Fréttablaðið - 01.05.2009, Qupperneq 8
8 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR
1. Hvaða frægi leikstjóri ætlar
að kenna Íslendingum íhugun?
2. Hvaða þjóð seldi Finnum
loftvarnakerfi nýlega?
3. Hversu mikið styrktist krón-
an á miðvikudag?
SVÖR Á SÍÐU 34
ÍRAK, AP Fjögur þúsund manna
herlið Breta í sunnanverðu Írak
er á heimleið. Í gær afhentu Bret-
ar Bandaríkjamönnum formlega
yfirráð yfir herstöðinni við Basra
og nánast allir breskir hermenn
verða farnir heim í lok maí.
Þegar innrásin í Írak stóð sem
hæst, í mars árið 2003, voru bresk-
ir hermenn í Írak 46 þúsund tals-
ins. Bandaríkjamenn eru enn með
130 þúsund manna herlið þar.
Síðan innrásin hófst hafa 179
breskir hermenn látið lífið í Írak.
Hernaðurinn þar hefur frá upphafi
verið afar óvinsæll meðal almenn-
ings í Bretlandi. Minningarathöfn
hina föllnu Breta var haldin í her-
stöðinni við Basra í gær og sett
var upp minnismerki, sem verð-
ur þar áfram eftir að Bandaríkja-
menn hafa tekið við.
„Bretland á þeim mikla þakkar-
skuld að gjalda,“ sagði Gordon
Brown, forsætisráðherra Bret-
lands, um hina föllnu Breta.
Brown sagði þetta á fundi með
Nouri al-Maliki, forsætisráðherra
Íraks, sem var í heimsókn í Lond-
on í gær í tilefni af þessum tíma-
mótum í samskiptum ríkjanna.
Um 400 Bretar verða þó áfram
í Írak enn um stund samkvæmt
samkomulagi við þarlend stjórn-
völd. Meginverkefni þeirra verð-
ur að þjálfa íraska hermenn til að
standa vörð um olíupalla í Persa-
flóa.
Barack Obama hefur sagt að
hernaðarstarfsemi Bandaríkjanna
í Írak ljúki um mitt næsta ár, en
eftir verði þó 50 þúsund banda-
rískir hermenn sem fá það verk-
efni að veita íröskum hermönnum
þjálfun og ráðgjöf. Þeir verði síðan
farnir í árslok 2011.
Ofbeldisverkum í Írak hefur
fækkað mjög í vetur, en undan-
farnar vikur hefur þeim þó fjölg-
að á ný. Það vekur spurningar um
getu íraskra hermanna til að tak-
ast á við ástandið.
Nú síðast kostuðu tvær bíla-
sprengjur í verslunarhverfi í
Bagdad á miðvikudaginn 51 mann
lífið, auk þess sem 76 manns særð-
ust.
Í gær tóku Írakar við stjórn
öryggismála á olíustöðinni Khor
al-Amaya, en breskir og banda-
rískir hermenn hafa áfram öryggis-
eftirlit með höndum í olíustöðinni
al-Basra, sem er mun stærri og
mikilvægari. Þaðan koma um átta-
tíu prósent af öllum olíu útflutningi
Íraks. gudsteinn@frettabladid.is
Breskar hersveitir
fara heim frá Írak
Bretar afhentu í gær Bandaríkjamönnum yfirstjórn herstöðvarinnar í Basra.
Fjögur þúsund breskir hermenn verða flestir farnir heim fyrir lok maí. Eftir
verða þó um 400 breskir hermenn til að sjá um þjálfun íraskra hermanna.
MINNINGARATHÖFN Breskir hermenn í Írak minntust í gær 179 fallinna félaga sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GLEÐILEGA
HÁTÍÐ!
Vinstri græn óska launafólki um allt
land til hamingju með daginn!
Verið velkomin í kaffi að Vesturgötu 7
í Reykjavík eftir kröfugöngu
og útifund.
EVRÓPUSAMBANDIÐ Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins yrði
„reiðubúin að ræða með jákvæð-
um huga (við Íslendinga) með það
fyrir augum að finna lausn sem
myndi tryggja íslenskum útgerðar-
mönnum framtíð sem samræmd-
ist því sem þeir hafa vanist til
þessa, en sem yrði að forminu til
að vera innan ramma sameigin-
legrar stefnu (Evrópusambands-
ins).“
Þetta sagði Joe Borg, sem fer
með sjávarútvegsmál í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins, í svari við spurningu erlends
blaðamanns á
blaðamanna-
fundi í Brussel
22. apríl síð-
astliðinn, sem
haldinn var í til-
efni af útkomu
svonefndrar
grænbókar
framkvæmda-
stjórnarinnar
um endurskoð-
un sameiginlegrar fiskveiðistefnu
sambandsins.
Í svari sínu sagði Borg
ennfremur, að við endurskoðun
sameiginlegu fiskveiðistefnunn-
ar stæði til að taka mið af stefnu
Noregs og Íslands, að minnsta
kosti að því er varðar brottkast.
