Fréttablaðið - 01.05.2009, Side 22
2 föstudagur 1. maí
núna
✽ blátt er málið
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Arnþór Birkisson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
KÓNGABLÁ Ofurfyrirsætan Elle
McPherson var glæsileg að vanda
þegar hún mætti á Marie Claire-verð-
launahátíðina í Sidney í Ástralíu á
dögunum. Hún klæddist skósíðum
kóngabláum Gucci-kjól og þótti litur-
inn fara sérstaklega vel við ljóst hár
fyrirsætunnar.
Þetta var nú bara þannig að ég heyrði í útvarpinu að Seyma
væri að hætta og hringdi til að at-
huga með efni, en endaði svo nátt-
úrulega bara með því að kaupa
búðina,“ segir Guðrún Gerður Guð-
rúnardóttir fatahönnuður, betur
þekkt sem Gaga Skorrdal. Gaga er
eigandi Blómálfsins á Vesturgötu 4
þar sem hún selur blóm, Trippen-
skó og sína eigin hönnun úr ull,
hör og silki.
„Þetta er náttúrulega algjör
bjartsýni, en ég hef alltaf verið
bjartsýn og tek svo afleiðing-
um gjörða minna seinna,“ segir
Gaga brosandi og virðist ekki láta
kreppuna hafa áhrif á sig. „Ég er
mjög ánægð með hvað fólk tekur
þessu vel. Það er góð aukning í
blómunum, skórnir selja sig sjálf-
ir og hönnunin mín gengur enn
þá,“ bætir hún við.
Í tilefni af opnun Seymu í Blóm-
álfinum verður opnunarhátíð í
dag frá klukkan 10 til 19 og heitt
á könnunni. „Mér finnst skemmti-
legt að halda þetta á verkalýðs-
deginum því ég hef alltaf litið á
mig sem verkamann og er stolt af
því,“ segir Gaga. - ag
Gaga Skorrdal keypti vefnaðarvöruverslun:
Stækkar fyrirtækið
í kreppunni
Blómleg Gaga Skorrdal festi nýverið
kaup á vefnaðarvöruversluninni Seymu,
sem verður nú opnuð í Blómálfinum,
Vesturgötu 4.
MAGDALENA DUBIK, UNGFRÚ REYKJAVÍK
„Í dag verður bara próflestur, en í kvöld æfi ég með píanista fyrir tónleika sem verða
haldnir á Grand hóteli Reykjavík á sunnudaginn í tilefni af pólskum dögum á Grandinu.
Á morgun ætla ég að leyfa mér að sofa aðeins út og fara í góðan göngutúr eða sund-
ferð ef það verður gott veður, hitta svo vinkonurnar um kvöldið á kaffihúsi og slúðra smá.“
helgin
MÍN
Eftirsóttur ljósmyndari
Tískuljósmyndarinn Saga Sigurðar-
dóttir nýtur sívaxandi vinsælda er-
lendis. Saga, sem er á sínu fyrsta
ári í ljósmyndanámi í London, er
ein af stúlkunum bak við reykjavik-
looks.blogspot.com, en hún heldur
einnig út eigin bloggsíðu á sagan-
endalausa.blogspot.com og flickr-
síðu með eigin myndum sem hafa
vakið mikla athygli erlendis.
Myndir Sögu hafa meðal ann-
ars birst í norska Elle tíma-
ritinu, spænsku útgáfunni af
Glamour og Saga var nýver-
ið í viðtali við litháíska tímarit-
ið Pravda. Auk þess tók hún ný-
verið myndir fyrir auglýsingaher-
ferð spænska fatamerkisins Adolfo
Dominguez sem er með rúmlega
200 verslanir úti um allan heim.
Sushi-æði
Það virðist ekkert lát vera á vin-
sældum sushi hjá landsmönnum
og stöðum sem bjóða upp á þenn-
an japanska þjóðarrétt fer sífellt
fjölgandi. Veitingastaðurinn Fisk-
markaðurinn hefur ekki beint verið
þekktur sem sushi-staður,
en hefur nú hannað nýjan
matseðil og býður upp á sér-
stök sushi-hádegi á virkum
dögum milli klukkan 11.30 og 14.
