Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 22

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 22
● fréttablaðið ● fasteignir6 11. MAÍ 2009 F asteignaskrá Íslands tók nýlega saman upplýsingar um fjölda makaskiptasamninga sem þinglýst var á höfuðborgarsvæðinu frá júní 2006. Með makaskiptasamningi er átt við kaupsamning um fasteign þar sem hluti kaupverðs er greidd- ur með annarri fasteign. Árið 2007 voru makaskiptasamn- ingar 201 talsins en árið 2008 voru þeir 471. Fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 voru gerðir 178 makaskipta- samningar. Á grafi á heimasíðu Fasteigna- skrár er tilgreint hlutfall makaskipta í kaupsamningum um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Þar sést greinileg fjölgun í slíkum samning- um frá árinu 2008. Einnig má sjá að slíkir samningar voru fjölmargir á árunum 1994 til 1996 en fó þá fækkandi. Slíkir samningar virðast hafa verið mjög fáir á árunum 1999 til 2006. Heimild: Frétt af vefsíðu Fast- eignaskrár www.fasteignaskra.is Fjölgun maka- skiptasamninga Fjöldi makaskipasamninga rúmlega tvöfaldaðist milli áranna 2007 og 2008. F ornverkaskólinn heldur tvö námskeið í sumar í viðgerðum á torfbæjum. Á námskeiðunum verður fjallað um viðgerðir og breytingar á eldri byggingum og mannvirkjum úr timbri og torfi. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að varðveita byggingasögulegt gildi húsa, á sama tíma og reynt er að koma til móts við kröfur nútímans um endingu. Farið er yfir lög og reglugerðir um húsafriðun, varð- veislu, byggingasögu, menningar- verðmæti, tæknilegar endurbætur, efnisval, fúa, veðrun, viðgerðir á grind, deililausnir, ástandskönnun og frágang. Fyrra námskeiðið verður haldið á Tyrfingsstöðum í Skagafirði 8. til 12. júní 2009. Á námskeiðinu verður framhús torfbæjarins á Tyrfingsstöð- um tekið niður. Síðara námskeiðið verður haldið á sama stað 31. ágúst til 4. september 2009. Haldið verður áfram með viðgerðir og framhúsið reist. Kennari er Bragi Skúlason húsa- smíðameistari ásamt fleirum. Frétt af vef Húsafriðunarnefndar. Kennt að gera við torfkofa Við upphaf verks að Tyrfingsstöðum. Lind

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.