Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1910, Qupperneq 2

Skinfaxi - 01.06.1910, Qupperneq 2
66 SKINFAXI Auðvitað þótti hann ónýtur flokksmaður. Ogr sumir sögðu, hann væri eins og álfarnir fornu, þyrði hvorki að vera með Guði né Kölska. Var hann þó ættjarðarvinur ekki minni' en margur ákafur stjórnmálamaður. Og kristindóminn elskaði hann. Góðir eru ákafir flokksmenn. En gott er að hafa fáeina líka þessa manns. Þeir sjá þó betur í einu það, sem gott er hjá báðum andstæðingunum. Eg held, að best sé fyrir æskufélögin að sneiða hjá öllum ofstækisflokkum. Reyna heldur að sætta og sameina alla góða krafta. Q.. H. SUnc&v Ujv ungmennafélagsskapur íslands, og lengi lifi »Skinfaxi« til að gróðursetja það, sem gott er, fagurt og nytsamt hjá íslenska æskulýðnum, »vormönnum«, vorboðum landsins; og og til að tengja hann.sam- an óslítandi samúðar, áhuga og vilja- böndum, til að vinna að eudurreisn, lands síns og þjóðar. Hefi fengið fyrstu 4 tbl. (eg sendi með ánægju andvirði 1. árgangs), sem mér yfirleitt líkar mjög vel. Á þeim má sjá áhuga þann hinn mikla, sem er hjá leiðtogum þessa mikilsverða félagsskapar, og einnig, hve félagsstarfið er víða komið langt á leið, og livað blessunarríka ávexti það er farið að bera nú strax, á æskuárunum. Af því mér er reglulegaannt um bless- un og blómgun þessa félagsskapar, og tel hann hinn mikilvægasta, er nokkurn tíma hefir verið stofnaður á ættjörð o.kk- ar, þá langar mig ti! að Leggja honuni 2 heilræði, er bæði snerta blaðið, og það sem ritað er. Pað fyrra er, að eng- inn skrifi eitt einasta orð í blaðið — eða annarsstaðar — undir dularnafni. I fysta lagi ætti ekkert það í blaðinu að standa,. er þyrfti þess við, að því væri skýlt með dularnafni. I öðru lagi . vegna þess, ,að hætt er við, að sá er temur sér það í æsku, eigi erfitt með að. leggja það nið- ur. Og í þriðja lagi vegna þess, að það er ósamboðið hreinskilnu, djörfu, sannleiksleitandi, skynsömu og ment- uðu fólki. Lítið í vikublöðin. Getur nokkir metið, hvert tjón þjóð vor hefir beðið, eða kann að bíða við leyni- skriftirnar, sem þar úir og grúir af? Reynt hvað eftir annað aðmyrðamannorðmanna, með ósannindum, og rangfærslum. Og alt þetta er framið í myrkrinu — undir dularnafni. Mikill meíri hluti af því, sem nú er ritað í fiest biöð landsins, mundi aldrei koma fyrir almenningsaugu, ef ekki, væri ritað undir dularnafni, — ef siðferðis og velsæmistilfinningin væri svo rík hjá þeimerriía, að þeir blygðuðust sínfyrir, að hafa sömu aðferð ogþjófar og ræningjar,. sem sé þá, að standa grímuklæddir f skugga eða afkima til að ræna þá fé og fjöri, er um veginn fara. Að myrða mann- orðið er engu betra en að taka lífið. Æskulýður Islands! I hamingju bænum, taktu hér í taumana! Temdu þér að skrifa æfinlega undir nafni. Skrifaðu aldrei neítt það, er þú skammast þín fyrir, að nafnið þitt standi við. Vendu þig á hreinskilni og einurð. Og kæmi það fyrir, að þú segðir beiskjuyrði í garð- manns eða málefnis, þá lýstu víginu á hendur þér, að dæmi drenglundaðra forn- manna. Fremdu aldroi launvíg. Pau eru merki hugleysis og ódrengskapar. >Seinna á þínum herðum hvíla heill og forráð þessa tánds. Væri ekki gaman, og ánægjulegt, að þá væri leyniskrifta- öldin með öllu undir lok liðin? Rað síðara er, að ræða aldrei um trú- mál í blaðinu og blanda þeim aldreiinní ungmennafélagsstarfsemina. Um þau eru ákaflega skiftar skoðanir. Og fá mál eru líklegri til að verða að þrætuefni. En blaðið má ekki verða þrætublað. Þá er ógæfan vís. Min skoðun er, og hún er bygð á reynslu, að trú eða trúmál eigi ekkert skylt við ættjarðarást. Reynsla og þekking á mönnum sýnir okkur svo áþreifanlega, að menn, sem kallaðir eru

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.