Fréttablaðið - 11.05.2009, Page 36
20 11. maí 2009 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
> HAFNAÐI KVÖLDVERÐARBOÐI
Breska „Britain got Talent“-stjarnan,
Susan Boyle, hefur að sögn breskra
fjölmiðla hafnað því að mæta í kvöld-
verð hjá Barack Obama Bandaríkja-
forseta. Ástæðan ku vera sú að Boyle
fannst þetta of mikið af hinu góða og
þorði hreinlega ekki.
Fjöldi ungmenna mætti í áheyrnar-
prufur sem haldnar voru fyrir kvik-
myndina Gauragangur sem fram-
leiðslufyrirtækið Zik Zak gerir.
Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmunds-
son en hann gerði einmitt metsölu-
myndina Astrópíu um árið. Gaura-
gangur er sem kunnugt er byggð á bók
Ólafs Hauks Símonarsonar og fjall-
ar um glímu Orms Óðinssonar við hin
erfiðu unglingsár.
Aðstandendur myndarinnar hafa
gefið það út að prófað sé í öll hlutverk
og því gæti einhver óþekktur hreppt
hlutverk Orms Óðinssonar sem
bókin snýst um. Eins og frægt er
orðið lék Ingvar E. Sigurðsson það
hlutverk í uppfærslu Þjóðleikhúss-
ins fyrir nokkrum árum og því ljóst
að einhver gæti dottið í lukkupottinn.
Gauragangs-fólkið hefur reyndar verið
á ferð og flugi alla þessa viku, var á
Akureyri fyrir viku, svo var haldið
til Ísafjarðar, síðan Egilsstaða og loks
var síðasta prufan í Reykjavík í gær og
stóð hún frá klukkan ellefu um morg-
uninn til átta um kvöldið. Hátt í hundr-
að ungmenni, sem dreymir um hvíta
tjaldið, mættu á svæðið og sýndu allar
sínar bestu hliðar þannig að úr vöndu
verður að ráða hjá framleiðendum og
leikstjóranum. - fgg
Mikill áhugi á Gauragangs-myndinni
STJARNA Í FÆÐINGU Ekki er vitað hvernig
þessum táningsdreng gekk en Gunnar Björn,
leikstjóri Gauragangs, smellir af honum mynd
til vonar og vara. MYND/ZIKZAK
SPENNT UNGMENNI Fjöldi ungmenna mætti
í áheyrnarprufur fyrir Gauragang sem haldnar
voru á Kaffi Oliver.
Íslenska Eurovision-föruneyt-
ið heldur áfram að heilla íbúa
Moskvuborgar upp úr skónum
með framkomu sinni. Á föstu-
dagskvöldið var hópurinn þó á
kunnuglegum slóðum.
Jóhanna Guðrún og félagar hafa tekið
Eurovision-keppnina með trompi og
Eurovision-spekúlantar eru flestir
sammála um að það væri stórslys ef
það kæmist ekki upp úr sínum undan-
riðli á þriðjudagskvöld. Hópurinn sletti
aðeins úr klaufunum hjá íslenska sendi-
herranum í Moskvu, Benedikt Ásgeirs-
syni, og tók að sjálfsögðu lagið fyrir
starfsmenn sendiráðsins. Einna mesta
kátínu vakti þegar Jóhanna Guðrún
fetaði í fótspor Regínu Óskar og söng
hinn ofurvinsæla Eurovision-slagara
This is my life með Friðrik Ómari.
Annars getur ýmislegt gerst og
sem betur fer var enginn Íslending-
anna nærri þegar gasleiðsla sprakk
í nágrenni við Eurovision-svæðið
aðfaranótt sunnudags. Hún heyrðist
víða, enda um töluvert öfluga spreng-
ingu að ræða, en samkvæmt fyrstu
fréttum virðist enginn hafa slasast
þótt eldar hafi logað í kjölfar hennar.
Jóhanna Guðrún stígur síðan á stóra
sviðið annað kvöld og þá verða örlög
hennar í höndum annarra Evrópubúa
og sérstakrar dómnefndar. - fgg
FÓRU Á KOSTUM Í ÍSLENSKA
SENDIRÁÐINU Í MOSKVU
LEYNIVOPNIN Tina Japaridze og Chris
Neil eru óneitanlega góð leynivopn
til að hafa uppi í erminni þegar nær
dregur. Milli þeirra stendur Erna Hrönn,
bakraddarsöngkona. FRÉTTABLAÐIÐ/ALMA
ALLT GENGIÐ STÓRÁFALLALAUST Þær
Jóhanna Guðrún og María Björk eru
ánægðar með hvernig gengið hefur í
Moskvu.
BRJÁLAÐUR AÐDÁANDI Þessi þýski
Eurovision-aðdáandi lét sig ekki
muna um það að láta húðflúra merki
keppninnar á bakið á sér. Óskar Páll
virðist hafa gaman af.
GOTT AÐ BORÐA Eurovision-hópurinn var ánægður með að geta loks fengið sér almenni-
lega að borða en rússneski maturinn hefur mælst misvel fyrir. Jóhanna, María Björk og
Börkur Birgisson gæddu sér á veitingunum.
THIS IS MY LIFE Og Jóhanna þandi raddböndin þetta kvöld því hún söng einnig með Friðriki Ómari hið geysivinsæla lag Euro-
bandsins, This is my Life.
LÁTUM SÖNGINN ÓMA Jóhanna
Guðrún söng að sjálfsögðu Euro-
vision-lagið sitt, Is it True?, við góðar
undirtektir viðstaddra.