Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 40

Fréttablaðið - 11.05.2009, Side 40
24 11. maí 2009 MÁNUDAGUR Stjörnuvöllur, áhorf.: 942 Stjarnan Grindavík TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–7 (4–3) Varin skot Bjarni Þórður 2 – Óskar 1 Horn 5–5 Aukaspyrnur fengnar 12–9 Rangstöður 1–2 GRINDAV. 4–4–2 Óskar Pétursson 4 Ray A. Jónsson 5 (46. Marko Stefánss. 5) Zoran Stamenic 4 Eysteinn Hauksson 4 Jósef Jósefsson 4 Scott Ramsay 3 Orri Hjaltalín 5 Jóhann Helgason 4 Sylvain Soumare 3 (58. Þórarinn Kristj. 5) Sveinbjörn Jónasson 4 (73. Emil Símonars. -) Gilles Mbang Ondo 5 *Maður leiksins STJARNAN 4–5–1 Bjarni Þ. Halldórsson 6 Guðni R. Helgason 7 Tryggvi Bjarnason 6 Daníel Laxdal 7 Hafsteinn Helgason 7 Jóhann Laxdal 6 (80. Arnar Björgvins. -) Steinþór Þorsteinss. 7 (90. Baldvin Sturlus. -) Björn Pálsson 6 *Birgir Birgisson 7 Halldór O. Björnss. 6 Þorvaldur Árnason 5 1-0 Guðni Rúnar Helgason (8.) 2-0 Jóhann Laxdal (34.) 3-0 Halldór Orri Björnsson (78.) 3-1 Gilles Mbang Ondo (87). 3-1 Valgeir Valgeirsson (5) FYLKIR 1-0 VALUR 1-0 Kjartan Ágúst Breiðdal (22.) Fylkisvöllur, áhorf.: 1.029 Eyjólfur M. Kristinsson (6) TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–10 (3–1) Varin skot Fjalar 1 – Kjartan 2 Horn 5–4 Aukaspyrnur fengnar 14–17 Rangstöður 4–1 Fylkir 4–4–2 Fjalar Þorgeirsson 6 – Andrés Jóhannesson 6, Einar Pétursson 6 (87. Davíð Ásbjörnsson -), Kristján Valdimarsson 6, *Tómas Þorsteinsson 7 – Ásgeir Ásgeirsson 6, Valur Fannar Gíslason 7, Halldór Hilmisson 3 (82. Felix Hjálmarsson-), Kjartan Breiðdal 7 – Pape Faye 5 (73. Kjartan Baldvinsson -), Ingimundur Óskarsson 6. Valur 4–3–3 Kjartan Sturluson 2 – Steinþór Gíslason 5, Reynir Leósson 6, Atli Sveinn Þórarinsson 6, Bjarni Ólafur Eiríksson 6 – Guðmundur Mete 6 (73. Pétur Markan -), Baldur Bett 3 (59. Helgi Sigurðsson 6), Ian Jeffs 3, Baldur Aðalsteinsson 2, Ólafur Páll Snorrason 2, Viktor Illugason 5 (69. Marel Baldvinsson 4). Laugardalsvöllur, áhorf.: 753 Fram ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 12–8 (7–5) Varin skot Hannes 5 – Albert 4 Horn 5–4 Aukaspyrnur fengnar 9–8 Rangstöður 2–0 ÍBV 4–3–3 Albert Sævarsson 5 Matt Garner 6 Andrew Mwesigwa 5 Yngvi Borgþórsson 5 (83. C. Clements -) Tonny Mawejle 6 Arnór Ólafsson 5 Pétur Runólfsson 5 Þórarinn Valdimarss. 6 Andri Ólafsson 5 (63. A. Leitch-Smith 5) Augustine Nsumba 5 (69. Bjarni Einarsson 5) Viðar Örn Kjartanss. 7 *Maður leiksins FRAM 4–5–1 Hannes Þ. Halldórss. 7 Daði Guðmundsson 7 Kristján Hauksson 6 Auðun Helgason 6 Halldór Jónsson 5 Ingvar Ólason 6 Joseph Tillen 3 Sam Tillen 5 Ívar Björnsson 6 (86. Viðar Guðjónss. -) Almarr Ormarsson 6 (73. *Heiðar Júl. -) Hjálmar Þórarinss. 7 1-0 Heiðar Geir Júlíusson (76.) 2-0 Hjálmar Þórarinsson (94.) 