Fréttablaðið - 11.05.2009, Síða 18
Garðyrkjufræðingarnir Auður I.
Ottesen og Jón Guðmundsson hafa
frá því í febrúar haldið námskeið
í ræktun matjurta, kryddjurta,
berja og ávaxtatrjáa og hafa við-
brögðin verið vonum framar.
„Ég held að við séum búin að
kenna hátt í fjögur hundruð manns
á þessum stutta tíma og man ég
ekki eftir öðrum eins áhuga á
mínum þrjátíu ára ferli sem garð-
yrkjufræðingur. Í góðærinu sýndu
sárafáir áhuga á matjurtarækt og
var kartöflurækt í heimagörðum
nánast aflögð. Nú er svo sannar-
lega annað upp á teningnum og má
kalla þetta ánægjulega afleiðingu
kreppunnar,“ segir Auður.
Á námskeiðunum er farið ítar-
lega í tegundir og ræktun og
hvernig eigi að bera sig að við
íslenskar aðstæður. „Þá förum
við yfir ræktun á svölum, í litlum
görðum, stærri görðum, í sumar-
húsalandinu og í matjurtagörð-
um. Við styðjumst við glærur auk
þess sem við sýnum nauðsynleg
áhöld og plöntur sem búið er að
forrækta. Síðan bjóðum við þeim
sem sækja námskeiðin að senda
okkur spurningar ef þeir lenda í
vandræðum og hafa margir nýtt
sér það.“
Nýtt matjurtanámskeið hefst á
miðvikudag og segir Auður allra
síðustu forvöð að sá grænmet-
isfræi á næstu dögum enda aðal
sáningartíminn í apríl. En þær
plöntur sem þarf ekki að forrækta
og er hægt að sá beint út, eins og
gulrætur, salat og fleira, má sá í
maílok.Á mánudag hefst svo nám-
skeið í ræktun ávaxtatrjáa en um
hana er Jón einna fróðastur. Í
garði sínum á Akranesi, sem er
steinsnar frá flæðarmálinu, rækt-
ar hann epli, kirsuber, plómur og
perur með góðum árangri
„Ég hef verið með tilraunastarf-
semi í garðinum um margra ára
skeið og prófa alls kyns ávexti og
matjurtir. Ég hef viðað að mér
harðgerðum tegundum og reynt að
finna út hvað hentar fyrir íslensk-
ar aðstæður. Það er mikill breyti-
leiki á milli tegunda og eru sumar
fyrirfram vonlausar. Ég reyni
helst að ná í duglegar sortir frá
Norðurlöndunum og Kanada og
prófa mig áfram.“ Jón segir sumar
tegundir harðgerðar og þola allt
að 30 til 40 gráðu frost og því sé
ekki um neinar hitabeltisplöntur
að ræða. „Mörg epla- og kirsu-
berjatré þrífast ágætlega norður
fyrir heimskautsbaug í Noregi og
vantar í raun bara tiltrúna hér á
Íslandi.“ vera@frettabladid.is
Matjurtarækt í kreppunni
Áhugi á matjurtarækt hefur aukist til muna ef marka má aðsókn í græn námskeið garðyrkjufræðinganna
Auðar I. Ottesen og Jóns Guðmundssonar sem kenna ræktun matjurta, kryddjurta, berja og ávaxtatrjáa.
Garðyrkjufræðingarnir Jón og Auður í garði Auðar við kirsuberjatré sem er alveg að
fara að springa út. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ULLARSELIÐ Á HVANNEYRI er verslun með vandað
handverk og ullarvörur úr íslenskri ull. Ullarselið er opið á
sumrin alla daga frá 12 til 18 www.ull.is
Stóll úr smiðju Marc Newson var
seldur á dögunum fyrir 1,1 millj-
ón punda sem er metverð.
Álstóllinn Lockheed Lounge frá
árinu 1988 eftir hönnuðinn Marc
Newson komst í fréttirnar fyrst
þegar söngkonan Madonna not-
aði hann í tónlistarmyndband árið
1999 fyrir lag sitt Rain. Hann var
seldur fyrir skömmu á uppboði í
London fyrir 1,1 milljón punda eða
um 208 milljónir króna. Þetta er
talið hæsta verð sem fengist hefur
fyrir nútímahönnunarverk.
Uppboðið fór fram hjá Phillips
de Pury & Co en stóllinn hafði
verið metinn á um 500 þúsund til
700 þúsund pund. Hæsta boðið
barst frá ónefndum aðila í gegn-
um síma. Forvitnilegt er að stóll-
inn var fyrst boðinn upp árið
1999 en þá vildi enginn kaupa
en matsverð var þá um 50 þús-
und pund.
