Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 17

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Myndin er bara tekin á venju- legu fimmtudagskvöldi,“ segir Jón Torfi Arason, ríkisstarfsmað- ur og trompetleikari með meiru, og brosir í kampinn. Trompetinn er hans uppáhaldshlutur á heim- ilinu. „Þetta er límið í minni til- veru,“ segir Jón Torfi. „Tromp- etinn hefur fylgt mér sama hvert ég flyt en ég hef átt lúður frá því að ég var um sjö ára gamall. Ég var í Lúðrasveit Stykkishólms og hef tengst alls konar lúðrastandi í gegnum tíðina.“ Jóni Torfa þykir notalegt að hafa ýmis hljóðfæri í kringum sig. „Ég spila ekki sérstaklega mikið á þau öll en gríp þó oft í gítarinn,“ segir hann og bætir við glettinn að annars búi hann í dæmigerðri piparsveinaíbúð. „Hér er tómur ísskápur og mikill þvottur en hljóðfærin eru einna mest áber- andi og safna mismiklu ryki. Ann- ars eru stundum hljómsveitaræf- ingar í stofunni.“ Þessa dagana æfir Jón Torfi stíft með hljómsveitinni Varsjár- bandalaginu en þau munu næst leika á sýningunni Orbis Terræ – ORA sem haldin verður í Þjóð- menningarhúsinu á Listahátíð í Reykjavík. „Ég kom þar inn fyrir stuttu því það vantaði lúður en ég og Sigga Ásta, sem spilar á harmonikku, vorum áður saman í hljómsveitinni Jón og Massey Fergussynir þar sem ég spilaði á gítar. Varsjárbandalagið leikur hins vegar hressa austantjaldstón- list sem hæfir vel sýningunni,“ segir hann en sýningin gengur töluvert út á að áhorfendur taki þátt í leikverkinu. „Þetta snýst um flóttamenn og stríðshrjáða menningu. Gestir fá til dæmis vegabréf sem framvísa þarf á milli herbergja,“ útskýrir hann. „Frumsýningin er 16. maí en sex sýningar eru í boði næstu tvær vikur þar á eftir. Hljómsveitin verður svona hér og þar um húsið og tónlistin er vel til þess fallin að skapa réttu stemninguna bæði í anda og útliti,“ segir Jón Torfi en nánari upplýsingar um Orbis Terræ – ORA má finna á vefsíðu Listahátíðar í Reykjavík, www. listahatid.is. Varsjárbandalagið verður auk þessa með tónleika 28. maí næst- komandi með Hjörleifi Valssyni fiðluleikara og Vadim Fedorov harmonikkuleikara í Bæjarbíói í Hafnarfirði. „En ef fólk vill fá okkur til að spila er hægt að senda tölvupóst á varsjarbandalagid@ mikkivefur.is en svo erum við líka með síðu á Facebook. Það er ágætt að spila stundum annars staðar en í stofunni heima,“ segir Jón Torfi og brosir. hrefna@frettabladid.is Lúðurinn er límið sem heldur tilverunni saman Heimilislíf Jóns Torfa Arasonar er svo sannarlega fjörugt á stundum en hljómsveitin Varsjárbandalagið hittist af og til heima hjá honum og æfir sig. Þar leikur Jón Torfi á trompet sem hefur fylgt honum lengi. Hér mundar Jón Torfi trompetinn góða á æfingu með Varsjárbandalaginu sem mun næst leika á sýningunni Orbis Terræ – ORA í Þjóðmenningarhúsinu. Eins konar flóttamannabúðir verða skapaðar og framinn gjörningur um landamæri og skrifræði í leiksýn- ingu um stríðsmenningu. MYND/ÁSLAUG SNORRADÓTTIR HVÍTIR SOKKAR eiga það til að verða gráir með tímanum. Gott húsráð er að sjóða sokkana í vatni með nokkrum sítrónusneiðum, en sítrónan þykir náttúrulegt bleikiefni. Þá er einnig talið að sápuduft fyrir uppþvottavélar geti hjálpað til að sokkarnir fái sinn upphaflega lit. Meirapróf Upplýsingar og innritun í síma 5670300 NÝTT NÁMSKEIÐ HEFST 13. MAÍ Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.