Fréttablaðið - 11.05.2009, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 11. maí 2009 19
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 11. maí 2009
➜ Tónleikar
19.00 Söng- og ljóðadeild Tónlistar-
skólans á Akureyri við Hvannavelli verð-
ur með tónleika á sal skólans. Aðgang-
ur ókeypis og allir velkomnir.
21.00 Moonboy & the Sunbeams
verða á Café Rosenberg við Klapparstíg.
Aðgangur ókeypis.
➜ Fyrirlestrar
12.00 William Black
Ph.D., prófessor við
Háskólann í Kansas City í
Missouri flytur erindi um
bankahrun hjá HÍ. Fyrir-
lesturinn fer fram í Öskju,
við Sturlugötu 7, stofu
132. Að loknum fyrirlestri
mun Egill Helgason blaða-
maður stjórna umræðum. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir.
➜ Uppboð
18.15 Listmunauppboð verður hjá
Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Nánari
upplýsingar á www.myndlist.is.
➜ Myndlist
Alda Ármanna hefur opnað sýningu í
húsakynnum SÍM við Hafnarstræti 16.
Sýningin er opin alla virka daga kl. 9-16.
Erla Þorleifsdóttir og Stefán Bjarna-
son hafa opnað málverkasýningu í sal
hjá Félagsþjónustunni í Hæðargarði 31.
Opið alla virka daga kl. 9-16. Aðgangur
ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töfl ur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru
bakfl æði. Ekki má nota lyfi ð ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum
einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfi ðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa
nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafl a ekki oftar
en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfi ð eftir 14 daga stöðuga notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töfl urnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töfl urnar
má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva (t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur,
niðurgangur, ógleði/uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009.
...Nú færðu Losec mups* án lyfseðils í næsta apóteki!
Nýtt!
FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA
SÚRT BAKFLÆÐI?...
*Omeprazol
annt um líf og líðan
Ég var búinn að steingleyma að ég hafði séð
Söngvaseið áður: Petula Clark söng þá Maríu í
Victoriu-leikhúsinu, stórri hlöðu sem var seinna
notuð undir Starlight Express. Þetta hefur lík-
legast verið ´82 eða 3 og er ekki eftirminnilegt.
Petula var þá vel við aldur og það var fyrsta
sviðsetning frá uppsetningu snemma á sjöunda
áratugnum þegar verkið var enn í gangi í New
York.
Sound of Music er Broadway-söngleikur í sinni
hreinustu mynd: allir höfundar verksins eru
leikhúsrottur frá New York, menn með áratuga
reynslu í að ná til fjöldans. Það sem kom mest á
óvart á föstudagskvöldið er hvað verkið er pott-
þétt. Hver maður sem er á annað borð hrifinn
af söngleikjum veit að músikin eftir Rodgers
er ekkert slor. Eins og í nokkrum verka þeirra
byggir verkið á sterkum hóp sviðsbarna sem nóg
er af í stórborgum heimsins, hér er líka að finna
hina ungu konu sem lendir í aðstæðum hefða og
valds og sigrar hjarta hins stífa karlmanns. Og
mórallinn er einfaldur: njóttu lífsins, vertu glað-
ur, söngurinn er frelsandi.
Nú eru aðstæður Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsi þannig að til að sinna ýtrustu
kröfum í flutningi verksins þyrfti húsið að vera
stærra, hljómsveitin skipuð fleiri en ellefu, kór-
inn í veisluatriðinu skipaður fleirum en átta:
það er svo fyrir löngu að sölum íslensku leik-
húsanna er ofraun að setja á svið söngleiki af
þessari stærð nema að smækka þá á einhvern
veginn. Það er einfallega of dýrt fyrir rétt fimm
hundruð sæta sali.
Samt eru nær allar lausnir í sviðsetningu LR
unnar með sóma. Að setja hljómsveit í hliðar-
kró hefur marga galla: tónlistin verður of hávær
öðrum megin í salnum og jafnast ekki í hljóð-
blöndun. Hið mikilvæga samband hljómsveitar
í gryfju og þeirra sem á sviðinu standa er rofið
og um leið slitnar sambandið við salinn sem er
innbyggt í verk þessara höfunda. Það er talað
við áhorfendur í söng Maríu frá fyrstu innkomu
og það var helst hið beina talsamband við áhorf-
endur sem vantaði í þessa sviðsetningu og þá
einkum í lögn Þórhalls Sigurðssonar á Maríu
sem Valgerður Guðnadóttir leikur annars með
miklum glæsibrag – og svo hlutirnir séu orðaðir
umbúðalaust: hún ber sýninguna uppi. Fyrst og
fremst með frábærum söng, leikurinn er á nokk-
uð þröngu sviði en það skrifa ég á leikstjórann.
