Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 16
16 11. maí 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Ferðafélag Íslands, skammstafað FÍ,
býður upp á skipulagðar gönguferð-
ir fyrir barnafólk með barnavagna og
kerrur í þessari viku. Ferðirnar hefj-
ast allar klukkan fjögur, en í dag er
lagt af stað frá Perlunni og gengið um
Öskjuhlíð.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við efnum
til gönguferða sérstaklega fyrir barna-
fólk,“ segir Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri FÍ, og bendir á að þessi
nýjung hjá ferðafélaginu sé liður í því
að ná til stærri og jafnframt yngri
hóps.
„Við hvetjum fólk til að fara út að
ganga með börnin og njóta þess um
leið að vera úti í fallegri náttúrunni
og góðum félagsskap,“ segir Páll og
nefnir að hver gönguferð taki um 75
til 90 mínútur.
En hvaðan kom hugmyndin? „Ég og
Auður, kona mín, eignuðumst strák
í haust og okkur þótti vanta vett-
vang fyrir barnafólk til að hittast. En
norska ferðafélagið hefur staðið að
barnavagnagöngum sem þessum við
miklar vinsældir,“ segir hann og bætir
við að ef viðtökurnar verða góðar eftir
vikuna sé stefnt á að stofna Ferðafé-
lag barnanna.
Að sögn Páls byrja allar göngu-
ferðirnar á stöðum þar sem aðgengi
er gott. Enda þarf að hugsa fyrir öllu
þegar lítil börn eru annars vegar,“
segir hann. „Þetta eru frekar léttar og
þægilegar gönguferðir. Farnar verða
leiðir sem margir hafa örugglega ekki
prófað fyrr. Fólk þorir kannski ekki
að fara í gönguferðir með barnavagna
eða kerrur á staði sem það hefur ekki
farið á áður.“
Þannig hefst ferðin á morgun við Ár-
bæjarlaug og verður farið um Elliða-
árdalinn. Gengið er frá Sundlaug Sel-
tjarnarness og um Gróttu á miðviku-
dag. Gengið verður frá Smáraskóla
í Kópavogi á fimmtudag og í kring-
um Suðurhlíðarnar. Vikunni lýkur
síðan með því að lagt verður af stað
frá Húsdýra- og fjölskyldugarðinum
í Laugardal á föstudag. Gengið verð-
ur um Laugardal og Grasagarðinn og
öllum boðið í Húsdýra- og fjölskyldu-
garðinn.
Undanfarna daga hefur Páll frétt af
fólki sem finnst þetta framtak mjög
spennandi og á hann von á góðri þátt-
töku. Hann bendir sérstaklega á að
ekki þurfi að skrá sig í ferðirnar þar
sem þátttaka sé ókeypis. Allar nánari
upplýsingar eru á heimasíðu Ferðafé-
lags Íslands, www.fi.is. vala@frettabladid.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS: BÝÐUR UPP Á SÉRSTAKAR GÖNGUFERÐIR FYRIR BARNAFÓLK
Léttar og þægilegar göngu-
ferðir fyrir fjölskyldufólk
NÝJUNG FYRIR FJÖLSKYLDUR Páll Guðmundsson og Auður Kjartansdóttir, kona hans, til hægri með barnavagninn í góðum gönguhópi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MERKISATBURÐIR
1721 Kötlugos hefst með jarð-
skjálfta og miklum drun-
um, sem heyrast allt
norður í Eyjafjörð. Gos-
mökkurinn sést víða að.
1777 Hannes Finnsson er vígður
Skálholtsbiskup 38 ára að
aldri. Hann gegnir biskups-
embætti til æviloka.
1911 Knattspyrnufélagið Valur
í Reykjavík er stofnað af
fjórtán drengjum í KFUM.
1946 Slysavarnafélag Íslands
tekur í notkun nýja björg-
unarstöð í Örfirisey í
Reykjavík. Mikill mann-
fjöldi er viðstaddur vígslu
hennar.
1949 Nafni landsins Síam er
breytt í Taíland.
1949 Leikrit Shakespeares,
Hamlet Danaprins, er
frumflutt í Iðnó.
SALVADOR DALÍ FÆDDIST ÞENN-
AN DAG ÁRIÐ 1904.
