Skinfaxi - 01.02.1910, Side 4
36
SKINFAXI
SKINFAXI,
mánaðarblað U. M. F. í. kemnr
út í Hafnarfirði og kostar 1 kr.
árgangurinn.
Útgefandi:
Sambandsstjórn U. M. F. I.
Ri tstjórn:
Helgi Vallýsson, fíuðm. Hjaltason.
Pantanir og blaðgjöld sendist
afgreiðslu
„Skinfaxa"
Hafnarfirði.
yfir efni fram og aðrar ástæður, sem að
Jíkindum ræður, um fáment og ungt féiag
— Þannig var alimikið um það rætt, að
féiagið fengi til eignar dálítinn iandskika
tii að brjóta til ræktunar blóma, trjáa og
ýmissa matjurta. — En á þessu ári komst
það þó eigi i framkvæmd, aðallega fyrir
það, að félagið gat. ekki að svo stöddu
íengið blet.t á heppil.egum stað.
Þá var annað málefni, sem félagið beitt
sér fyrir — stórmál miðað við gjaldþol fé-i
iagsins. — Var það að koma upp sund-
stæði.
Félaginu var það ijóst, hversu afarmikla
þýðingu það hefði fyrir æskulýðinn að læra
sund, eigi að eins frá íþróttalegu sjónar-
miði, heldur og fyrir líf og heilbrigðí manna
á ýmsan hátt.
Félagið fókk heppilegan stað fyrir sund-
stæðið hjá Kristnesi í Eyjafirði. — Er þar
auðvelt að ná laugarvatni í sundpollinn,
þegar svo viil verkast. Verkfróður maður
var fenginn til þess að gera kostnaÖará-
ætlun, og er hún 360 kr. fyrir utan sund-
skýli.
Verk þetta hóf félagið þegar í haust, og
var þá unnið fyrir kr. 200,00. — Gáfu fé-
lagsmenn eitt dagsverk hver, og nokkrir
2—3. — Þar að auki stoínaði féJagið til
hlutaveltu í haust, og komu kr. 75 inn
fyrir hana. Einnig leitaði félagið fyrirtækinu
styrks hjá hreppnum, og vóru því veittar
þaðan kr. 25. Á næsta vori hygst íélagið
að Ijúka verkinu og byrja þegar á sund-
kenslu.
Inn á við hefir félagið lagt stund á það,
að æfa menn sem mest og best í því að
koma hugsunum sínuin og skoðunum fram
í ræðuformi, á sem bestu og skipulegustu
máli. í því skyni hafa verið valin auðveld
málefni, sem allir gætu tekið þátt í.
Á því sviði hafa þegar orðið talsverðar
framfarir. Einnig hefir félagið haldið út
hálfsmánaðarblaði handskrifuðu.
Talsverður áhugi er og vaknaður í fé-
laginu með að æfa skíðahlaup, og eru
menn nú að undirbúa það mál sem best.
Heimilisstað sinn hefir félagið á Grund
i Eyjafirði. Hafa húsbændur þar, Guðrún
Jónsdóttir og kaupmaður Magnús Sigurðs-
son R. af Dbr. lánað fólaginu ókeypis hús
fyrir fundi sína, og látið félaginu ýmisiegt
fleira í té endurgjaldslaust. í viðurkenn-
ingarskyni hefir „Framtíð" gert þau hjón
að heiðursfélögnm sínum.
Undir vernd og umsjá ungmennafélags-
ins stendur barnafélag, — „Vorperlan".
Þótti ungmennafélögum ófært að útiloka
börnin frá félagsskapnum, en á hinn bóg-
inn of ung og óþroskuð til þess að skrifa
undir skuldbindingarskrá U. M. F. í.
Forstöðukona fólagsins, ungfrú Ingibjörg
Tryggvadóttir, er einn af félögum „Fram-
tíðar“, og greiðir ungmennafólagið allan
þann kostnað, sem af barnafélaginu leiðir,
því börnin eru tillagsfrí. í stjórn ung-
mennafélagsins eru: búfræðingur Jón Guð-
laugsson, Hvammi, kennari Vilhjálmur Jó-
hannesson, Espihóli og verslunarmaður
Hólmgeir Þorsteinsson Grund. Nú um
áramótin gekk félagið inn í samband U.
M. F. í. og hygst þannig að verða einn
þáttuiinn að því að vinna fósturjörðinni
gagn og heiður, ein höndin að því að græða
og klæöa landið og gera garðinn frægan.
Gamalársdag 1909.
H. Þ.