Þá sagði Borg að tímasetn-
ing upphafs aðildarviðræðna við
Ísland fæli í sér „tækifæri með
tilliti til framtíðar sameiginlegu
fiskveiðistefnunnar, því Ísland
mun án vafa geta lagt sitt af
mörkum til að móta framtíðar-
fyrirkomulag hinnar sameigin-
legu stefnu.“
Upptöku af blaðamannafund-
inum má sjá á netinu á slóðinni:
http://ec.europa.eu/avservices/ - aa
Sjávarútvegsmálastjóri ESB um horfurnar á aðildarviðræðum við Íslendinga:
Eindreginn samningsvilji
JOE BORG
SJÁVARÚTVEGUR Íslendingum hefur
verið boðið að taka þátt á fundi
fulltrúa Evrópusambandsins, Fær-
eyinga og Norðmanna um stjórn
makrílveiða sem haldinn verður í
London í júnílok í sumar.
Boðið var þegið og segir á vef
sjávarútvegsráðuneytisins að mikil-
vægt skref hafi verið stigið í þá
átt að koma viðræðum um stjórn
makrílveiða í viðeigandi farveg.
Það er forsenda þess að öll strand-
ríkin geti unnið að viðunandi niður-
stöðu. Ísland hefur lengi sótt um
aðkomu að stjórn makrílveiða en
án árangurs.
Norðmenn gagnrýndu Íslendinga
harðlega í vetur fyrir að úthluta sér
einhliða 112.000 tonna makrílkvóta,
þar af 20.000 lestum á alþjóðlegu
hafsvæði. Helga Pedersen, sjávar-
útvegsráðherra Noregs, sagði þetta
ábyrgðarleysi af hálfu Íslendinga
og íhugaði aðgerðir gegn íslensk-
um útflutningsfyrirtækjum, en
Samtök norskra útgerðarmanna
hafa tvö undanfarin ár mælst til
þess að innflutningsbann verði sett
á fiskimjöl og lýsi frá Íslandi og að
íslenskum skipum verði bannað
að veiða, hvaða tegund sem er, í
norskri lögsögu.
Íslendingar höfðu boðið hinum
strandríkjunum til fundar um
þessa deilu 17. og 18. apríl síðast-
liðinn en því var ekki svarað. - jse
Íslendingar taka þátt á fundi um stjórn makrílveiða með hinum strandríkjunum:
Sáttahönd í makríldeilunni
NORSKT LOÐNUSKIP Í NÁMUNDA VIÐ TÝ
Íslendingar og Norðmenn hafa oft eldað
grátt silfur saman í fiskveiðistjórnun. En
nú virðast menn ætla að bera klæði á
vopnin.
VINNUMARKAÐUR Styrkjum vegna
heilsueflingar hefur fjölgað um
rúmlega helming fyrstu þrjá
mánuði ársins hjá Eflingu miðað
við sama tíma í fyrra. Mest er
aukningin á almennum markaði,
þar er aukningin sextíu prósent
milli ára.
„Við höfum aldrei séð annað
eins,“ segir Guðrún Óladóttir,
sviðsstjóri sjúkrasjóða hjá Efl-
ingu. „Þeir sem vinna hjá hinu
opinbera hafa alltaf verið miklu
duglegri að sækja þessa styrki en
þeir sem eru á almennum mark-
aði. Það hefur orðið umsnúning-
ur hjá þeim. Við sláum hér met
í hverjum mánuði í fjölda, upp-
hæðum eða einhverju öðru.“
Styrkir vegna heilsueflingar
eru veittir í forvarnaskyni og þá
vegna íþróttaiðkunar og hreyf-
ingar af ýmsu tagi. - ghs
Efling stéttarfélag:
Helmingi fleiri
heilsustyrkir
KÍNA, AP Hægt er að skoða
kínverskar njósnagræjur sem
minna á tæki úr James Bond-
myndum í nýju kínversku njósna-
safni. Meðal safnmuna er byssa
sem lítur út eins og varalitur, og
smámynt sem hefur verið holuð að
innan til að geyma gögn.
Þrátt fyrir að munirnir séu
komnir til ára sinna hafa kínversk
stjórnvöld ákveðið að eingöngu
kínverskir ríkisborgarar megi
berja safngripina augum. Safn-
verðir vísa því erlendum ferða-
mönnum frá. Safnið opnaði í borg-
inni Nanjing í Austur-Kína 13.
apríl, og síðan hafa meira en 500
gestir heimsótt safnið daglega. - bj
Njósnasafn opið útvöldum:
Græjur minna
á James Bond
Grunnskólabörn á Álftanesi þurfa
aðeins að greiða 180 krónur fyrir
hverja máltíð í maí í stað 240 króna
eins og venjulega.
ÁLFTANES
Ódýrari skólamatur í maí
Frá og með 1. maí er gamla sund-
laugin á Blönduósi lokuð fyrir fullt
og allt. Í tilknningu frá bæjarstjóran-
um segir að ekki sé ráðlegt að setja
frekari fjármuni í viðhald laugarinnar
og að opna eigi nýja sundlaug á
næsta ári.
BLÖNDUÓS
Einu sundlauginni lokað
Að minnsta kosti tveir létust þegar bíl
var ekið inn í hóp fólks sem var að
hylla hollensku konungsfjölskylduna
í bænunum Apeldoorn í gær. Talið að
ökumaðinn hafi ætlað sér að aka á
vagninn.
HOLLAND
Ekið á fólk í skrúðgöngu
VEISTU SVARIÐ?