Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 12

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 12
12 11. maí 2009 MÁNUDAGUR Eiríkur Steingrímsson, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands, hlaut á dögunum ein stærstu verð- laun sem veitt eru á sviði læknisfræði hér á landi. Eiríkur hefur rannsakað stjórnprótein í litfrumum músa sem kemur líka við sögu í myndun sortuæxla í mönnum. Hann segir mikið að gerast á sviði þroskunar- fræða um þessar mundir og að rannsóknir undanfarinna fimm ára muni hafa mikil áhrif í leitinni að lækningu og meðferð við sortuæxlum á næstu árum. „Þetta er gríðarleg viðurkenn- ing fyrir starfið sem við erum að vinna og fyrir mig að vera valinn úr,“ segir Eiríkur Steingrímsson, prófessor í læknisfræði, sem hlaut verðlaun úr verðlaunasjóði Árna Kristinssonar og Þórðar Harð- arsonar á sviði læknisfræði og skyldra greina. Verðlaunin voru afhent á árs- fundi Landspítalans miðvikudag- inn 5. maí. Verðlaunin eru þau stærstu sem veitt eru fyrir vís- indastörf hér á landi, en verð- launaféð nemur 2,5 milljónum króna. Mýs og menn Sérsvið Eiríks liggur á sviði líf- efna- og sameindalíffræði. Rann- sóknir hans fjalla einkum um starfsemi og hlutverk stjórnprót- einsins Mitf í músum, sem er nauðsynlegt fyrir eðlilega þrosk- un nokkurra mismunandi frumu- gerða, til dæmis litfrumna húðar og augna auk beinátsfrumna. Prótein þetta kemur einnig við sögu í myndun sortuæxla. „Það sem við erum að gera kallast þroskunarfræði,“ útskýr- ir Eiríkur, „þar sem við rannsök- um hvernig þroskun fer fram. Við reynum að skoða hvernig tiltekn- ar frumugerðir verða til á tiltekn- um stað í líkamanum og hvernig þær haldast sérhæfðar. Til þess einblínum við á ákveðna frumu- gerð, litfrumurnar, sem búa til litinn í húð og hári. Ástæðan er sú að litfrumur eru sýnilegar og ólíkt flestum öðrum frumum getum við verið án þeirra, til dæmis albin- óar.“ Eiríkur segir að breytingar á litfrumum í músum hafi gert það að verkum að til er orðinn fjöld- inn allur af stofnum af afbrigði- lega litum músum. Það er meðal annars þekkt áhugamál að safna slíkum músum. Hann sé lík- lega í hópi þeirra sem haldinn sé slíkri „músadellu“. „Þarna erum við því með frumugerð sem við getum leikið okkur með, breytt á alls konar hátt og við sjáum alltaf afleiðingarnar. Við getum rakið okkur fram og til baka; séð hvaða áhrif breytingar á þessu geni hafa og svo framvegis. Þetta er ástæðan fyrir því að við vinn- um með litfrumur; það eru ekki margar aðrar frumur í hryggdýr- um sem hægt er að rannsaka jafn nákvæmlega því við getum ekki verið án þeirra.“ Gefur góða von um meðferð við sortuæxlum En hvaða hagnýta læknisfræði- lega tilgangi þjóna slíkar rann- sóknir? „Litfrumurnar eru frum- urnar sem valda sortuæxlum,“ svarar Eiríkur. „Allur skilningur á þroskun venjulegra litfrumna hefur því gríðarlega þýðingu fyrir þann skilning sem við höfum á sortuæxlum.