Skinfaxi - 01.02.1910, Qupperneq 7
SKINFAXI
39
gleyma, heldur muna eftir þeim og læra
að yfirbuga þá. Með einlægum vilja,
hyggindum og áræði tekst það, og þá mun-
um vér kornast að raun um að: þótt land-
ið „agi oss strangt með sín ísköldu él, þó
4samt tii blíðu, það meinar alt vel:‘. Og
vér munum finna til þess, að það er gott
að búa á íslandi og unna af alhug
Landinu með liamrabeltin háu,
hrikalegu gljúfrin, vötnin hláu,
landinu mcð frost og funa
fjöll og ár, sem á flúðum duna ;
landinu með grasi grónar hlíðar,
sem geymir afl og líf í skauti tíðar.
------o^o><>
Til ungra manria.
— 0—
0, munið nú cftir, að margt er ógcrt!
Það má ekki svo húið standa.
Að loggja fram kraftana væri þvi vert.
Þið vitið, að landið er nakið og hert.
0, neytið þá hugvits og handa.
Já, vakið og starfið með vet'íyndi og dáð,
og vekið þið hvern þanu, er sefur.
Og gefið þið fólkinu’ ’in gullvægu ráð,
með gullletri verða þá nöfn ykkar skráð,
og Guð ykkur kraftana gefur.
S. H.
*
♦ *
Enn þá ein góð áminning tii æskulýðs-
ins. Eru þær ætíð mikilsverðar, einkum
samt, þegar sá sem áminnir, fylgir þeim
sjálfur. Yenjum oss á að kveða i alvöru
og eins að taka kvæðin fyrir alvöru.
Kvæðaorð hafi sama sannleiksgildi og
hvert annað orð. G. H.
Frá U, M, F. Reykdæla.
Af gefnu tilefni lýsir U, M. F. Reykdæla
því yfir, að það sé fyigjandi aðflutnings-
■banni á áfengi, og muni stuðla að frara-
kvæmdum þess máls eftir megni. — Sam-
þykt með öllum atkvæðum.
Fundarhúsi U. M. í'. Reykdæla 23. jan. 1910.
Jón Hannesson
(formaður).
Gaðrím Hannesdóttir
(ritari).
Verið stuttorðir og gagnorðir!
„Skinfaxi" er lítið blað. Margir senda
honum ritgerðir. Eru þvi allir, sem í hann
rita, vinsamlega beðnir að rita stutta kafla.
En það er vandi. Ekki samt ókleift með
réttri aðferð. Og ræð eg því þeim, er rita,
að reyna þessa aðferð: Hugsaðu fyrst vel
um málefnið, skipa hugsunum þínum niður
í röð. Gakk svo á röðina og rita upp-
kast, les það oft yfir, og gæt alstaðar vel
að, hvort orðin séu ekki of mörg, og stryka
svo út þau óþörfu. Eg geri þetta oft, hef
útstrykað margar margar línur, já hálfar
blaðsiður í ritgerðum minum. Og mín
reynsla er sú: því styttra, þess betra.
G. H.
Fyrirspurnir.
1. Þarf ungmennafélag, er sækir um
skógtré til sambandsstjórnar U. M. F. í. af
skógtrjám þeim, er hún hefir keypt og
úthlutar ókeypis ungm.félögum þeim, er í
sambandinu eru, að tiltaka í umsókninni
hvaða trjátegundir það óskar að fá?
2. Hvenær má ungmennafélag, sem
fengið hefir loforð fyrir skógtrjám hjá
sambandsstjórn U. M. F. L, vitja þeirra?
B.
Svar: 1. Eigi er það nauðsynlegt.
Best þó að tiltaka trjáfjölda nokkurnvegin.
Annars verður trjám þessum úthlutað eftir
bestu vitund á allan hátt.