Fréttablaðið - 11.05.2009, Qupperneq 28
11. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR8 ● fréttablaðið ● hús og viðhald
Nú er rétti tíminn til að huga að
pallaviðhaldi en sólpallar grána
með tímanum fyrir tilstilli sólar.
Til að komast að því hvort þurfi
að viðarverja pallinn má gera
svokallað vatnspróf. Þá er vatni
sprautað á pallinn og fylgst með
því hvort hann drekki það strax í
sig. Ef svo er er kominn tími til að
endurverja hann en ef vatnið perl-
ar eða flýtur ofan á pallinum er
ekki þörf á nýrri viðarvörn. Hins
vegar er ekkert sem segir að ekki
megi fara eina umferð yfir hann
með pallaolíu til að fríska upp á
útlitið.
Áður en borið er á pallinn er
ráð að hreinsa hann með sérstöku
pallahreinsiefni en það hjálpar til
við að hreinsa óhreinindi, bletti frá
nöglum eða örveru- og sveppagróð-
ur. Pallurinn þarf síðan að þorna í
tvo daga áður en ný viðarvörn er
borin á.
Margs konar tegundir eru til
af viðarvörn og fæst hún bæði
glær og lituð. Þá er mikilvægt
að hafa það í huga að bera vörn-
ina ekki á í sólskini því þá þornar
hún of fljótt og nær ekki að ganga
inn í viðinn. Nánari upplýsingar
er að finna á http://husa.is/index.
aspx?groupid=222 - ve
Viðurinn varinn
Sólpallar grána með tímanum fyrir
tilstilli sólar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það er aldrei vit í því að mála dyr eða hurða-
fleka oftar en nauðsynlegt er. Auðvitað á maður
ekki að bíða svo lengi að dyrnar og hurðin æpi
beinlínis á viðhald.
Gott er að hafa eftirfarandi í huga áður
en hafist er handa við að mála hurð: Skrúfið
af húna, lykillauf, rósettur og annað sem er
áfast.
Sjá þarf til þess að flöturinn verði eins
hreinn og meðfærilegur og mögulegt er.
Best er að pússa gljáandi fleti þar sem þeir
hafa ekki eins mikla viðloðun. Ómálaðan við
þarf að grunna með olíugrunni eða þynntri
olíumálningu.
Sparslið í sár og flekki þegar búið er að
grunna. Sparslið þarf að pússa þegar það er
orðið þurrt. Grunnið sparslaða fleti með þeirri
málningu sem á að nota og pússið létt yfir.
Málið í það minnsta tvær umferðir og pússið
létt yfir á milli. Allar umferðirnar eiga að vera
þunnar en málninguna er best að bera á með
breiðum, flötum pensli.
Svo þýðir lítið að vera með einhver læti og
munið að hreyfa pensilinn ekki of hratt. Nú er
bara að vanda sig!
Heimild: Verk að vinna. - vg
Hurðin öðlast nýjan glans
Vanda þarf til verka þegar hurð er máluð.
● BLETTIRNIR HVERFA
Til að ná blettum úr fatnaði eða
öðru er best að reyna strax eða
sem allra fyrst að vinna á þeim.
Sitji blettur of lengi þannig að
efnið drekki hann í sig, þorn-
ar hann inn í efnið og erfiðara
verður, og stundum ógerning-
ur, að ná honum úr. Hjá Leið-
beiningarstöð heimilanna er
að finna lista yfir efni sem duga
gegn algengustu blettum:
● Brennsluspritt (ekki bólu-
spritt, própanólum, í því er
olía sem gerir meira ógagn
en gagn)
● Hreinsað bensín
● Salmíaksspíritus
● Vetnisperoxíð (brintovilte)
● Asetón
● Uppþvottalögur, helst ólitað-
ur
● Terpentína (White sprit)
● Glýserín
● Bleikiefni (klór)
● Teppa- og húsgagnasápa
Náttúruvæn blettaefni:
● Sítróna
● Glýserín
● Edik, (borðedik/glært edik)
● Kristalssápa (grænsápa)
● Matarsódi
● Gróft salt
● Talkúm
● Súrmjólk
● Tannkrem og aska