestur Austur
♠863 ♠D9
♥6 ♥743
♦ÁG876 ♦K109543
♣10964 ♣ÁG
Suður
♠K102
♥ÁKD10982
♦2
♣82
Suður spilar 6♣.
Eddie Kantar var í austur og kom
inn á 2♦ við spaðaopnun norðurs.
Hvort sem það var af fingurkulda eða
vondri samvisku yfir léttri innákom-
unni, þá missti Kantar spilin á borðið
og laufásinn flettist upp, öllum til sýn-
is. Keppnisstjóri var kvaddur til og
dæmdi hann vestur til þagnar í einn
hring, auk þess sem laufásinn yrði síð-
ar gerður að refsispili. Ekki hjálpaði
tilneydd þögn vesturs N-S mikið í
sögnum, því þeir óku á eigin hestöflum
upp í 6♥. Vitandi af ♣Á í austur nýtti
sagnhafi sér lögbundinn rétt sinn og
bannaði útspil í laufi. Í vestur var John
Mohan, þekktur spilari og vel lesinn í
lögum. Mohan vissi að hann mætti ekki
spila laufi svo lengi sem hann væri inni,
en það mátti austur hins vegar gera.
Mohan kom því út með lítinn tígul,
undan ásnum!
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er margur leyndardómurinn
sem manninn langar til að finna. Ekkert
liggur á og það eru margir fiskar í sjón-
um.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert ekki giftur eigin skoð-
anaheimi og hefðir gott af því að kíkja inn
í skoðanaheim einhvers annars. Spurðu
fólk ráða varðandi lífsleiðina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú færð stórtækar hugmyndir
um breytingar á heimilinu í dag. Farðu á
friðsamlegan stað og skipuleggðu góða
helgi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þér gæti fundist þyngd heimsins
vera að kremja þig ef þú heldur að þú ber-
ir hann einn uppi. Kauptu eitthvað sem
fegrar heimili þitt og gerir það notalegri
dvalarstað.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Fjárhagslegt mat þitt á undir högg
að sækja í dag. Sumir virðast tilbúnir til
að ganga ansi langt til þess að koma skoð-
unum sínum á framfæri.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú ert áhugalaus og hefur enga
burði til að leysa málin. Ekki varpa því yf-
ir á samstarfsmenn og yfirmanninn.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Tvítékkaðu alla hluti sem þú lætur
frá þér fara í dag. Dragðu að þér andann
og teldu upp að þremur áður en þú reiðist
um of. Láttu aðra vita að þér þyki vænt
um þá.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Gefðu eftir í litlu málunum, og
vertu sterkur í þeim stóru. Lærðu af
reynslunni. Gerðu ekki of mikið veður út
af því.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er úr vöndu að ráða þegar
staðið er frammi fyrir mörgum mögu-
leikum. Samræður við maka og nána vini
reyna á þolrifin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Ómöguleg vandamál leysast
þegar þú leitar til vina eða eignast nýja.
Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að
margt er í góðu lagi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Aukin ábyrgð á börnum gæti
valdið þér hugarangri í dag. Settu því
skoðanir þínar fram með glöggum og
greinargóðum hætti.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér finnst þú vera kominn á enda-
stöð svo þér er nauðsyn að setjast niður
og taka þín mál til endurskoðunar. Haltu
svo áfram þegar niðurstaðan liggur fyrir.
Stjörnuspá
7. nóvember 1550
Jón Arason, síðasti kaþólski
biskupinn á Hólum, og synir
hans, Björn og Ari, voru háls-
höggnir í Skálholti. Í kjölfarið
komst „hinn nýi siður“ á í
Hólastifti.
7. nóvember 1916
Fyrsta blaðagreinin sem Hall-
dór Laxness skrifaði undir
eigin nafni birtist í Morgun-
blaðinu. Hann var þá 14 ára.
Greinin fjallaði um klukku
sem „er að sögn ein hin fyrsta
er til landsins fluttist.“
7. nóvember 1936
Sigurður Björnsson á Kví-
skerjum í Öræfum lenti í snjó-
flóði í Breiðamerkurfjalli,
hrapaði 200 metra og lá skorð-
aður 28 metra undir jökulrönd
þar til honum var bjargað eft-
ir rúman sólarhring.
7. nóvember 2007
Minnismerki um Bríeti Bjarn-
héðinsdóttur kvenréttinda-
frömuð var afhjúpað á horni
Þingholtsstrætis og Amt-
mannsstígs í Reykjavík. Merk-
ið er hringlaga stétt úr graníti
með vísu eftir Bríeti.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Eysteinn Hrafnkelsson, Kjartan
Bjarmi Árnason og Elín Sóley Hrafn-
kelsdóttir héldu hlutaveltu við Nóa-
tún í Hamraborg og færðu Rauða
krossinum ágóðann, 16.421 kr.
Hlutavelta
SEXTUGSAFMÆLINU hyggst Kristín Bragadótt-
ir, sviðsstjóri varðveislusviðs Landsbókasafns -
Háskólabókasafns, fagna í Borgarfirðinum. „Við
ætlum að dvelja þar saman öll fjölskyldan. Með
börnum, tengdabörnum og barnabörnum verðum
við ellefu talsins,“ segir Kristín. „Þetta verður á
svolítið bóklegum nótum enda er þetta afskaplega
bókmenntalegt svæði.“ Egilssaga er þannig höfð
með í farteskinu, auk þess sem fjölskyldan ætlar í
sameiningu á Mr. Skallagrímsson. Kristín mun þá
halda fyrirlestur á Akranesi á laugardag um Leir-
árprent og Beitistaðaprent, sem hluta af dagskrá
Vökudaga. Hún er enn fremur að vinna að bók um Íslandsvininn Will-
ard Fiske sem væntanleg er á markað fyrir jól.
Kristín segir veglega hafa verið haldið upp á afmæli sín í æsku. „Þá
var boðið upp á hnallþórur og heitt súkkulaði og þau voru náttúrlega
hvert öðru skemmtilegra. Þegar ég varð þrítug fannst mér ég hins
vegar skyndilega vera orðin svo gömul, en það hefur skánað mikið
með aldrinum. Því þegar ég varð fertug fannst mér það allt í lagi, það
var fínt að verða fimmtug og ég er mjög ánægð með sextugsafmælið.“
annaei@mbl.is
Kristín Bragadóttir íslenskufræðingur 60 ára
Á bókmenntalegum nótum
Nýirborgarar
Reykjavík Karl fæddist
29. ágúst kl. 20.29. Hann
vó 3.870 g og var 52 sm
langur. Foreldrar hans
eru Áslaug Ingvarsdóttir
og Björn Karlsson.
Reykjavík Jasmín Rós
fæddist 5. maí kl. 20.10.
Hún vó 2.415 g og var 49
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Emma Lovísa
Diego og Óðinn Þór Jóns-
son.
Reykjavík Þóru Sólveigu
Guðmundsdóttur og
Arkadiusz Marian Kula-
chowski fæddist dóttir 30.
september kl. 9.34. Hún
vó 4.110 g og var 52 cm
löng.