Fréttablaðið - 01.05.2009, Síða 46
34 1. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Jóhanna keppir við strippara
Jóhanna Guðrún hefur fengið
óvæntan keppinaut, komist hún
og lagið Is It True á annað borð
í úrslitakeppnina. Þjóðverjar til-
kynntu nýlega að bandaríska undir-
fatafyrirsætan Dita Von Teese
myndi taka þátt í þýska atriðinu.
Það eru tónlistarmennirnir Alex
Christensen og Oscar Loya sem
flytja lagið Mrs. Kiss Kiss Bang.
Þjóðverjar hafa ekki riðið feit-
um hesti frá Eurovision undan-
farin ár þrátt fyrir mikinn metn-
að. Þeir hafa þó ekki þurft að hafa
áhyggjur af því að þurfa taka þátt
í undan keppninni því Þýskaland
er með sjálfkrafa þátttökurétt
ásamt Bretum, Frökkum og Spán-
verjum.
Dita Von Teese heitir réttu
nafni Heather Sweet og er hvað
þekktust fyrir burlesque-sýning-
ar sínar sem ganga út á ögrandi
og fáklædda dansara. Nafn Ditu
hefur þó lengst af verið tengt við
goth-rokkarann Marilyn Manson
en þau voru gift í heilt ár. Þetta
vakti eðlilega mikla athygli
enda Manson frekar ófrýni-
legur náungi og voru þau
yfirleitt kölluð Fríða og
dýrið. - fgg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. svari, 6. sjúkdómur, 8. kjökur, 9.
sigað, 11. 950, 12. töng, 14. einkenn-
is, 16. skammstöfun, 17. ringulreið,
18. ennþá, 20. ólæti, 21. kropp.
LÓÐRÉTT
1. umstang, 3. átt, 4. skrápdýr, 5.
angan, 7. hnöttur, 10. skítur, 13. flík,
15. sáttargerð, 16. kviksyndi, 19.
númer.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ansi, 6. ms, 8. væl, 9. att,
11. lm, 12. kjafi, 14. aðals, 16. fr, 17.
tjá, 18. enn, 20. at, 21. nart.
LÓÐRÉTT: 1. ómak, 3. nv, 4. sælilja,
5. ilm, 7. stjarna, 10. tað, 13. fat, 15.
sátt, 16. fen, 19. nr.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 David Lynch.
2 Norðmenn.
3 1,33 prósent.
„Já, ég get staðfest það að lögreglan hafði
samband við mig og vildi gera rafbyssuna
upptæka.
Við munum að sjálfsögðu verða við þeirri
beiðni enda viljum við engin eftirmál vegna
þessa uppátækis,“ segir Pálmi Guðmunds-
son sjónvarpsstjóri á Stöð 2.
Sérkennilegt mál er upp komið í kjölfar
þeirrar fréttar Fréttablaðsins að þeir léku
lausum hala Sveppi og Auddi með rafbyssu.
Byssuna notuðu þeir til að stuða samstarfs-
menn sína á Stöð 2 og kunnu flestir þeim
litlar þakkir. En megintilgangurinn, ástæða
þess að þeir voru með byssuna uppi við, var
að nota byssuna sem tæki í þátt sinn og í
atriði sem tekin voru upp fyrir árshátíð 365.
Meðal þeirra sem fengu að kenna á byss-
unni voru Ari Edwald forstjóri fyrirtækis-
ins og svo í eftirleiknum, Logi Bergmann
Eiðsson sjónvarpsstjarna. Blaðamaður
Fréttablaðsins varð vitni að því, en í síma-
viðtali rak Logi óvænt upp skaðræðis vein.
Að sögn Sveppa kjökraði þessi stóri maður
eins og lítil stelpa en reiddist svo ofboðs-
lega. „Alveg þess virði að sjá það,“ sagði
Sveppi kátur við það tækifæri.
Að sögn Pálma þá var ekki um það að
ræða að þáttur Sveppa og Audda þar sem
rafbyssan kemur við sögu yrði sendur út
nema að henni væri skilað. Hann leggur á
það áherslu að rafbyssan sé skaðlaus í sjálfu
sér þó mönnum sem fyrir stuðinu verða geti
brugðið í brún. Hún gengur fyrir venjuleg-
um rafhlöðum. Ekki náðist í þá Sveppa og
Audda vegna málsins en byssuna munu þeir
vera með í láni hjá vini Audda sem mun víst
ekkert tiltakanlega ánægður með þróun
mála. - jbg
Rafbyssa Sveppa og Audda gerð upptæk
SVEPPI OG AUDDI Lögreglan hafði engan húmor fyrir
því að þeir þessir væru að valsa um með rafbyssu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VERÐUGUR KEPPINAUTUR
Eurovision-sérfræðingar
segja ákveðið sakleysi svífa
yfir vötnum hjá Jóhönnu, sem
ætti að vera gott mótvægi við
Ditu strippara.
„Það kom aldrei nein önnur til
greina,“ segir Ragnar Bragason
leikstjóri. Gengið hefur verið
frá samningum við Ágústu Evu
Erlendsdóttur um að hún taki að
sér hlutverk Bjarnfreðar, móður
Georgs Bjarnfreðarsonar, í kvik-
myndinni Bjarnfreðarson.
