Fréttablaðið - 01.05.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er föstudagurinn 1. maí,
121. dagur ársins.
5.07 13.25 21.46
4.40 13.10 21.42
BYGGJUM
RÉTTLÁTT
ÞJÓÐFÉLAG
1 . M A Í 2 0 0 9
Í yfir 90 ár hefur styrkur og samtakamáttur
verka lýðshreyfingarinnar gjörbreytt íslensku
samfélagi til hins betra. Með bankahruninu
breyttist hins vegar margt. Íslensk þjóð er í
alvarlegum vanda en hann er ekki óyfirstígan-
legur. Við þessar aðstæður verðum við að hafa
kjark til að horfast í augu við staðreyndir,
bregðast við þeim og leita nýrra leiða að sam-
eiginlegum markmiðum. Göngum til aðildarvið-
ræðna við ESB og leggjum varanlegan grunn að
stöðugleika og uppbyggingu hér á landi. Tökum
höndum saman um að endurreisa Ísland á grund-
velli norrænna velferðargilda. Þannig byggjum
við réttlátt þjóðfélag. Til hamingju með daginn!
Fulltrúar bandaríska verkalýðs-sambandsins lögðu það til árið
1889 á þingi Alþjóðasambands sósíal-
ista í París að 1. maí yrði gerður að
alþjóðlegum baráttudegi verka-
lýðsins. Lagt var til að dagurinn
yrði nýttur til að berjast fyrir átta
stunda vinnudegi og bættum réttind-
um í þágu launþega. Við tók mikið og
metnaðarfullt starf sem skilaði vinn-
andi fólki stórbættum réttindum og
mannúðlegra samfélagi.
STIKLI maður milli frétta af þessum
degi síðustu ár er ekki laust við að
maður finni fyrir hrolli. Það er svo-
lítið táknrænt að það litla sem minnir
lesanda Fréttablaðsins á sögu þessa
dags árið 2005 er auglýsing frá VR.
Í henni er fólk hvatt í göngu og að
henni lokinni boðað í kaffi á Broad-
way. Á sömu síðu er fréttaskýring á
því hve mikið KB-bankamenn höfðu
grætt á þeim tveimur árum sem þá
voru liðin frá einkavæðingu. Rætt
var við þá bankastjóra Hreiðar Má
Sigurðsson og Sigurð Einarsson, sem
sögðu hæversklega frá því að þetta
væri viðunandi árangur auk þess
sem þeir sögðu frá næstu landvinn-
ingum sínum í viðskiptum. Eflaust
hefur verkalýðsleiðtoganum í VR og
stjórnarmanni Kaupþings, Gunnari
Páli Pálssyni, þótt skemmtilegt að
sjá að fyrirtækin tvö sem greiddu
honum svo rífleg laun lentu á sömu
síðu.
1. MAÍ 2006 ríkti ótti við útbreiðslu
fuglaflensu, Bakkavararbræður
keyptu eitthvert eftirréttafyrirtæki
í Bretlandi fyrir 18 milljarða, Silvía
Nótt trekkti að á netinu, VR hvatti til
virðingar og réttlætis og lögfræði-
stofa borgaði rúmar áttatíu milljón-
ir fyrir hús sem átti að kosta helm-
ingi minna.
1. MAÍ ÁRIÐ 2007 er Bjarni
Ármanns skellihlæjandi á forsíðu-
mynd Fréttablaðsins í tilefni af
því að hann var að láta af störfum
hjá Glitni með gríðarlega ríflegan
starfslokasamning. Þann dag bár-
ust þó einnig fréttir af veikindum
starfsmanna á Kárahnjúkum vegna
bágra vinnuaðstæðna, sagt var frá
því að fjármálaráðherra hefði tekið
tilboðið Geysis Green í Hitaveitu
Suðurnesja og kröfugönguna notaði
sælgætisframleiðandinn til að taka
upp auglýsingar fyrir Tópas.
1. MAÍ ÁRIÐ 2008 var forsíðu-
fyrirsögnin í Fréttablaðinu: Neyðar-
ástandi aflýst, en þann dag höfðu
hjúkrunarfræðingar ákveðið að
ganga út vegna óánægju sinnar með
sparnaðaraðgerðir á Landspítalan-
um, rætt var um framboð í Öryggis-
ráðið og William Fall, forstjóri
Straums Burðaráss, sagði gleðiefni
að á fyrsta ársfjórðungi hefði náðst
2,6 milljarða hagnaður þrátt fyrir
aukna erfiðleika á fjármálamörk-
uðum.
Tímarnir breytast.
1. maí