„Eini munurinn á mér og
andlega veikum manni er
sá að ég er ekki andlega
veikur.“
Salvador Felipe Jacinto Dalí
Domènech var spænskur
listamaður sem aðallega er
þekktur fyrir fíngerð súrreal-
ísk málverk en fékkst líka við
höggmyndalist, ljósmynd-
un og fleira. Hann hafði lag á
að draga að sér athygli vegna
sérviskulegrar hegðunar og
stíls. Dalí lést 23. janúar árið
1989.
Kópavogur er sveitar-
félag og bær á höfuð-
borgarsvæðinu. Bærinn
dregur nafn sitt af vog-
inum sunnan við Kárs-
nes. Sveitarfélagið er hið
næstfjölmennasta á Ís-
landi, með 28.665 íbúa
(2008).
Þar var Kópavogsfund-
urinn haldinn árið 1662,
en allt fram á 20. öld
voru í Kópavogi einung-
is nokkrir bústaðir og býli
og uppbygging hefst þar ekki fyrr en í kreppunni
miklu upp úr 1930.
Svo var það á þessum degi árið 1955 að Kópa-
vogur varð kaupstaður, en hafði sjö árum áður
orðið hreppur við aðskilnað frá Seltjarnarnes-
hreppi. Saga Kópavogs
sem bæjarfélags er því
ekki löng.
Fyrst var kosið í bæj-
arstjórn í október 1955
eftir að kaupstaðarrétt-
indi tóku gildi í maí það
ár. Líkt og í öllum þremur
hreppsnefndarkosningun-
um hélt meirihluti Fram-
farafélagsins um stjórnvöl-
inn eftir það undir forystu
Finnboga Rúts Valdimars-
sonar og það var ekki
fyrr en 1962 að breyting varð á þegar Framsókn-
arflokkurinn gekk í lið með þeim til að mynda
meirihluta og svo síðar Sjálfstæðisflokkurinn.
Undir lok 20. aldarinnar og í byrjun 21. aldar
hófst mikil uppbygging í Kópavogi.
ÞETTA GERÐIST: 11. MAÍ 1955
Kópavogur verður kaupstaður
Börnum félagsmanna í Stangaveiði-
félagi Reykjavíkur er í sumar boðið
að renna frítt fyrir lax í Elliðaán-
um. Að því er segir á vef félagsins
er þetta framhald á venju undanfar-
inna ára.
„Börnin eru sett í hendurnar á
vönum mönnum sem leiða þau í
sannleikann um leyndardóma Ell-
iðaánna og hvernig bera skuli sig að
við veiðarnar,“ segir á svfr.is. „Að
veiðinni lokinni bíður hópsins grill-
veisla við veiðihúsið.“ Einnig kemur
fram að fjórir dagar verði í boði og
að fjöldi þátttakenda sé takmarkað-
ur. - gar
Börnin til veiða í Elliðaánum
VIÐ ELLIÐAÁR Ætlunin er að veiða en ekki
synda í Elliðaánum í sumar.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðný G. Ólafsdóttir (Lóa)
Hæðargarði 35,
lést fimmtudaginn 7. maí. Jarðarförin auglýst síðar.
Hilmar Jónsson Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Reynir Jónsson Kristín Sigurðardóttir
Stefán Úlfarsson Bjarklind Guðlaugsdóttir
Guðný Hrönn Úlfarsdóttir Heimir Helgason
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Stefáns Halldórssonar,
bónda á Hlöðum í Hörgárdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyfjadeildar
Sjúkrahússins á Akureyri og Heimahjúkrunar fyrir
góða umönnun.
Anna Jónsdóttir og fjölskylda.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Helga Hjartardóttir
Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 12.
maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Styrktarsjóð Blindrabókasafns Íslands.
Guðborg Jónsdóttir Þórarinn Lárusson
Örn Jónsson Elín Jóhanna Elíasdóttir
Ólafur Jónsson Guðbjörg Árnadóttir
Bjarni Jónsson Lilja Steinunn Svavarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
Jón Jóhann Haraldsson
Barrholti 11, Mosfellsbæ
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
mánudaginn 11. maí, kl. 15.
Edda Dagbjartsdóttir
Hrannar Jónsson, Kristín Þórðardóttir
Helga Jónsdóttir, Sigurjón Jónsson
Jón Þór Hrannarsson
Kolbrún Sif Hrannarsdóttir
Jón Otti Sigurjónsson
Axel Óli Sigurjónsson