Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2009, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 11.05.2009, Qupperneq 4
4 11. maí 2009 MÁNUDAGUR „Mér líst vel á að hafa þau Gylfa og Rögnu áfram,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingflokks- formaður Borg- arahreyfing- arinnar. Meiri friður geti verið um ópólit- íska ráðherra. Birgitta seg- ist einnig til- tölulega ánægð með að tillaga um aðildarviðræður að Evr- ópusambandinu verði útkljáð á Alþingi. „Ég held að það sé skásta lausn- in eins og staðan er í dag,“ segir hún. Þjóðin þoli ekki meiri skot- grafahernað um stór mál sem þetta. „Og við viljum að stofnun verði sett á laggirnar, sem miðli ópólitískum upplýsingum um ESB-aðild til almennings.“ - kóþ Bót í máli Átt þú rétt á slysabótum? Fyrsta flokks ráðgjöf um bótarétt vegna slysa - þér að kostnaðarlausu S L Y S A B Æ T U R Sími: 520 2900 landslog.is NÝ RÍKISSTJÓRN BIRGITTA JÓNS- DÓTTIR Gott að hafa Gylfa og Rögnu VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 26° 16° 14° 17° 16° 24° 14° 14° 20° 13° 26° 20° 33° 14° 21° 16° 11° Á MORGUN Sunnan 5-10 m/s, en 10-15 vestan til. MÁNUDAGUR Fremur hæg SA-átt, hvassast SV-til. 8 8 7 12 11 13 12 9 8 9 3 14 13 16 15 13 9 7 7 9 7 15 11 12 14 13 12 18 12 13 16 12 11 HLÝINDI Það má segja að það verði snemmbúin hitabylgja í vikunni með tveggja stafa hitatölum um nánast allt land og allt að 18 stiga hita norðaustan- lands. Næstu daga verður sannkallað sumarveður norð- austanlands en á suðvesturhorninu verður hvassara og þungbúið. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður „Það væri betra hjá þeim að þjóð- nýta fyrirtækin strax í stað þess að fara þessa leið og eyðileggja þau þannig,“ segir Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann er afar ósáttur við það að ríkisstjórnin skuli ætla að inn- kalla veiðiheimildir á 20 árum og segir útgerðarfyrirtækin ekki þola það. „Það er miðað við að þetta taki gildi 1. september 2010 og það er okkar verkefni núna að sannfæra fólkið um hversu skaðvænlegt þetta er.“ Hann segir enn fremur að markmiðin sem sett eru upp í stjórnarsáttmálanum gangi hvort gegn öðru. „Það segir að skapa eigi greininni bestu rekstrarskil- yrði sem völ er á og treysta rekstr- argrundvöllinn til langs tíma. En á sama tíma er verið að grafa undan rekstrargrundvellinum og lang- tíma hugsun.“ Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, sagði á blaða- mannafundinum í gær að þessi aðgerð væri vissulega ekki hafin yfir gangrýni en engum dytti í hug að fara í þær ef þær yrðu til þess að sjávarútvegur færi á hausinn og tæki bankana með sér í fallinu eins og útreikningar útgerðarmanna hafa sýnt fram á. „En það er ekki svo að innkallaðar veiðiheimildir hverfi til himna, þeim verður úthlut- að aftur þannig að það er margt við þessar hugmyndir að athuga.“ - jse Væri skárra að þjóðnýta strax FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt- ir forsætisráðherra tilkynnti í gær að Ásta R. Jóhannesdóttir yrði forseti Alþingis. Fráfarandi forseti, Guðbjartur Hannesson, segir tvær ástæður helstar fyrir því að hann hætti. „Ég sækist ekki mjög eftir því [starfinu] og mig langar að vera aktívur í vinnu sem tengist mínu kjördæmi og landinu í heild. Ég vona að ég fái tækifæri til þess í nefndastarfi.“ Hin ástæðan sé sú að Samfylkingin styðjist við reglur um jafnt kynjahlutfall „sem ég styð eindregið“. - kóþ Vill þjóna sínu kjördæmi betur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar býst við að ESB-tillagan verði samþykkt á Alþingi. Samfylkingu einni verði þó aldrei falið að semja fyrir Íslands hönd. Það að stjórnin ætli stjórnar- andstöðunni að leysa úr svo mikilvægu máli geri nýaf- staðna stjórnar- myndun líklega þá döprustu á lýðveldistím- anum. „Ég óska þessari stjórn vel- farnaðar en er mjög svartsýnn,“ segir Sigmundur. Mikið vanti upp á raunhæfar aðgerðir í þágu heimila og fyrirtækja. - kóþ ESB-tillaga lík- lega samþykkt SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON Fráfarandi ráðherra og fyrrver- andi þingmaður, Kolbrún Hall- dórsdóttir, segist sátt við sín verk í umhverfisráðuneytinu. Hún líti svo á að með þingmennskunni hafi hún klárað tíu ára strembið meistaranám, og nú ætli hún að taka sér sinn tíma til að ákveða doktorsverk- efnið. „Ég er sann- færð um að örlaganornirn- ar spinna eitt- hvað,“ segir