Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 6

Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 6
6 11. maí 2009 MÁNUDAGUR Ætti lögreglan að koma í veg fyrir rekstur fríbúðar við Vatnsstíg? Já 59,2 Nei 40,8 SPURNING DAGSINS Í DAG: Líst þér vel á nýja ríkisstjórn? Segðu skoðun þína á Vísi.is NÝ RÍKISSTJÓRN Ný ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðar- dóttur ætlar að leiða til öndvegis ný gildi jöfnuðar, félagslegs réttlætis, samhjálpar, sjálfbærrar þróunar, kvenfrelsis, siðbótar og lýðræðis. Hún ætlar að skapa norrænt vel- ferðarsamfélag þar sem almanna- hagsmunir eru teknir fram yfir sérhagsmuni. Byrðum vegna ástands efnahags- mála segist stjórnin ætla að dreifa með sanngirni, jöfnuð og réttlæti að leiðarljósi. Fyrstu kaflar sautján blaðsíðna samstarfsyfirlýsingar ríkisstjórn- ar Samfylkingarinnar og VG fjall- ar um efnahagsmál, ríkisfjármál og vanda fólks og fyrirtækja. Tiltekið er að ástandið kunni að versna enn frekar áður en það batnar aftur og áhersla lögð á að samfélagið allt þurfi að vinna saman að lausn vandans. Allir þurfi að leggja sitt af mörkum, í réttu hlutfalli við getu. Peningastefnan metin Meginverkefni ríkisstjórnarinnar á sviði efnahagsmála er að ná aftur jafnvægi í rekstri ríkissjóðs, endur- reisa fjármálakerfið, ná þjóðarsátt um lykilmarkmið og viðamiklar efnahagsráðstafanir og sátt við nágrannalönd eftir hrun fjármála- kerfisins. Trúverðug efnahags- áætlun og stefnumörkun í ríkisfjár- málum til fjögurra ára eru sagðir hornsteinar efnahagsstefnunnar. Peningastefnunefnd Seðlabank- ans verður falið að fara yfir kosti og galla þess að breyta peninga- stefnunni og meta kostina í gjald- miðilsmálum og Seðlabankinn á að meta hvernig best verði dregið úr vægi verðtryggingarinnar. Ríkisstjórnin hefur það að mark- miði að koma í veg fyrir að tíma- bundinn greiðsluvandi leiði til vanskila og gjaldþrots og ætlar í því skyni að hækka vaxta- og húsaleigubætur. Lykilatriðið er að tryggja húsnæðisöryggi. Í stjórnarsáttmálanum segir að ríkisstjórnin ætli að kanna kosti til aukinnar tekjuöflunar ríkis- sjóðs í samráði við hagsmunaaðila og með hliðsjón af reynslu þeirra landa sem glímt hafa við svipaða erfiðleika. Lykilatriði er að aukin skattheimta leggist frekar á þá sem betur eru í stakk búnir til að bera auknar byrðar en verði þó ekki til þess að draga úr möguleikum fólks til að vinna sig út úr þeim erfiðleik- um sem fram undan eru. Kynna á áætlun um jafnvægi í ríkisfjármálum í sumarbyrjun. Laun lækkuð og afnumin Ríkisstjórnin ætlar, í sparnaðarað- gerðum sínum, að efna til víðtæks sparnaðarátaks í ríkiskerfinu öllu og gæta ítrasta aðhalds í rekstri. Lækka á eða afleggja þóknanir fyrir nefndir, hömlur verða settar á aðkeypta ráðgjafarþjónustu og engin ríkislaun eiga að vera hærri en laun forsætisráðherra. Það felur í sér launalækkun í stofnunum og fyrirtækjum á borð við Ríkisút- varpið ohf. og Íbúðalánasjóð. Heilbrigðisþjónustan verður tekin til endurskoðunar með það að markmiði að draga úr kostnaði og nýta fé skynsamlega. Tíu liða áætlun um átak til atvinnusköpunar er að finna í stjórnarsáttmálanum og tólf liða áætlun um sóknarstefnu til fram- tíðar. Kvótinn innkallaður Á kjörtímabilinu á að leggja grunn að innköllun og endurráðstöfun aflaheimilda á 20 ára tímabili og er stefnt að því að innköllun og endurráðstöfun taki gildi á næsta ári. Styrkja á stöðu umhverfisverndar innan stjórnarráðsins og kannaður verður grundvöllur þess að leggja á umhverfisgjöld tengd ferðaþjón- ustu. Þá á að stuðla að gagnsæi í orkusölusamningum og leita leiða til að aflétta leynd af orkuverði til erlendra stóriðjufyrirtækja. Stjórnin vill stjórnlagaþing Ítarlega er fjallað um lýðræði og mannréttindi í