Myndin er byggð á persónum
úr sjónvarpsþáttunum vinsælu,
Næturvaktinni og Dagvaktinni,
en hún mun fara fram og aftur í
tíma. „Í fortíðinni nær hún yfir
tólf ára tímabil í lífi Georgs, frá
því að hann fæðist og þar til hann
verður tólf,“ útskýrir Ragnar en
sá tími mun ná frá árunum 1964
til 1978. Nútímahlutinn gerist hins
vegar nokkrum árum eftir að þeir
félagar losna út af Litla-Hrauni og
lýsir því hvernig þeim gengur að
takast á við lífið utan fangelsis-
múranna.
Ragnar telur Bjarnfreðarson
vera fjölskyldusögu. „Við erum
búnir að vera á bensínstöð, hót-
eli og fangelsi en núna má eigin-
lega segja að við hertökum íslensk
heimili,“ segir Ragnar en reiknað
er með að tökur hefjist nánast um
leið og tökum á Fangavaktinni
lýkur, um miðjan júní. „Já, menn
hafa þurft að leggja ýmislegt á
sig útlitslega fyrir hlutverk sín og
því þótti okkur bara best að klára
þetta sem fyrst.“
Jón Gnarr, Jörundur Ragn-
arsson og Pétur Jóhann Sigfús-
son endurtaka hlutverk sín sem
Georg, Daníel og Ólafur Ragnar
og þau Arnar Jónsson og Anna
Kristín Arngrímsdóttir verða í
hlutverkum föður og móður Daní-
els. Svo bætast við hópinn tengda-
fjölskylda Daníels en það verða
þau Örn Árnason og Helga Braga
sem leika tengdaforeldrana og
Jóhannes Haukur Jóhannesson
verður í hlutverki mágs Daníels.
Sara Margrét verður síðan auðvit-
að í hlutverki sínu sem barnsmóð-
ir Daníels.
Þrátt fyrir að húmorinn svífi
yfir vötnum í þáttunum og vænt-
anlega einnig í kvikmyndinni er
aldrei langt í tragedíuna og Bjarn-
freðarson kafar nokkuð djúpt ofan
í sálarfylgsni Georgs. „Myndin
fjallar eiginlega um það hvernig
maður eins og Georg verður að
skrímsli og hvernig honum tekst
að verða maður á ný,“ segir Ragn-
ar. „Hún fjallar um uppeldið og
afleiðingar af því, eiginlega synd-
ir feðranna.“ freyrgigja@frettabladid.is
RAGNAR BRAGASON: STÓRLEIKARAR Í HVERRI RULLU Í BJARNFREÐARSON
Ágústa Eva leikur mömmu
Georgs Bjarnfreðarsonar
„Það er Eldsmiðjan. Ég elska að
fá mér stóra pizzu með rjóma-
osti, jalapenos, grænum ólífum,
hvítlauk og pepperoni. Það er
langbesta pizzan.“
Roland Hartwell tónlistarmaður.
ÞEKKTIR LEIKARAR Í
BJARNFREÐARSON
Ágústa Eva Erlendsdóttir stekkur
aftur fram sjónarsviðið eftir nokkurt hlé
og leikur mömmu Georgs Bjarnfreðar-
sonar. Örn Árnason og Helga Braga
Jónsdóttir leika tengdaforeldra Daníels
í kvikmyndinni Bjarnfreðarson en tökur á
henni hefjast væntanlega
um miðjan júní. Hún
er byggð á sjónvarps-
þáttunum vinsælu
um þá Ólaf Ragnar,
Daníel og Georg
Bjarnfreðarson.
Leikstjóri verður
sem fyrr Ragnar
Bragason.
Egill Einarsson, betur þekktur sem
Gillz, gerir fleira en að láta hirða af
sér peninga í póker. Því hann er jú
einkaþjálfari í Sporthúsinu. Hans
nýjasti skjólstæðingur hyggst koma
sér í gott form fyrir annasama
dagskrá framundan en það er sjálf
Sandy úr Grease eða Ólöf Jara
Skagfjörð. Gillz hyggst ekki taka
hana neinum vett-
lingatökum enda
krefst hlutverkið
mikils líkamlegs
úthalds, byggist á
dansi og söng.
Fyrsti tíminn
ku því vera
strax á
mánudag-
inn.
Ari Kristinsson, formaður
samtaka íslenskra kvikmyndafram-
leiðenda, er strax farinn að láta til
sín taka í nýju starfi. Hann hefur
nú falið lögfræðingi samtakanna
að segja upp samningi við félag
íslenskra leikara. Síðasti samn-
ingur var gerður 2003 og átti að
standa til 2005. Lítið hefur verið
gert í samningsmálum þar
til nú en framleiðendur
kvikmynda og sjónvarps-
þátta horfa nú í hverja
krónu og þótti taxti
leikara vera orð-
inn helst til of
hár. Formað-
ur félags
íslenskra
leikara er
Randver
Þorláks-
son.
Heldur hefur fjarað undan góðu
áhorfi á sjónvarpsþátt Karls
Berndsen en hann var um tíma
vinsælasti sjónvarpsþáttur Skjás
eins. Samkvæmt nýjustu mæling-
um Capacent Gallup mældist hann
með þrettán prósenta áhorf og
stendur vinsælasta þætti stöðvar-
innar, CSI, langt að baki. Hins vegar
sannaði Spaugstofan
tilverurétt sinn um
kosningahelgina því
úrval bestu þátt-
anna var vinsælasta
sjónvarpsefnið þegar
þjóðin gekk að
kjörborðinu.
- fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
PLASTPARKET
TILBOÐ
w
w
w
.t
h
is
.i
s/
kr
o
ss
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s/
kr
o
ss
g
a
tu
r
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki