Fréttablaðið - 01.05.2009, Síða 24
4 föstudagur 1. maí
Steinunn Sigurðar-
dóttir á langan feril að
baki við tísku- og fata-
hönnun og er margverð-
launuð fyrir störf sín.
Hún var yfirhönnuður
hjá Gucci, Calvin Klein
og La Perla, en stofnaði
eigið fyrirtæki, STEiN-
UNN, fyrir sjö árum og
opnaði samnefnda versl-
un við Bankastræti 9 í
Reykjavík.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir og
Indíana Ása Hreinsdóttir
Ljósmyndir: Anton Brink
É
g var voðalega þakk-
lát að fá svona góðar
fréttir,“ segir Stein-
unn Sigurðardóttir en
hún var valin besti ís-
lenski hönnuðurinn af málsmet-
andi álitsgjöfum sem Föstudagur
leitaði til. Margir komust á blað,
en afgerandi fjöldi sagði hönnun
Steinunnar standa upp úr.
Fáir vita eflaust að íslensk fata-
hönnun veltir um fimm milljörð-
um króna á ári og innlend sala er
áætluð um tveir milljarðar króna.
Þetta kom meðal annars fram á
fyrirlestri sem Steinunn hélt á
síðasta degi vetrar um sóknar-
færi á sviði íslenskrar hönnun-
ar á aðalfundi Samtaka atvinnu-
lífsins. „Ég tók saman að það eru
28 verslanir í miðbæ Reykjavíkur,
frá Garðastræti að Snorrabraut,
sem selja íslenska hönnun. Þar
fyrir utan eru allar þær verslanir
sem selja íslenska vöru, listasöfn-
in og galleríin svo ég vil meina að
svona í skjóli nætur sé miðbær-
inn að verða hönnunar- og lista-
hverfi Íslands. Það eru ekki allir
drukknir í miðbænum,“ útskýrir
Steinunn brosandi og segir mikla
grósku vera í íslenskri hönnun
og HönnunarMars vera eitt það
sterkasta sem hefur gerst á því
sviði á árinu.
Til marks um vel unnin störf
hlaut Steinunn aðalverðlaun Fé-
lags kvenna í atvinnurekstri í
fyrra og var fyrsti fatahönnuður-
inn til að hljóta hin virtu Torsten
and Wanja Söderberg-verðlaun, en
það er aðeins brot af þeim viður-
kenningum sem hún hefur hlot-
ið um árin. Steinunn er nú byrjuð
að hanna næstu línu fyrir vorið
2010 og er að klára framleiðslu
á haustlínunni 2009 sem hún
segir að vissu leyti endurspegla
ástandið í þjóðfélaginu í dag.
„Það áhugaverðasta við þá línu er
hvað hún er einföld. Í augnablik-
inu er flækingur ekki málið, bara
einfaldleiki,“ segir Steinunn um
haustlínuna. „Ég vann mikið með
myrkrið, snjóinn og norðurljós-
in sem eru venjulegir hlutir fyrir
okkur Íslendinga, en við upplifum
þá öll,“ bætir hún við.
Aðspurð segist hún vissu-
lega hafa fundið fyrir efna-
hagsástandinu, en er full bjart-
sýni. „Það er allt þyngra í vöfum
og tekur lengri tíma, eins og til
dæmis að panta efni. Mér finnst
samt gott að fólk kaupir ekki af
hvatvísi lengur, heldur hugsar
hvort það þurfi flíkina og muni
nota hana. Ég hef alltaf talað um
að klassík sé lykilatriði í hönn-
un því þú vilt geta tekið jakka út
úr skápnum eftir tíu ár og verið
VINSÆLASTI HÖNNUÐURINN
Vor 2009 Vorlína Steinunnar var glæsileg, en hún er nú byrjuð að hanna næstu
línu fyrir vorið 2010 og er að klára framleiðslu á haustlínunni 2009.
Klassískt
Steinunn fær gjarn-
an innblástur frá náttúr-
unni sem endurspegl-
ast í hönnun hennar.
í honum þá jafnt og í dag,“ segir
Steinunn.
SAGT VAR UM STEINUNNI
„Á heimsmælikvarða, líka hvað
varðar efnisvalið. Flíkurnar henn-
ar endast og eru klassík.“
„Frumleg, fáguð og kann þetta
„international look“.“
„Klassísk og stórglæsileg hönn-
un. Steinunn hefur dregið vagn-
inn í þessum bransa lengi.“
„Steinunn situr á toppnum með
ótrúlega „details“, mjög fín efni
og klassí flíkur. Líka á toppnum
hvað verðmiðann varðar. Ótrúlega
falleg og stílhrein hönnun.“
„Án efa einn af okkar hæfustu
fatahönnuðum. Kann að fara með
efnasamsetningar og nýta nátt-
úruna í sköpun sinni. Með auð-
þekkjanlegan stíl: kvenlegur en
orka í fötunum hennar.“
„Hannar ótrúlega fallegar vörur.
Hannar til að selja. Stendur al-
gjörlega undir væntingum, búin
að byggja upp flott vörumerki.“
„Fyrst og fremst. Allt tipptopp
og til fyrirmyndar, efni, efnisval og
frágangur, enda margverðlaunuð.
Vinnur út frá íslenskri náttúru
þótt það sé varla fyrir nokk-
urn manna að kaupa vöruna
vegna verðlagsins.“
„Elegant og smart, eng-
inn heimasaums-amat-
örabragur á henni.“
„ H u g v i t s a m l eg o g
fáguð hönnun byggð á
ígrundaðri hugmynda-
fræði hvað varðar form, liti
og kvenlíkamann.“
„Hefur fengið viðurkenn-
ingu víða, dugleg við að
kortleggja Ísland og held-
ur fast í rætur sínar.
Spennandi, ekki
b a r a s e m
hönnuð-
ur heldur
l íka sem
persóna.
Sumar-
l ínan er
meirihátt-
ar! Algjör-
lega í sér-
klassa.”
Eftirsótt Hönnun Steinunnar
þykir klassík og hefur vakið at-
hygli úti um allan heim.