Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 24

Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 24
 11. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● hús og viðhald Gyrðir og Gerður eru íslensk nöfn og viðeigandi fyrir ís- lenska skjólveggi til notkunar í görðum sem nú er hægt að kaupa í Húsasmiðjunni. Þeir eru hannaðir af íslenskum arkitekt Ragnhildi Skarphéðins- dóttur í samstarfi við verslun- ina og að sögn Einars Sveinsson- ar rekstrarstjóra var hvatinn að framleiðslunni meðal annars sá að það vantaði skjólveggi sem að pössuðu við hinn mínímalíska byggingarstíl sem hefur verið svo vinsæll hér á landi, ekki síst und- anfarin ár. „Við vildum aðlaga okkur að þeim breytta byggingarstíl sem hefur verið vinsæll undanfarið. Þessir skjólveggir eru míníma- lískari en þeir sem við höfum verið að selja undanfarin ár sem hafa skartað fléttum og krúsídúllum ýmis konar og ekki kannski hæft húsunum alls kostar. Þessir nýju veggir eru ferkantaðri og einfald- ari í útliti,“ segir Einar. Ekki síður mikilvægur eigin- leika veggjanna er sú staðreynd að þeir eru hannaðir með íslensk- ar aðstæður í huga, eru úr gagn- varinni furu, eru efnismiklir og sterkir og eiga því að henta ís- lensku veðurfari afar vel. Veggjunum má snúa bæði lóð- rétt og lárétt og er hægt að raða þeim saman á ýmsu vegu eftir smekk húseigenda. Veggirnir koma klæddir öðrum megin og ef kaup- endur vilja er hægt að klæða þá báðum megin og loka þeim þannig alveg. Verðið fer auðvitað eftir stærð veggsins en sem dæmi má nefna þá er verð á algengri stærð 16.900 krónur fyrir fleka sem er 170 cm á breidd og hæð. -sbt Skjólveggir fyrir íslenskt veðurfar og byggingarstíl Rós eða rósavöndur er sígild tækifærisgjöf sem flestir hafa ánægju af að skreyta í kringum sig með. Slík gjöf getur einnig verið táknræn enda hafa litir rósanna ólíka merkingu eins og eftirfarandi listi gefur til kynna: ● Rauðar rósir tákna ást, feg- urð, hugrekki og virðingu ● Hvítar rósir tákna hreinleika, sakleysi, þögn, leynd, hóg- værð eða auðmýkt. ● Bleikar rósir tákna þakklæti, hamingju og aðdáun. ● Gular rósir tákna gleði, vin- áttu og fyrirheit um betri tíð. ● Appelsínugular rósir tákna þrá eða eldhug. ● Rósir án þyrna tákna ást við fyrstu sýn. -ve Heimild: www.blomaval.is. Hver litur rósar hefur misjafna merkingu Norðurlandamót í pípulögnum verður haldið í Osló í Noregi dag- ana 12. til 14. maí. Íslendingar eiga Norðurlandameistaratitilinn í greininni en Árni Már Heimisson vann fyrir Íslands hönd í Malmö 2007 en mótið er haldið á tveggja ára fresti. Í ár er það hinn 21 árs gamli Kristófer Þorgeirsson, starfsmað- ur Rennslis ehf., sem hefur feng- ið það ábyrgðarhlutverk að halda uppi heiðri íslenskra pípulagninga- manna. Kristófer sigraði á Íslandsmóti í pípulögnum, sem haldið var í Laug- ardalshöllinni vorið 2008 , sem gaf honum rétt á því að taka þátt í Norðurlandamóti fyrir Ísland og iðngreinina. Ríkjandi Norður- landameistari, Árni Már, hefur séð um þjálfun Kristófers í vetur, en Kristófer hefur farið í tvígang til Óðinsvéa í æfingabúðir með öðrum norrænum keppendum. Kristófer mun einnig keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeist- aramótinu í Calgary í Kanada í haust, ásamt fulltrúa rafiðna- og hárgreiðslugreina. -sg Íslendingur ver titil í pípulögnum Norðurlandamót í pípulögnum fer fram í Osló í vikunni. Hjá Endurmenntun Háskóla Ís- lands er hægt að læra hvernig útbúa eigi safnhauga. Færst hefur í vöxt að garðeig- endur komi sér upp safnhaug- um í görðum sínum og jarð- geri lífrænan úrgang svo sem gras, greinar og lauf. Mikið af lífrænum úrgangi fellur einnig til í eldhúsum og honum má um- breyta í gæða safnhaugamold eða svokallaða Moltu. Endurmenntun Háskóla Ís- lands heldur tveggja kvölda grunnnámskeið dagana 18. og 19. maí í samstarfi við HORT- ICUM menntafélag um safn- hauga. Það er sérstaklega ætlað þeim sem hyggja á jarðgerð eða eru nýlega byrjaðir. Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði jarðgerðar. Fjallað verður um tilgang og markmið og hvernig staðið skal að jarðgerð. Kynntar verða mis- munandi aðferðir við jarðgerð sem og ílát. Enfaldleiki einkennir hönnun veggj- anna og efniviðurinn, gagnvarinn fura, hentar vel íslensku veðurfari. Í stórum görðum er tilvalið að koma palli fyrir í sólríku horni. Hægt er að snúa eining- unum bæði lóðrétt og lárétt eftir smekk. Gular rósir tákna gleði, vináttu og fyrirheit um betri tíð. Námskeið um safn- hauga í görðum Mikið fellur til af greinum og laufi í görðum sem breyta má í moltu. Garðyrkjunámskeið Matjurtaræktun Miðvikud. 13/5 og 20/5 kl. 19:00-21:30. ATH: Þetta er síðasta matjurtanámskeiðið á þessu vori. Verð kr. 12.500.- Ræktun ávaxtatrjáa Tvö kv. mán. 11/5 og 18/5 kl. 19:00-21:30. Verð kr. 12.500.- Ræktun berjarunna og -trjáa Mánudaginn 18/5 kl. 17:00-18:30. Verð kr. 3.750.- Kryddjurtaræktun Miðvikudaginn 13/5 kl. 17:00-18:30. Verð kr. 3.750.- Leiðbeinendur eru höfundar bókarinnar Matjurtir: Auður I. Ottesen, garðyrkjufr. Jón Guðmundsson, garðyrkjufr. Skráning og upplýsingar í síma 578 4800 og á www.rit.is í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.