“ Eiríkur segir mikilvæga hluti að gerast í rannsóknum á sortu- æxlum núna, meðal annars vegna rannsókna á litfrumum í músum. „Rannsóknirnar undanfarin fimm ár ættu að skila miklum árangri á næstu árum. Það er komið í ljós að það er ákveðinn ferill sem skipt- ir máli í langflestum tilfella sortu- æxla. Sortuæxli orsakast af því að stökkbreyting í ákveðnu geni veld- ur því að sameind verður ofurvirk, með þeim afleiðingum að fruman fer að skipta sér óeðlilega mikið, fer úr því að verða venjuleg fruma og verður að stórum, ljótum bletti sem getur borist til annarra líf- færa og leitt til dauða. Rannsókn- ir sýna að sama stökkbreyting- in er á bak við 70 prósent tilfella sortuæxla. Hingað til hefur ekki fundist nein meðferð eða lyf við þessu. En þegar menn vita hvaða boðleið veldur stökkbreytingunni í flest- um tilfellum, er hægt að byrja að þróa lyf sem gengur út á að slökkva á þessu ofurvirka prót- eini. Þá væri hægt að stöðva fram- gang æxlisins og jafnvel lækna það. Núna eru um fimm ár síðan þessi stökkbreyting fannst og hjá stóru lyfjafyrirtækjunum hefur verið ráðist í öflugar rannsóknir til að þróa lyf sem verka á þenn- an feril.“ Að þessu leyti skipti íslensku rannsóknirnar máli því ferillinn sem veldur sortuæxlum hefur ein- mitt mikil áhrif á Mitf-stjórnprót- einið, sem Eiríkur hefur sérhæft sig í. Féll fyrir ávaxtaflugunni Eiríkur ákvað að leggja fyrir sig þroskunarfræði þegar hann hélt til Bandaríkjanna í framhaldsnám, en þá var að verða mikil sprenging í greininni með tilkomu erfðafræð- innar. Hann lauk doktorsprófi frá UCLA í Kaliforníu en rannsóknir hans þar beindust að fósturþrosk- un ávaxtaflugunnar Drosophila melanogaster. „Áður fyrr gekk þroskunarfræði fyrst og fremst út á að lýsa þrosk- un. Hún svaraði hins vegar ekki hvað var að gerast þegar þroskun átti sér stað. Það breyttist með til- komu erfðafræðinnar og hægt var að skoða áhrif gena á þroskunina. Ávaxtaflugan var fyrsta líf- veran sem notuð var í þeim til- gangi. Vísindamenn stökkbreyttu genum hennar skipulega og könn- uðu áhrifin. Þannig tókst að kort- legga langflest gen sem hafa áhrif á þroskunina, allt frá frjóvguðu eggi upp í fullvaxna lífveru.“ Þetta hafði feikileg áhrif á rannsóknir á sjúkdómum manna. „Ávaxtafluga er ekki merkileg á að líta en flest gen sem hafa fund- ist sem stjórnendur í ávaxtaflugu eru líka til staðar í manninum; langflest genanna sem spila rullu í krabbameinum manna hafa fyrst fundist í ávaxtaflugu.“ Að loknu námi sneri Eiríkur sér hins vegar að rannsóknum á litar- frumum í músum. Virkt vísindastarf á Íslandi Eiríkur segir að í alþjóðlegum samanburði nái Ísland sannar- lega máli á sviði lífvísinda og gott betur. Miðað við stærð samfé- lagsins sé sú mikla virkni á þessu sviði hér á landi líklega einsdæmi í heiminum. Hann segir ágætlega búið að vísindamönnum. „Ástand- ið hefur farið síbatnandi frá því ég kom heim fyrir ellefu árum. Þá voru hæstu einstöku styrkirn- ir frá Rannís ein milljón á ári, nú eru þeir 15 milljónir á ári. En við eigum að vísu eftir að sjá áhrif kreppunnar. Það er þó ýmislegt sem má bæta enn frekar. Lífvísindin krefjast til dæmis mikilla aðfanga, efnavara og þess háttar. Af því þurfum við að borga virðisaukaskatt sem og flutningsgjald. Fyrir vikið borgum við alltaf að minnsta kosti helm- ingi meira en samkeppnisaðilar á Lykillinn í litfrumunum FRÉTTAVIÐTAL: Stjórnprótein í litfrumum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.