2-0 Einar Örn Daníelsson (7) > Allt um Pepsi-deildina á Vísi Fréttablaðið mun í sumar sinna Pepsi-deildinni eins vel og hægt er hverju sinni. Því miður mun í einhverjum tilfellum ekki vera umfjöllun um alla leiki. Þeir sem sakna umfjöllunar um einhverja leiki geta farið inn á Vísi. is sem verður með yfirgripsmikla umfjöllun um alla leiki í Pepsi-deild karla í sumar. Ásamt umfjöllun um alla leiki mun Vísir vera með viðtöl við leikmenn, heildartölfræði úr hverjum leik sem og einkunnagjöf fyrir alla leikmenn. Vísir býður einnig upp á hinu rómuðu Boltavakt þar sem hægt er að fylgjast beint með öllum leikjum deildarinnar. FÓTBOLTI Byrjun Valsmanna í Pepsi-deildinni lofar ekki góðu fyrir framhaldið. Þeir voru afar daprir og lutu verðskuldað í gras fyrir baráttuglöðu og ungu liði Fylkis sem spennandi verður að fylgjast með í sumar. Það eru nokkrar breytingar á báðum liðum frá því í fyrra. Vals- menn með nýja og sterka menn á meðan Fylkir var að tefla fram nokkrum ungum og óþekktum leikmönnum. Helst vakti athygli í uppstillingu Vals að Guðmundur Mete skyldi spila sem varnarsinn- aður miðjumaður. Hann leysti það hlutverk ágætlega af hendi. Leikurinn fór mjög rólega af stað en Valsmenn þó ívið sterkari. Þeir virtust vera að ná ágætum tökum á leiknum þegar Fylkismenn komust yfir. Þá átti Ingimundur skot sem fór í varnarmenn Vals. Bolt- inn endaði hjá Kjartani Ágústi sem átti fast skot á nærstöng sem lak undir síðuna á Kjart- ani og í markið. Var ekki annað að sjá við fyrstu sýn en fyrrum landsliðsmarkvörðurinn hefði átt að gera betur þar. Hann var reyndar afspyrnusla- kur í leiknum og skapaðist nokkr- um sinnum hætta við markið eftir klaufaskap hans. Leikur Vals hrundi algjörlega eftir mark Kjartans og afar spræk- ir Fylkisstrákar gerðu hvað eftir annað usla í vörn Vals sem virkaði ekkert sérstaklega sannfærandi. Viktor Unnar sprækastur í sókn- inni hjá Vals- mönnum, fékk eitt dauðafæri í hálf- leiknum sem hann klúðraði á klaufa- legan hátt. Baldur Aðalsteins- son og Ólafur Páll voru ekki með í fyrri hálfleiknum og þeir Bald- ur Bett og Ian Jeffs einnig slakir báðir. Ljóst að Vals- menn áttu mikið inni í síðari hálfleik enda fyrri hálfleikurinn hjá þeim ekki merkilegur. Willum Þór, þjálfari Vals, hefur líklega lesið sínum mönnum pist- ilinn í hálfleik en það skilaði engu því hans menn voru jafn meðvit- undarlausir í upphafi síðari hálf- leiks. Willum var þó nóg boðið þegar hálftími lifði leiks og setti bæði Marel Baldvinsson og Helga Sigurðsson inn á völlinn. Í kjölfarið skánaði leik- ur Vals til muna en reyndar þurfti ekki mikið til að leik- ur liðsins batnaði. Liðið skapaði sér loksins færi og þar af eitt dauðafæri sem þeir klúðruðu á ævintýra- legan hátt. Fylkismenn á sama tíma skynsamir, voru þéttir til baka, börðust vel og uppskáru að lokum þrjú verðskulduð stig gegn slöku Valsliði. „Liðið er að standa vel saman og á meðan liðið spil- ar sem ein heild þá erum við í fínum gír,“ sagði sagði sigurreifur þjálfari Fylkis, Ólafur Þórð- arson. „Það er fullt að fínum fótboltamönnum í þessu liði en það vant- ar kannski reynslu. Það mun koma. Ég hrósa strákunum fyrir að leggja sig 110 prósent fram og taka öll stigin.“ Ólafur segir Fylkisliðið hafa lagt hart að sér í vetur, hlaupið mikið og að þetta lið sé til í að leggja mikið á sig til þess að ná árangri. „Ég veit að það býr mikið í þessu Valsliði en þeir eru ekki að ná saman sem ein heild. Það finnst mér skína í gegn,“ sagði Ólafur um mótherja sína í gær. Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, reyndi að bera sig vel eftir leikinn en vonbrigðin leyndu sér ekki á andliti hans. „Mér fannst við spila ágætlega á köflum. Svo vorum við á erfið- um útivelli en við höfum oft lent í brasi hérna í Árbænum. Ég er auð- vitað ekkert sáttur með að tapa. Ég er samt ekkert ósáttur með margt í leik liðsins en er drullufúll að ná að minnsta kosti ekki stigi úr leiknum,“ sagði Willum og bætti við að tíminn myndi vinna með Val. En er pressa á honum eftir tap í fyrsta leik þar sem frammistaðan var ekki sannfærandi? „Það er alltaf pressa. Ég hef aldrei fundið fyrir öðru.“ henry@frettabladid.is Fylkismenn með baráttuna að vopni Ólafur Þórðarson fékk draumabyrjun með Fylki þegar lið hans skellti firnasterku liði Valsmanna, 1-0, í Árbænum. Ungu strákarnir hjá Ólafi sprækir en Valsmenn ulli miklum vonbrigðum. GÓÐUR SIGUR Kristján Valdimarsson og félagar í Fylki unnu góðan sigur á Val í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR FÓTBOLTI Framarar lögðu nýliða ÍBV 2-0 í Laugardalnum í gær- kvöldi. Það voru þeir Heiðar Geir Júlíusson og Hjálmar Þórarins- son sem skoruðu mörkin eftir að Frammarar lentu manni færri. ÍBV sýndi þó ágætis leik og komu nokkuð á óvart. Leikurinn í Laugardalnum byrj- aði frekar rólega en Fram fékk víti á 25 mínútu eftir að Matt Garner braut á Ívari Björnssyni. Það var Sam Tillen sem tók spyrnuna sem var arfaslök og átti Albert Sævars- son í litlum vandræðum með að verja. Seinni hálfleikurinn byrjaði rólega og ekki dró almennilega til tíðinda fyrr en á 59. mínútu þegar Hannes Þór Halldórsson mark- vörður Fram sýndi meistaratakta með því að verja skalla frá Viðari Kjartanssyni framherja ÍBV. Á 70. mínútu fékk svo Joseph Tillen leikmaður Fram rautt spjald þegar hann var alltof seinn í tæklingu. Eyjamenn ógnuðu markinu lítillega eftir þetta en Heiðar Geir Júlíusson kom inn á hjá Fram á 63. mínútu. Þremur mínútum síðar skoraði hann síðan glæsilegt mark með skalla eftir fyrirgjöf Daða Guðmundssonar. Framarar spiluðu síðan ágæt- lega og héldu boltanum vel. Eyja- menn ógnuðu markinu nánast ekk- ert eftir þetta. Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjuleg- an leiktíma skoraði Hjálmar Þór- arinsson síðan flott mark eftir að hann komst framhjá varnarmönn- um ÍBV í skyndisókn. Hann lyfti boltanum síðan yfir Albert í mark- inu sem átti ekki möguleika. „Við þurftum að hafa fyrir þessu í dag. Við erum samt bara þannig lið að við kunnum að takast á við svona leiki og kunnum að vinna síðan í fyrra. Við vorum þéttir og gerðum þetta saman í dag,“ sagði Hannes Þór Halldórsson mark- vörður Fram eftir leikinn. „Þetta hefði auðveldlega getað farið á hinn veginn og við farið að reyna að halda núllinu. En menn tóku bara á því og fóru að berjast, það skilaði þessum mörkum og þessum sigri.