Marc Newson er ástralskur
hönnuður sem starfar í Lond-
on. Verk hans þykja einstök enda
fékkst einnig toppverð fyrir tvö
önnur verka hans. Í júní 2006 var
álíka dívan seldur hjá Sotheby í
New York fyrir 968 þúsund doll-
ara og enn eitt verkið á svipuð-
um nótum seldist hjá Christie‘s í
London í október árið 2007 fyrir
748 þúsund pund.
Frétt af www.designws.com
Toppverð fyrir stól
Spænski hönnuðurinn
og listamaðurinn Jaime
Hayon kynnti nýja hús-
gagnalínu á nýafstaðinni
húsgagnaráðstefnu í Mílanó.
Þetta er fyrsta samstarfsverk-
efni Hayon við ítalska hús-
gagnaframleiðandann Cecc-
otti.
Nýr stóll frá Heyon
JAIME HAYON OG CECCOTTI
KYNNTU AFRAKSTUR SAM-
STARFS SÍNS Í MÍLANÓ Á
DÖGUNUM.
Álstóllinn Lockheed
Lounge seldist á
metverði.
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
VIKUNA 11. – 15. MAÍ
Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra
atburða á andlega líðan fólks. Tími: 12.30-14.00.
CCP á Íslandi - Helstu vörur CCP verða kynnar þá sér-
staklega EVE Online en einnig verður fjallað um í hverju
vinna hjá fyrirtækinu felst en CCP er að fjölga starfs-
mönnum hjá sér. Tími: 14.00-14.30.
Prjónahópur - Við ætlum að koma saman, prjóna, hekla,
fá okkur kaffi og hafa það notalegt. Tími: 13.00-15.00.
Gítarnámskeið fyrir byrjendur - Láttu drauminn rætast
og dustaðu rykið af gítarnum. Sex vikna námskeið. Farið
verður í undirstöðuatriði vinnukonugripanna og gítarinn
stilltur og yfirfarinn. Skráning nauðsynleg. Tími: 15.00-16.00.
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Grundvallaratriði kínverskrar matargerðar Helstu
hráefni og aðferðir kínverskrar matargerðar kynntar.
Smakk í lokin. Tími: 12.30-14.00.
Áhugasviðskönnun Ef þú hefur ákveðið starf eða
nám í huga getur könnunin staðfest hugmyndir þínar.
Skráning nauðsynleg. Tími: 13.00-14.30.
Tímaskipulag og markmið Hagnýtt námskeið þar
sem hver og einn fær leiðbeiningar og aðstoð við að
skipuleggja tímann sinn.Tími: 14.30-15.30.
Verkefni Rauða kross Íslands Stutt kynning og
umræður um helstu verkefni félagsins hér á landi.
Tími: 15.30-16.30.
Ræktun krydd- og matjurta - Hagnýtar leiðbeiningar
um ræktun og meðhöndlun helstu krydd- og matjurta.
Tími: 13.00-16.00.
Tölvuaðstoð - Komdu í heimsókn og fáðu persónulega
aðstoð. Tími: 13.30-15.30.
Bókaklúbbur - Spjallað um bókina "Kvenspæjarastofa
númer 1" eftir Alexander McCall Smith. Tími: 14.00-15.00.
Gönguhópur - Stafganga Tími: 15.00-16.00.
Slökun og öndun - Tími: 16.30-17.00.
Föstudagurinn 15. maí
Föndur, skrapp myndaalbúm - Lærðu að búa til
skrautleg og skemmtileg albúm. Tími: 13.00-15.00.
Uppeldi sem virkar; færni til framtíðar - Foreldra-
námskeið (þriðji hluti af þremur). Tími: 13.00-15.00.
Jóga - Viltu prufa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Starf með hælisleitendum á Íslandi - Sjálfboða-
liðar óskast! - Kynning á sjálfboðaliðaverkefni hjá Hafnar-
fjarðardeild. Um er að ræða verkefni með hælisleitendum,
s.s. heimsóknarþjónustu, félagsstarf og réttindagæslu.
Krefjandi verkefni fyrir 23ja ára eða eldri með góða tungu-
málakunnáttu. Tími: 16.00-17.00.
Bingó - Ókeypis bingó og veglegir vinningar í boði. Allir
velkomnir. Heitt kaffi á könnunni og vöfflur í boði hússins.
Tími: 13.00-15.00.
Hláturjóga - Hláturjóga getur hjálpað til við að auðga
lífið. Tími: 15.30-16.30.
Mánudagurinn 11. maí
Þriðjudagurinn 12. maí
Miðvikudagurinn 13. maí
Fimmtudagurinn 14. maí