Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 11

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 11
MÁNUDAGUR 11. maí 2009 Mallorca EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stórefla Ráðgjaf- arstofu um fjármál heimilanna í samstarfi við bankana, Sam- band íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Íbúðalána- sjóð. Aðsókn eftir ráðgjöf hefur þrefaldast frá því í apríl. Elstu umsóknirnar eru frá því í byrjun apríl en vonir standa til að Ráð- gjafarstofan nái að vinna á biðlist- anum á fjórum vikum. Starfsemi Ráðgjafarstofunnar verður tvöfölduð og ný starfsstöð opnuð við Sóltún 26 í Reykjavík í lok vikunnar. Stefnt er að því að fólk geti gengið þar inn af götunni og fengið ráðgjöf strax . Bankarnir leggja til húsnæði, skrifstofubúnað og tölvur. Rafræn eyðublöð verða tekin í gagnið. Miðað er við að átta til tíu starfsmenn starfi á starfsstöð- inni í Sóltúni. Fjórum stöðugild- um verður einnig bætt við í höfuð- stöðvum Ráðgjafarstofunnar við Hverfisgötu. Borgin og bankarnir leggja til einn til þrjá starfsmenn tímabundið auk þess sem ráðnir verða starfsmenn af atvinnuleys- isskrá. Ásta Sigrún Helgadóttir, for- stöðumaður Ráðgjafarstofunn- ar, segir að fjármálaráðgjöf sé flókin, byrja þurfi á því að þjálfa starfsmenn. Þá verður farið í átak til að kynna þau úrræði sem stjórnvöld hafa komið á fót fyrir þá sem eru í greiðsluerfiðleikum. Gylfi Magnússon viðskiptaráð- herra segir að mikilvægt sé að fólk notfæri sér þau úrræði sem séu í boði eftir því sem þörf sé á. „Við hvetjum fólk eindregið til að afla sér upplýsinga um hvað er í boði og leita svo ráðgjafar,“ segir hann. - ghs Stórefla á Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna: Ný starfsstöð verð- ur opnuð í Sóltúni AUGLITI TIL AUGLITIS Ríkisstjórnin tvöfaldar Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fólk getur gengið beint inn af götunni og fengið ráðgjöf augliti til auglitis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.