Skinfaxi - 01.11.1909, Síða 6
14
SKINFAXI
um, er sórstaklega iná samrýma sumiinu,
og er þær margar.
Skidabrautin og sundskálinn í Reykjavík
eru öflugur vottur þoss, hve miklu áhugi
ungra karla og kvenna getur áorkað!
U. M. F. „Garðarshólmi*
í Mýrdal hélt skemtifund í sumar úti á
víðavangi á svonefndu Geitafjalli. Skemtu
menn sér með ræðum söng, glímum o. fl.
Telur bréfritári sá, er sent hefir mér frétt
þessa, þess konar útifundi „hafa mjðg góð
og víðtæk áhrif, allra helst, ef fundarstað-
urinn er fallegur og heppilega valinn.“
Á öðrum fundi í sumar var þegnskjddu-
málið til umræðu, og var gerð svo hljóð-
andi fundarályktun:
„Fundurinn telur þegnskylduvinnunaholla
og nauðsynlega fyrir þjóðina og vill stuðla
að því, að hún komist sem fyrst í fram-
kvæmd.“
U. M. F. „Seytjándi júní“
í Hafnarfirði hefir starfað mikið í sumar,
enda eru margir félagar þar mjög áhuga-
samir. í vor girti það allstóran blett með
öflugum grjótgarði á þrjá vegu og gadda-
vír í hinn íjórða, og gróðursetti þar mörg
hundruð trjáa. Einnig hélt félagið uppi
sundkenslu um 7 vikna skeið í sumar, fór
skemtiferðir, iðkaði ýmsa leika o. fl. í
haust hélt það fjölbreytta skemtun; vóru
þar meðal annars stignir vikivakar, og
vóru leikendur allir á þjóðbúningi, konur
á kyrtlum, en karlar á litklæðum.
Ung'mennafélög'í
Sendið „Skinfaxa“ stuttar ritgerðir og
smá pisla frá félagsstarfi yðar og öðru því,
er þér hafið á hjarta. Fyrirspurnum ýmis-
legs efnis mun verða svarað skjótlega og
eftir bestu föngum. — Hafið hugfast, að
Skinfaxi er yðar llað! Lærið því að meta
hann og nota!
Fyrirlestraferð.
— 0--
í október fór eg og hélt 15 fyrirlestra
í 9 ungmennafélögum í Árnes- og RangáT-
vallasýslu.
Byrjaði í Grímsnesinu, hélt tvo fyrirlest-
ar í Klausturhólum, voiu þar um 40 á-
heyrendur.
í Skarði i Landssveif hélt eg 2, voru þar
um 50 áheyrendur. Tvo á Seljalandi und-
ir Eyjafjöllum, 55 áheyrendur. Tvo í Mar-
teinstungu í Holtum 80 áheyrendur. Tvo
í Gaulverjabæ, 80 áheyrendur. Tvo á
Stokkseyri, 140 áheyrendur. Einn á Eyr-
arbakka, 100 áheyrendur. Einn í Sand-
vík, 22 áheyrendur. Einn í Hraungerði, 40
áheyrendur. Veður var oftast bærilegt,
nema í Landsveit var sandhríð svo varla
sást Skarðsíjall frá Fellsmúla, og bleytu-
hríð var undir Eyjafjöllum. Margir komu
langt að á fyrirlestrana, og sumir gangandi
einkum seinustu dagana. í’ótti mér fólk
sækja fyrirlestrana prýðilega og hlýddu þeir
á þá með athygli.
Nærri alstaðar talaði eg um: „Norsk
ungmennafélög." Og þar sem fyrirlestrarn-
ir voru tveir: „Ætlunarverk íslenskra
ungmennafélaga.“ Hver fyrirlestur stóð
yfir í l1/^ tíma, og gaf eg mönnum kost
á að koma með spurningar, og gerðu sum-
ir það. Virtist mér, að fólk hefði mikinn
áhuga á að nota fyrirlestrana. Og sem
dæmi upp á það, skal eg geta þess, að for-
maður Eyjafjallafélagsins varði 3 dögum og
2 hestum til þess að ná mór, og svo þeim
fjórða degi til að fylgja mér á heimloið.
Annars léðu ungmennfélagsmenn og marg-
ir utanfólagsmenn mór hesta og fylgdir, eins -
og eg þurfti og oít fram yfir það. Og al-
staðar var mér vel tekið, sýnd mikil greið-
vikni. Fólk lrvervetna kurteist og þægi-
legt.
Heimili þau sem eg kom á, voru jafn-
snjöll í myndarskap góðum norskum og.
dönskum sveitabæjum.