“ Þórarinn Ingi Valdimarsson leik- maður ÍBV var ekki ánægður eftir leikinn. „Við fengum samt færi og og hefðum getað komist þannig inn í leikinn en það var ekki að detta. Svo missa þeir mann út af og þá eflast þeir í kjölfarið,“ sagði Þór- arinn eftir leikinn. Eyjamenn byrjuðu með þrjá menn frammi og sagði Þórarinn að þeir hefðu ætlað að sækja stíft á fyrstu mínútunum. „Við ætluðum að setja á þá strax en það gekk ekki eftir. Við vorum samt að skapa en þetta var ekki að detta fyrir okkur. Nú er bara að taka á því og vinna á heimavelli í næsta leik.“ - bl Fram hóf tímabilið með því að leggja nýliða ÍBV á heimavelli sínum í gær, 2-0: Flottur Framsigur á Laugardalsvellinum BYRJAÐ Á SIGRI Auðun Helgason og félagar í Fram fengu sín fyrstu þrjú stig í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Stjarnan stimplaði sig af krafti inn í Pepsi-deild karla í knattspyrnu þegar þeir mættu Grindavík í Garðabænum í gærkvöldi. Þeir unnu öruggan sigur á slökum Grindvíkingum og ljóst að Stjörnumenn ætla sér annað og meira en menn höfðu gert ráð fyrir í upphafi móts. „Ef ég þekki karakter liðsins rétt þá efla þessar hrakspár hópinn og lemja okkur saman frekar en að við förum eitthvað á taugum. Þeir voru flottir drengirnir mínir í kvöld og sigurinn sanngjarn,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, í leikslok. Það var í byrjun leiks sem Stjörnumenn lögðu grunninn að sigrin- um því strax á 8. mínútu kom Guðni Rúnar Helgason heimamönnum yfir þegar aukaspyrna hans frá miðju hafnaði í netinu með viðkomu í varnarmanni Grindavíkur. Eftir þetta var eins og Grindvíkingar misstu alla trú á verkefni dagsins því leikur þeirra í fyrri hálfleik var mjög slakur og ógnuðu þeir marki Stjörnunnar sárasjaldan. Það var því í takt við gang leiksins þegar Jóhann Laxdal kom heimamönnum í 2-0 með góðum skalla eftir hornspyrnu Steinþórs Þorsteinssonar. Síðari hálfleikur var frekar bragðdaufur. Stjörnumenn börðust af krafti og máttlausir Grindvíkingar máttu sín lítils. Lykilmaður þeirra í sóknarleiknum, Scott Ramsay, sást ekki í leikn- um og munar um minna. Halldór Orri Björnsson bætti þriðja marki Stjörnunnar á 78.mínútu og skömmu síðar minnkaði Gilles Mbang Ondo muninn fyrir Grindvíkinga. Lengra komust þeir þó ekki og Stjarnan því komin á topp Pepsi-deildarinnar. Bjarni Jóhannsson sagði að byrjun Stjörnumanna hefði gert gæfumun- inn. „Það hjálpaði okkur gríðarlega mikið að ná þessum mörkum í fyrri hálfleik. Við gátum þá endurskipulagt leik okkar í hálfleik, þétt varnarleikinn og þeir náðu mjög fáum færum á okkur í leiknum öllum. Leikur liðsins var agaður og þéttur og það er það sem við höfum verið að laga þessa síðustu daga,“ sagði Bjarni Jóhannsson kampakátur í leikslok. STJARNAN FÓR Á TOPP PEPSI-DEILDAR KARLA Í GÆR: ÖRUGGUR SIGUR Á GRINDAVÍK Hrakspárnar munu lemja saman hópinn Pepsi-deild karla Breiðablik - Þróttur 2-1 1-0 Kristinn Steindórsson (30.), 2-0 Alfreð Finnbogason (39.), 2-1 Hjörtur Hjartarson (46.). Ítarlega umfjöllun um leikinn má finna á Vísi.is. KR - Fjölnir 2-1 Fram - ÍBV 2-0 Fylkir - Valur 1-0 Stjarnan - Grindavík 3-0 NÆSTI LEIKUR Keflavík - FH Í kvöld klukkan 19.15 1. deild karla Fjarðabyggð - Afturelding 0-1 Víkingur R. - Víkingur Ó. 1-2 Þór - ÍA 3-0 Selfoss - KA 1-1 ÚRSLIT sport@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.