hún. Kolbrún hefur verið orðuð við nýlega auglýst starf Þjóðleik- hússtjóra en vill ekki segja hvort hún sæki um. Hún viti ekki hvort Tinna Gunn- laugsdóttir haldi áfram. „Það er ekki auðvelt að sækja um á móti sitjandi leikhússtjóra,“ segir hún. - kóþ Sátt við verk sín KOLBRÚN HALL- DÓRSDÓTTIR Þáttaskil eru í utanríkisstefnu Íslands við ákvörðun ríkisstjórn- ar Samfylkingarinnar og VG um að leggja fram tillögu á Alþingi um að sækja um aðild að Evrópusam- bandinu. Utanríkisráðherra mun leggja tillöguna fram á fyrstu starfsdög- um þingsins en þingsetning verður á föstudag. Í stjórnarsáttmálanum segir að víðtækt samráð verði á vett- vangi Alþingis og við hagsmuna- aðila um samningsmarkmið og umræðugrundvöll viðræðnanna. Enn fremur er tekið fram að stuðn- ingur stjórnvalda við samninginn, þegar hann liggur fyrir, sé háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöð- una út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða- og gjaldmiðilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og út frá almannaþjónustu. Andrési Péturssyni, formanni Evrópusamtakanna, lýst ágætlega á þessa fyrirætlan ríkisstjórnar- innar. „Þegar til lengri tíma er litið er eflaust betra að þingið fái að tjá sig um málið svo það fari þá með blessun þess. Ég vona bara að menn leggist ekki í málþóf.“ Andrés er bjartsýnn á að tillaga um aðildarviðræður verði sam- þykkt og sömuleiðis að samningur við Evrópusambandið verði okkur hliðhollur. „Ef hann verður slæm- ur þýðir það bara að ESB vill ekki fá okkur inn.“ Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, er ósáttur við áform ríkisstjórnarinnar. „En þarna eru fimm þingmenn sem eru ákveðnir í að greiða atkvæði á móti og þeir geta orðið fleiri. Það stefnir í mikið samningaþóf,“ segir hann og minn- ir á að afstaða stjórnarandstöðunn- ar sé ekki einhlít heldur. Ragnar telur samskiptum Íslands og ESB teflt í hættu. „Það er vafalaust ekki hægt að gera samskiptum ESB og Íslands jafn mikinn grikk og þann að fara í aðildarviðræður og fella samninginn svo í þjóðaratkvæða- greiðslu. Þetta hefur komið Norð- mönnum í koll.“ bjorn@frettabladid.is Víðtækt samráð um samningsmarkmið Tillaga um aðildarumsókn að Evrópusambandinu verður lögð fram á Alþingi. Stuðningur stjórnvalda við aðildarsamning verður háður ýmsum fyrirvörum. „Mér líst vel á fólkið og óska því velfarnaðar því mikið liggur við,“ segir Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, vara- formaður Sjálfstæðis- flokksins. „Mér þykir nöturlegt að heyra að það eigi að ríkis- væða einu atvinnugrein- ina sem er nokkurn veginn í lagi þó hún eigi í erfiðleik- um. Eins þykir mér ljóst að þau hafa ekki komið sér saman í Evr- ópumálinu, í raun teldi ég eðlilegt að við hefðum fengið að heyra hvernig þessi þingsályktunartil- laga á að hljóma en það er eflaust enn verið að deila um það.“ - jse Fyrning kvót- ans er nöturleg ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Stjórnarsáttmálinn um ESB Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í hönd- um íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðaratkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusamband- inu á vorþingi. Stuðningur stjórnvalda við samninginn þegar hann liggur fyrir er háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöðuna út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbún- aðar-, byggða- og gjaldmiðilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og út frá almannaþjónustu. Víðtækt samráð verður á vettvangi Alþingis og við hagsmunaaðila um samningsmark- mið og umræðugrundvöll viðræðn- anna. Flokkarnir eru sammála um að virða ólíkar áherslur hvors um sig gagnvart aðild að Evrópusamband- inu og rétt þeirra til málflutnings og baráttu úti í samfélaginu í samræmi við afstöðu sína og hafa fyrirvara um samningsniðurstöðuna líkt og var í Noregi á sínum tíma. VIRÐA ÓLÍKAR ÁHERSLUR HVORS UM SIG STJÓRNARSÁTTMÁLINN KYNNTUR Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðar- dóttir kynntu nýjan stjórnarsáttmála í Norræna húsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GENGIÐ 08.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 206,1237 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,08 125,68 188,18 189,10 167,61 168,55 22,498 22,630 19,331 19,445 15,913 16,007 1,2571 1,2645 187,82 188,94 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.