Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.05.2009, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 11.05.2009, Qupperneq 27
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2009 7hús og viðhald ● fréttablaðið ● Í fljótu bragði kann að virðast auðvelt að velja sér sumarbú- stað. Í það minnsta er enginn skortur á framboði slíkra húsa. Á fasteignavefnum eru til dæmis vel á sjötta hundrað auglýsingar um sumarbústaði til sölu. Þeir sem hyggja á sumarbústaðar- kaup ættu þó að fara rólega í sak- irnar og vinna heimavinnuna sína vel. Áður en haldið er af stað þarf að skilgreina hvernig á að nota húsið. Býst fólk við að nota það fyrst og fremst til lengri dvalar á sumrin eða vill það geta skotist, þó ekki sé nema eina nótt? Ef svo er skipt- ir miklu að ekki taki meira en um það bil hálfa aðra klukkustund að komast á staðinn og helst þarf það að taka enn styttri tíma. Í öðru lagi þarf að gera upp við sig hvort sumarbústaðurinn á að sjá eigendum sínum fyrir verkefn- um meðan þar er dvalið eða hvort ætlunin er að nýta hann til slök- unar. Þeir sem hafa gaman af smíðum ættu að huga að því að byggja sér sjálfir hús frá grunni eða kaupa eldra hús sem þarfnast viðhalds og hægt er að laga að þörfum sínum. Hinir sem kjósa að handleika hamarinn sem minnst ættu að velja sér hús sem það getur fellt sig vel við án þess að því sé breytt. Sama gildir um lóðina. Sumir hafa unun af því að græða upp. Þeir ættu að velja sér lóð sem hentar þeirri iðju. Hinir sem kjósa fremur að slaka á í skjóli gróðurs ættu að velja sér gróinn reit. Að ýmsu er einnig að hyggja þegar komið er á staðinn. Hvernig snýr húsið við sólu? Er morgunsól- in ríkjandi eða kvöldsólin, eða er kannski orðið sólsett um kvöldmat- arleytið? Sömuleiðis þarf að huga að vindinum eða öllu heldur skjól- inu. Margar sumarbústaðalóðir eru í skemmtilegu kjarrlendi. Slíkt land hentar ekki endilega þeim sem leggja upp úr því að geta iðkað boltaleiki og þess háttar við bú- staðinn. Þeir ættu að velja sér land þar sem er að finna slétta flöt. Sumarbústaðurinn er drauma- land í huga margra. Þar mætast iðulega kynslóðir í ljúfum sam- verustundum. Væntingar fólks og þarfir til sumarhúsa eru þó mis- munandi og því um að gera að skilgreina hvað maður vill fá út úr sumarbústaðavistinni áður en lagt er af stað. -st Þegar það kemur að því að fella risavaxin tré í garðinum fylgir verkefninu oft það vandamál að erfitt kann að vera að losna við úrgang sem trénu fylgir. Gjarn- an þarf að búta tréð niður og sel- flytja svo á móttökustöðvar Sorpu þar sem greitt er fyrir úrgang sem þarf að losna við. En þegar skórinn kreppir kvikna nýjar hugmyndir, sem spara pening en eru um leið umhverfisvænar. „Við fengum þá hugmynd að bjóða fólki sem fær okkur til þess að fella tré fyrir sig, að höggva trén niður í eldivið. Þá höggvum við stofn trjánna niður í brennan- lega búta en losum annað á mót- tökustöðvar Sorpu. Brenniviðnum er síðan staflað upp á handhægum stöðum við heimili viðskiptavinar- ins, sem tekur inn til sín það sem hann kýs að brenna hverju sinni,“ segir Brynjar Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Garðlistar. Brynjar bætir því við að dálít- ið sparist við það að brenna sína eigin framleiðslu. Þannig kostar pokinn af eldivið á bensínstöðvum landsins á bilinu tvö til þrjú þús- und krónur og pokinn nýtist í um það bil fjögur skipti. Á móti kemur að tré sem er yfir tíu metrar á hæð getur hugsanlega nýst í hátt í 30 til 40 skipti. „Allar tegundir trjáa henta í eldivið. Mest er þó um að fólk sé að biðja um að við fellum stórar aspir, grenitré eða birki. Þá eru einstaka reynitré sem við fellum líka og líklega henta þau best í ar- ininn, án þess þó að hinar tegund- irnar standi reynitrjám langt að baki. Þegar menn brenna greni þarf þó að sýna smá aðgæslu þar sem trjákvoðan í greni getur vald- ið litlum sprengingum þegar hún brennur,“ segir Brynjar og bætir því við að þetta sé þó nokkuð sem fæstir þurfi að hafa áhyggjur af, þar sem flest arinstæði eru með lokur eða grindur, sem koma í veg fyrir að neistar fljúgi út á gólf. Margir veigra sér þó við að fella tré í garðinum þar sem fólk er ekki allt of hrifið af því að stór trjástubbur standi upp úr jörðinni. Þetta vandamál heyrir þó sögunni til. Í dag keyra Garðlistarmenn svokölluðum stubbatætara yfir leifarnar af trénu nokkrum sinn- um og hann sést aldrei meir. „Eftir að við höfum lokið okkur af stendur eftir stafli af eldivið í garðinum og umtalsvert meiri birta er í garðinum. Þannig getur fólk betur notið útiverunnar í þessa fáu mánuði ársins, sem sólar og hlýju nýtur við,“ segir Brynjar. - hs Eldiviður beint úr garðinum Brynjar Kjærnested, framkvæmdastjóri Garðlistar, heggur hér eldivið en fyrirtæk- ið býður nú upp á að höggva tré í görðum og breyta í eldivið. MYND/ÚR EINKASAFNI Að finna draumalandið sitt Þeir sem hafa unun af að græða upp ættu að velja sér lóð við hæfi. MYND/TRÉSMIÐJA HEIMIS Að ýmsu þarf að huga áður en fest eru kaup á sumarbústað. Til dæmis þarf að skil- greina hvernig nota á húsnæðið. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja MEÐ TUDOR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.