Skinfaxi - 01.02.1910, Qupperneq 8
40
SKINFAXI
2. Það fer nokkuð eftir veðráttu og
tíðarfari í vor. T. d. þegar frost er alveg
úr jörðu, og írosthætta úti — (15.
apríl til 15. maí). — Réttast að tilkynna
sambandsstjóra rétt áður, hvenær trjánna
verði vitjað. H. V.
Frá ritstjóranum.
„Skinfaxa" berast nú óðum ritgerðir
hvaðanæfa, og er það gott og gleðilegt,
að ungmennafélagar ætla að nota blaðið
sitt. En sá er gallinn á, að flestar eru
ritgerðir þessar svo langar, að engin tiltök
er að flytja þær í heilu lagi, og sumar alls
ekki ■— fyrst uin sinn. Munið, að „Skin-
faxi“ er að eins lítið mánaðarblaðl En
vonandi á hann fyrir höndum að „stækka"
með aldrinum — því undirtektir manna
hafa verið langt fram yfir það, sem eg
þorði að gera mér von um í upphafi. —
Kaupendur nú um 600, og tel eg það
stórgott! Auðvitað þarf þess með, þar
sem blaðið er gefið út, án þess að nokkur
eyrir só til reksturs þess annar en blað-
gjöldin ein. Og verðið þó lágt, 1 kr. árg.
Er því nauðsynlegt, að kaupendur reynist
vel. Enda er alt útlit á þvi. Margir hafa
þegar greitt alt ársgjaldið. En margir eru
þó eftir enn.
Sökum illra samgangna hefi eg talið rétt
að senda kaupendum blaðið þegar við
pöntun, þótt eigi hafi fylgt hið ákveðna
hálfsársgjald fyrirfram. En nú er svo
langt liðið, að allir ættu að hafa gert þau
skil. Með 6. tbl. hættir sending blaðs-
ins til allra þeirra, sem ekki hafa goldið
fyrri hlnta blaðgjaldsins. Og þá á einnig
að greiða síðari hlutann með fyrstu póst-
um! „Skinfaxi“ er stofnaður á fyrirfram-
greiðslunni einni, og verður ]>vi að halda
henni framl H. V.
Frá ungmennafélaginu „Geisli'* í Að-
aldal í hngeyjarþingi.
Ungmennafélagið „Geisli" var stofnað
vorið 1908. Félagið hefir haldið allmarga
fundi, þar sem fram hafa farið ýmsar
íþróttir, gíímur, stökk, aflraunir, upplestur
o. fl.
Siðastliðið vor koin félagið sér upp sund-
polli, og fór þar fram sundkensla, og tóku
þátt í henni um 20 ungrnenni. Mun félagið
hafa í huga að halda þeirri kenslu áfram
framvegis. Fleiri framkvæmdir hefir félag-
ið í huga í náinni framtíð. En þó býst-
eg við, að fjárskortur dragi heldur úr fram-
kvæmdum Geislafélagsins, eins og svo-
margra annara ungmennafélaga.
Bráðlega mun félagið ætla ser að ganga
í sambandið. Félagsmenn oru um 40. í
stjórn félagsins eru: Konráð Yilhjálmsson
gagnfræðingur, Jóhannes Friðlaugsson kenn-
ari og Jón Jónsson.
Geislungi.
Drátturinn á útkomu þessa tölublaðs
stafar af ófyiirsjáanlegum töfum í prent-
smiðjunni: Prentararnir 'urðu að fara í
langferð vikutíma um það leyti, er prenta
átti blaðið, rétt áður en febrúarpóstar fóru.
Kaupendur vinsamlegast beðnir að virða
á betra veg. II. V.
Leiðaryísir i skógrækt.
Nokkur eintök af „pósa“ þessum, er
sambandsstjóri samdi og gaf út í fyrra,
eru enn þá til og fást á afgreiðslu
„Skinfaxa.“
Yerða þau send ungmennafélögum ókeypis
gegn 5 aurum (frímerki) til burðargjalds,
meðan upplagið endist.
^aníié því í tíma !
•<K»
Prentsmiðja Hafnarfjarðar.