Fréttablaðið - 01.05.2009, Síða 42
30 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR
> LYKILMAÐURINN
Arnar Grétarsson hefur spilað
stórt hlutverk með Breiðabliki
undanfarin sumur. Arnar hefur verið
kjölfestan á miðju liðsins og hefur
miðlað af reynslu sinni til ungra og
efnilegra leikmanna sem er nóg
af í Blikaliðinu. Ábyrgðin verður
enn meiri á Arnari í sumar því
auk þess að bera fyrirliða-
bandið áfram er hann orðinn
aðstoðarþjálfari liðsins. Arnar
nær því að öllum líkundum í
sumar að verða leikjahæsti
leikmaður Breiðabliks í
efstu deild frá upphafi.
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR BREIÐABLIKI 8. SÆTINU Í PEPSI-DEILDINNI SUMARIÐ 2009
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 8. sæti í A-deild 2007 5. sæti í A-deild 2006 5. sæti í A-deild 2005 1. sæti í B-deild 2004 4. sæti í B-deild 2003 7. sæti í B-deild
AÐRIR
LYKILMENN
GUÐMUNDUR
KRISTJÁNSSON
ARNÓR SVEINN
AÐALSTEINS-
SON
FINNUR ORRI
MARGEIRSSON
GENGI Á VORMÓTUNUM
Sigrar Jafntefl i Töp
2
5
> X-FAKTORINN
Markaskorarar Blikaliðsins
eru flestir farnir frá liðinu en liðið
hefur misst leikmenn sem skoruðu
tæplega áttatíu prósent marka liðsins
í fyrrasumar. Það þarf því að finna
einhverja til að skora mörkin fyrir
Breiðablik í sumar.
FÓTBOLTI Framtíð Vaduz-félaganna
Gunnleifs Gunnleifssonar og
Guðmundar Steinarssonar er í
óvissu. Guðmundur verður ekki
áfram í herbúðum liðsins en
Gunnleifur gæti verið áfram þar
sem Vaduz ætlar að bjóða honum
nýjan samning.
Gunnleifur er þó með fleiri járn
í eldinum og lið af Bretlandseyjum
hafa verið að bera víurnar í hann.
„Þetta eru lið í skosku
úrvalsdeildinni og ensku 1.
deildinni. Ég veit lítið meira enda
rétt farinn að spá í framhaldið hjá
mér,“ sagði Gunnleifur en
góð frammistaða hans
í landsleiknum gegn
Skotum vakti áhuga
félaganna á honum.
Gunnleifur segist
vel geta hugsað sér
að vera áfram hjá
Vaduz. Þó með
þeim formerkjum
að hann verði
markvörður
númer eitt.
Hann hefur
mátt verma
tréverkið hjá
liðinu meira
og minna en
einn efnilegasti
markvörður
Þjóðverja hefur
staðið á milli
stanganna. Sá er
þó væntanlega
á förum til
Þýskalands.
„ É g e r
opinn fyrir
öllu og loka ekki á neitt. Svo gæti
vel farið að ég spili heima í sumar
þegar ég verð löglegur. Þetta á allt
eftir að koma í ljós.“
Guðmundur segir það öruggt að
hann verði ekki áfram í herbúðum
Vaduz. „Ég held að það sé alveg
ljóst að ég muni ekki framlengja
samning minn hér,“ sagði hann í
samtali við Fréttablaðið. „Það er
enn mánuður eftir af tímabilinu og
þá mun ég skoða hvaða möguleikar
standa mér til boða.“
Félagaskiptaglugginn hér á
Íslandi er lokaður frá 15. maí til
15. júlí og því hverfandi líkur á
því að hann geti samið við
íslenskt lið áður en tímabilinu
í Sviss lýkur. Sama staða er
hjá Gunnleifi.