Á staðnum er fiskurinn unninn eftir
aldagamalli aðferð og mikið lagt
upp úr gæðum svo þar ætti enginn
að verða svikinn af nýjum sushi-
matseðli.
É g hef verið að þjálfa Jóhönnu síðustu tvo mánuði, þrisvar sinnum í viku í World
Class Laugum og þrisvar í æfingastúdíói Sýr-
lands í Vatnagörðum,“ segir Yesmine Ols-
son einkaþjálfari, sem sér um sviðsetningu á
framlagi Íslendinga til Eurovision-keppninnar
í ár, sem haldin verður 12. maí í Moskvu. Eins
og flestum er orðið kunnugt syngur Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir lagið Is it true? með dygg-
um stuðningi Heru Bjarkar, Friðriks Ómars og
Ernu Hrannar í bakröddum, en með þeim spil-
ar Börkur Birgisson á gítar og Hallgrímur Jens-
son á selló. Aðspurð segir Yesmine Jóhönnu
hafa staðið sig vel í undirbúningnum.
„Það kom mér á óvart hvað Jóhanna
er öflug og með sterka upphandleggs-
vöðva. Hún var að lyfta lóðum langt yfir
meðallagi svo ég minnkaði þyngdirnar hjá
henni, en hún var í frjálsum íþróttum svo hún
hefur mikið keppnisskap,“ útskýrir Yesmine,
sem hefur unnið mikið með túlkun Jóhönnu á
laginu og samspili hennar við sjónvarps vélar.
„Aðaláherslan er lögð á að Jóhanna sé mið-
punkturinn í stað þess að búa til mikið atriði í
kringum hana. Ég held að það muni kom vel út
fyrir Ísland í keppninni,“ segir Yesmine.
Sviðsfötin í Eurovision skipta miklu máli og
undanfarnar vikur hefur Margrét Einarsdóttir
búningahönnuður unnið að glæsilegum kjól
fyrir Jóhönnu í samstarfi við Kolbrúnu og
Gunna í Anderson & Lauth og Berglindi í Klæð-
skerahöllinni. „Þegar maður hlustar á lagið fær
maður strax mjög sterka tilfinningu fyrir litum
og formi. Þemað er ísinn og snjórinn með æv-
intýralegum blæ. Þetta er mikill kjóll og fallega
uppbyggður. Kjóllinn er blátóna og allur klæðn-
aðurinn á sviðinu verður í svipuðum tónum
allt frekar rómantískt, en samt „cool“,“ útskýr-
ir Margrét sem sér einnig um annan klæðnað
Jóhönnu í ferðinni. „Við erum búin að klæða
Jóhönnu upp fyrir blaðamannafundi, partí og
aðrar uppákomur því hún þarf alltaf að líta
vel út. Þetta eru allt föt frá Andersen & Lauth,
sem hafa verið alveg frábærir samstarfsað-
ilar. Þetta er mikill klassi og Jóhanna á eftir
að skína eins og stjarnan sem hún er,“ segir
Margrét og Elín Reynisdóttir förðunarmeistari
tekur í sama streng, en hún mun sjá um að
farða Jóhönnu í Moskvu. „Karl Berndsen ætlar
að þykkja og síkka á henni hárið með leng-
ingum og lýsa það aðeins áður en við förum.
Ég mun svo hugsa um að hafa hana ferska og
stelpulega úti og ekki mála hana of mikið, eða
mála hana mikið án þess að það sjáist, það er
trixið,“ útskýrir Elín og brosir. - ag
Yesmine Olsson, Elín Reynisdóttir og Margrét Einarsdóttir:
ÚTLITIÐ Í EUROVISION
Flottar Yesmine, Margrét og Elín fara til Moskvu og munu sjá um útlit Jóhönnu Guðrúnar yst sem innst.
þetta
HELST