Gallarnir við sýninguna eru fyrst og fremst í
kasti: abbadísin er of ung – hið hefðbundna hlut-
verk fóstrunnar sem víðar að finna í verkum
þeirra félaga, eldri konan sem vísar veginn átti
að falla eldri konu í skaut. Jóhanna Vigdís söng
sína parta óaðfinnanlega þótt upphaf á Climb
every Mountain væri of sterkt í upphafi. Það er
ekki hennar sök heldur leikstjóra og hljómsveit-
arstjóra. Þá á að byrja veikar, það er verið að
tala kjark í örvinglaða sál, rétt eins þeir nota í
Carousel með You never walk alone.
Aldursmunur verður líka Jóhannesi Hauki til
trafala. Hann á í verulegum vandræðum með
Trapp höfuðsmann. Karlinn er í upphafi stíf fíg-
úra en aldursmunur hans og Maríu verður að
vera trúanlegur. Það er illa farið með ágætis
tækifæri og þegar Jóhannesi er síðan slengt inn
á svið með Jóhanni Sigurðarsyni í essinu sínu
verður leikurinn harla ójafn.
Það er nefnilega svoleiðis með söngleikina,
rétt eins og óperur og ævintýri, að það verð-
ur að taka formið grafalvarlega. Í flestu virð-
ast menn hafa gert það í Borgarleikhúsinu þótt
Hitlerskveðja þeirra Theodórs Júlíussonar og
Péturs Einarssonar sé undarlega slöpp. Hanna
María hefur gert flest af meiri sannfæringu en
að leika ráðskonuna. Guðjón Karlsson er voða-
lega lítið með í hlutverki örlagavalds í þessari
sögu. En hann flautaði vel.
Söngleikurinn er óhemju kröfuhart form:
jafnfætis verða menn að geta sungið þræler-
fiða músik föskvalaust og geta leikið óaðfinn-
anlega frá heldur litlum forsendum. Söngleik-
urinn heimtar yfirleitt íburð í búningum, ljósum
og leikmynd. Sá partur sýningarinnar sleppur
– ekki meira. Söngparturinn er fullnægjandi en
dálítið erfitt að meta hann vegna hljóm styrks
hljómsveitarinnar. Aftur er komið að því hvað
Valgerður fer í raun með stóran part af öllu
dæminu og gnæfir um leið yfir alla aðra. Krakk-
arnir sem verða í tveimur hollum standa sig
þokkalega. Þau eru ekki atvinnumenn, þau eru
byrjendur og það sést.
En mér fannst gaman – en það er ekki að
marka mig eins og kellingin sagði, ég hef svo
gaman af svona vitleysu. Og það er nú samt aðal-
málið í svona dæmum.
Ég ætla að gefa þessari sýningu fjórar stjörn-
ur svo markaðsdeild LR geti slett úr klaufunum:
sýningin fær tvær, en Valgerður Guðnadóttir á
ein tvær heilar. Hún er ástæðan að fólk getur
sótt þessa sýningu og látið hrífast.
Páll Baldvin Baldvinsson
Stór stjarna og mörg smástirni
LEIKLIST Umkomulaus ungnunna tekur að sér sjö börn
sjókafteins í Ölpunum. Sígildur söngleikur borinn uppi
af flinkri söngkonu. Valgerður Guðnadóttir og í bak
Jóhanna Vigdís. MYND GRÍMUR/LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
LEIKLIST
Söngvaseiður
Höfundar: Rodgers, Hammerstein, Lindsey og
Crouse.
Þýðing: Flosi Ólafsson. Leikmynd: Snorri Freys.
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir. Dans: Ástrós Gunn-
arsdóttir, Lýsing: Þórður Orri Pétursson, Tónlistar-
stjóri: Agnar Már Magnússon.
★★★★
Góð skemmtun en sýning í meðallagi.
Auglýsingasími
– Mest lesið