„Ég hef svo sem ekkert
verið að skoða þann möguleika
að fá mig lausan hér fyrir 15. maí
enda hefur ekkert lið á Íslandi
verið að bera víurnar í mig. Þar
fyrir utan er mér aðeins heimilt
að framkvæma tvö félagaskipti á
milli landa á einu ári og því verð
ég að vanda valið vel.“
Hann segist þó opinn fyrir því
að koma aftur til Íslands í sumar,
þó svo að hann missi af fyrri
hluta tímabilsins. „Ég er nú ekki
að yngjast og þætti allt í góðu að
koma heim aftur nú.“
Vaduz er sem stendur í neðsta
sæti svissnesku úrvalsdeildarinnar
en eitt lið fellur úr deildinni.
Það eru fimm stig í næsta lið
en Guðmundur segir það enn
mögulegt að halda sætinu.
- hbg / - esá
Ekki löglegir fyrr en í júlí
Fari svo að Gunnleifur Gunnleifsson og Guðmundur Steinarsson spili hér
heima í sumar verða þeir ekki löglegir fyrr en 15. júlí. Guðmundur fer frá Vaduz
en félagið vill halda Gunnleifi, sem er í skoðun hjá liðum á Bretlandseyjum.
VADUZ-VINIR
Framtíð þeirra
Guðmundar
Steinarssonar
og Gunnleifs
Gunnleifssonar
er óljós. Þó er ljóst að
þeir gætu aldrei spilað
á Íslandi fyrr en 15. júlí
ef þeir ákveða að koma
aftur heim.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR & VILHELM
Breiðablik endaði í 8. sæti í efstu deild í fyrra
eftir að hafa gefið eftir á lokasprettinum.
„Miðað við breytingar á mannskap er kannski
ekki skrítið að okkur sé spáð 8. sætinu. Það
eru tíu leikmenn farnir af þeim sem voru í
kringum liðið á síðasta tímabili,“ segir Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks. „Við spiluðum
á mörgum ungum leikmönnum í fyrra og það
gæti komið sér vel núna. Það er bara ekkert
bolmagn í félaginu til þess að fara í einhverja
liðssöfnun. Við byggjum þetta innan frá,” segir
Ólafur en hann viðurkennir að brottfallið hafi
verið mikið í sóknarhugsandi leikmönnum. „Við
erum ekki með augljósan mann sem á að skora
öll mörkin. Menn verða bara að sýna það að
þeir geta skorað,“ segir Ólafur.
Breiðablik hefur misst alla fimm útlendingana
sem og þá Jóhann Berg Guðmundsson, Marel
Baldvinsson, Steinþór Frey Þorsteinsson og
Magnús Pál Gunnarsson.
„Við lentum í áttunda sæti í fyrra sem ég vil
nú meina að hafi verið mun neðar en spila-
mennskan og efni stóðu til. Við viljum gera
betur en í fyrra þó svo að við höfum misst
marga leikmenn,“ segir Ólafur.
„Í fyrra sagði ég að þetta lið hefði burði til að
vera í toppbaráttu sem við vorum lengi vel. Þá
fannst mönnum það sérstaklega gaman þegar
það tókst ekki. Ég veit alveg hvað þessir strákar
geta og hvað þetta lið getur. Ég ætla ekki á
neinum tímapunkti nota það sem afsökun að
níu leikmenn hafi farið. Það verður byggt á því
sem er og unnið með það sem við höfum. Ég
get staðfest það að stefnan er sett á mun hærra
sæti en áttunda sætið án þess að gefa það sæti
nánar upp,“ segir Ólafur að lokum.
Stefnan er sett á mun hærra sæti
FÓTBOLTI Jóhann Þórhallsson mun
missa af fyrstu umferðum Pepsi-
deildarinnar í sumar þar sem
hann er nú í námi í Bretlandi.
Hann kemur heim um miðjan
júní en þá í engu leikformi
þar sem hann hefur lítið sem
ekkert æft fótbolta síðan síð-
asta tímabili lauk.
„Ég ákvað að fara
í masters-nám í
Brighton í Englandi
og því lýkur ekki
fyrr en um miðj-
an júní,“ sagði
Jóhann. Hann
er enn samn-
ingsbundinn Fylki
og sagði að það hefði verið ljóst
þegar hann samdi við félagið á
sínum tíma að hann færi utan í
námið.
„Ég hef verið duglegur að æfa
sjálfur í ræktinni en lítið komið
við bolta,“ bætti hann við.