stjórnarsáttmál- anum og meðal annars um skipan stjórnlagaþings. Frumvarp um það verður lagt fram á vorþingi sem sett verður á föstudag. Þá verður líka lagt fram frumvarp um persónukjör auk þess sem kosningalögin verða endurskoðuð með það að mark- miði að jafna vægi atkvæða. Lög um skipan dómara verða einnig endurskoðuð. Í stjórnarsáttmálanum er lögð áhersla á sjálfstæða utanríkis- stefnu Íslands og kveðið á um end- urskoðun á starfsemi Varnarmála- stofnunar. Skapa á norrænt velferðarsamfélag Ríkisstjórnin varar við að efnahagsástandið kunni að versna áður en það batnar aftur. Hún heitir því að standa vörð um velferð í þrengingunum fram undan. Ríkisstjórnin fagnar frumkvæði aðila vinnumarkaðarins að samráði og samstöðu um stöðugleikasáttmála og ætlar að ná samstöðu um: ■ Áætlun um að skapa skilyrði fyrir afnámi gjaldeyrishafta og hraða lækkun vaxta. ■ Hagstæð rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki þannig að störf verði varin og aðstæður skapaðar fyrir fjölgun þeirra á ný. ■ Markmið í ríkisfjármálum í samræmi við sameiginlega áætlun stjórnvalda og AGS. ■ Að verja velferðar- kerfið eins og kostur er. Forsenda ofangreindra markmiða er að góður og jafn hagvöxtur náist. Til að það sé hægt þarf að: ■ Auka traust og trú á íslenskt efnahagslíf. ■ Örva innlendar fjárfestingar í atvinnulífinu. ■ Stuðla að beinum erlendum fjárfestingum. ■ Koma á eðlilegum lánaviðskiptum við erlenda banka. SAMSTAÐA UM STÖÐUGLEIKASÁTTMÁLA Ríkisstjórnin ætlar að fækka ráðuneytum úr tólf í níu á kjörtímabilinu og færa málaflokka til á milli ráðuneyta. Forsætisráðuneytið fær aukið forystu-, verk- stjórnar- og samræmingarhlutverk. Í nýju efnahags- og viðskiptaráðuneyti verður almenn hagstjórn, lagaumgjörð og eftirlit með fjár- málamarkaði og mat á þróun og horfum í efnahags- málum. Nýtt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti verður til með sameiningu sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins. Nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti tekur yfir öll verkefni er lúta að auðlindum. Til fjármálaráðuneytisins færist öll eignaumsýsla ríkisins, sem nú er dreifð á mörg ráðuneyti. Nýtt ráðuneyti mennta- og menningarmála tekur meðal annars yfir umsjón menningarstofnana og verkefna er nú heyra undir forsætisráðuneyti. Utanríkisráðuneytið fær aukið hlutverk á sviði alþjóðlegra viðskipta- og fjárfestingarsamninga auk þess sem Norðurlandaskrifstofa flyst þangað. Nýtt ráðuneyti samgöngu- og sveitarstjórnarmála fær aukið vægi við eflingu sveitarstjórnarstigsins og stefnumótun á sviði byggðaþróunar. Í nýju ráðuneyti mannréttinda- og dómsmála verða verkefni á sviði lýð- og mannréttinda. Þangað færast líka neytendamál. Ráðgert er að samgöngu- og sveitarstjórnaráðu- neyti og mannréttinda- og dómsmálaráðuneyti verði sameinuð í nýtt innanríkisráðuneyti fyrir lok kjör- tímabilsins. Ráðuneytum fækkað úr tólf í níu Marka á skýra stefnu um fram- tíðaráherslur ríkisins sem eig- anda bankanna, meðal annars um eignarhald þeirra. Gæta á þess að yfirtaka ríkisbanka á fyrir- tækjum skekki ekki samkeppnis- stöðu á markaði og tryggja á fag- legt og gagnsætt söluferli þeirra. Settar verða reglur sem tak- marka útlán banka á uppgangs- tímum og skylda þá til að leggja fyrir þegar vel gengur. Herða á reglur um lánveitingar til eins og sama aðila og um lán til tengdra aðila. Þá á að koma í veg fyrir að hér geti aftur þróast kaup- aukakerfi sem leiði til mikillar áhættusækni banka. Bankareglur AÐ BESSASTÖÐUM Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, ók á gamla Volvónum sínum til ríkisráðsfundar á Bessastöðum í gær. Ný stjórn segist ætla að skapa norrænt velferðarsamfélag á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.