„Fótboltinn hefur alla
tíð verið í fyrsta
sæti hjá mér og
ég ákvað að nú
mætti hann stíga
aðeins til hliðar
vegna námsins. Ég er
þó alls ekki hættur og
ætla að virða minn
samning við Fylki.“
- esá
Jóhann Þórhallsson verður með Fylki í sumar:
Kemur um miðjan júní
Umspil um N1-deild karla
Afturelding - Stjarnan 32-22
Markahæstir hjá A.: Hilmar Stefánsson 7/2,
Jóhann Jóhannson 7/1, Bjarni Þórðarson 5.
Varin skot: Smári Guðfinsson 15, Kristófer
Guðmundsson 1/1.
Markahæstir hjá S.: Björgvin Hólmgeirsson 10,
Daníel Einarsson 5.
Varin skot: Þorgils Jónsson 6, Roland Eradze 2.
UEFA-bikarinn
Dynamo Kiev - Shakhtar Donetsk 1-1
Werder Bremen - Hamburger SV 0-1
Norska úrvalsdeildin
Brann - Lilleström 3-1
Birki Már Sævarsson, Kristján Örn Sigurðsson og
Ólafur Örn Bjarnason voru allir í byrjunarliði
Brann. Gylfi Einarsson kom inn á sem varamaður
en Ármann Smári Björnsson var á bekknum.
Meistaradeild Evrópu
Rhein-Neckar Löwen - Kiel 31-30
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk
fyrir Löwen, þar af tvö úr víti.
ÚRSLIT
Síðasta sýningarhelgi
Gerðarsafn, Kópavogi.
Aðgangur ókeypis.
Notið Þjóðargjöfina 2009
og fáið bókina á aðeins 2000 kr.
–fegurðin býr í bókum
Barónsstíg 27 | Sími 899 7839 | crymogea@crymogea.is
Þessi ávísun er 1.000 króna gjöf frá bókaútgefendum o
g bóksölum.
Ávísunin veitir þér 1.000 kr. afslátt af bókakaupum. H
ún gildir í bókabúðum þegar
keyptar eru bækur útgefnar á Íslandi fyrir 3.000 kr. að
lágmarki.
Gildir til 4. maí 2009
jóðargjöf til þín Kr. 1.000
HANDBOLTI Afturelding tryggði
sér í gær oddaleik í rimmu liðsins
við Stjörnuna um sæti í N1-deild
karla á næstu leiktíð. Liðin áttust
við í Mosfellsbæ þar sem heima-
menn unnu tíu marka sigur, 32-22,
en þetta var annar leikur liðanna.
Stjarnan vann fyrsta leikinn og
mætast liðin því í hreinum úrslita-
leik um hvort liðið leikur í efstu
deild karla á næstu leiktíð í Garða-
bænum á mánudaginn.
Það voru gríðarleg læti á áhorf-
endapöllunum í gamla íþróttahús-
inu að Varmá og stemningin mikil
hjá stuðningsmönnum Afturelding-
ar. Það virtist slá gestina út af lag-
inu í upphafi leiks en þeir jöfnuðu
sig fljótlega og komust yfir, 6-5.
En þá skoruðu Mosfellingar
fimm mörk í röð náðu fimm marka
forystu fyrir leikhlé, 15-9. Þeir
voru svo ekki nema fimm mínútur
í síðari hálfleik að auka þann mun
í tíu mörk og þar með var sigurinn
í raun tryggður.
Smári Guðfinnsson átti góðan
leik í marki Aftureldingar, sem var
í raun betri aðilinn á öllum svið-
um handboltans í gær.„Það skipt-
ir gríðarlega miklu máli að vera
með svona góðan stuðning,“ sagði
Hilmar Stefánsson, fyrirliði Aftur-
eldingar. „Nú fáum við stuðnings-
mennina með okkur í oddaleikinn
og þá förum við alla leið.“ - esá
Afturelding tryggði sér oddaleik gegn Stjörnunni:
Yfirburðir Mosfellinga
ODDALEIKUR Ásgeir Jónsson og félagar í
Aftureldingu unnu Stjörnuna í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN