Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1910, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.06.1910, Blaðsíða 4
68 SKINFAXI U. M. F. Reykdæla í Borgarfirði 2 - Hrunamannahrepps 1 - Kennaraskola íslands 2 Auk ofan nefndra félaga hafa þessi greitt sambandsskatt fyrir árið 1910—1911: U. M. F. »Seytjándi júní« í Hafnarfirði. - - Flensborgarskólans — »Drífandi« undir Eyjafjöllum. - - »Biskupstungna«Biskupstungum. - - 'Vatnsleysustrandarhrepps. - - »Garðarshólmi« í Mýrdal. » - »Samhygð« í Gaulverjabæ. Skattur hefir alls verið greiddur af 676 félagsmönnum, en í fjórðungsbandinu munu vera nálægt 800. Sömuleiðis eru það nokk- ur félög, sem eigi hafa sent skýrslu. Af skýrsium þeim, er fylgdu umsóknum um skóggræðslustyrk, sást, að meir en 1600,00 krónum hafa 9 félög varið eða ákveðið að verja á þessu ári til skóggræðslu. Þessi niál voru tekin til umræðu á þing- inu. 1. Sa/nbandslagabreytingar. Þriggja manna milliþinganefnd var kosiu til þess að endurskoða sambandslögin og gera breytingar við þau, og leggja tillögur sínar, fyrir fjórðungsþing 1911. Þessum lagabreytingum mælir þingið með: Við 1. gr. og 9. gr. felst pingið ábreyting- artillögur fjórðungsstjóra (sb: Skinfaxa 8 tb.). Við 5. gr. Inn í hana bætist á eftir setn- ingunni: »án þess að greiða þar nokk- ur gjöld«. Þessiorð: En skírteini fráfé- lagi sfnu verður hann að sýna, ef þess er krafist«. Við 7. gr. í stað orðanna: »í febrúar cða marsmánuði« komi: »fyrir 21. rnaí«. Við 10. gr. Önnur málsgrein orðist svo: »Hann ávísar öllum reikningum, sem greiðast úr fjórðungssjóði«. Við 11. gr. Aftan af greininni falli: »fyr- ir 14. maí ár hvert«. En í staðinn komi: »svo fljótt sem auðið er. Skal hún vera komin í hendur sambandsstjórn, eigi síðar en fyrir 5. júní sama ár. V;ð 14. gr. Á eftir óröunum: »sambands- þing semur* komi: »Skýrslan skal ná yfir næstliðið ahnanaksár«. Þcssarbreyt- ingarlillögur ásamt skýringum verða sendarfjórðungsstjórnum hinna fjóröung- anna til athugunar ásamt áskorun um undirbúning til sambandsþingsins 1911. 2. Þegnskylduvinnumálið. Sjö manna milliþinga nefnd kosin til þess að undirbúa málið undir næsta fjórðungsþing. 3. Orundvallaratríði U. M. F. íslands. Svo hljóðandi áskorun var samþykt. »Fjórð- ungsþing Sunnlendingafjórðungs 1910, skor- ar á Sambandsþingið 1911 að halda fast við 'grundvallaratriði U. M. F. ísland. 4. Aðflutningsbann áfengis. Svohljóðandi tillaga var samþykt í einu hljóði: »Þingið tjáir sig eindregið fylgjandi að- flutningsbanni áfengra drykkja.« 5. íþrótta/nótið 191J. Þriggja manna nefnd var kosin til að að- stoða fjórðungsstjórn við undirbúning und- ir íþróttamótið. Kosningu hlutu Sigurjón Pétursson Björn Jakobsson Guðm. Sigurjónsson. Ennfremur skoraði þingið á sambands- stjórn að vekja áhuga síjórna hinna fjórðung- anna um íþróttamótið. 6. Skógrœktar-dagur. Fjórðungsstjórn falið að grenslast eftir því hjá félögunum í fjórðungnum, livort þau vilji konia á almennum skógræktar-degi fyrir fjórðunginn. 7. Þátttaka í heilsahœlinu. Fjórðungsþingið skorar á alla ungmenna- félaga að ganga í heilsuhælisfélagiö eða styrkja það á annan liátt. 8. Nœsta fjórðungsþing. Skorað á fjórðungsstjórn að sjá ráð til þess, aö næsta fjórðungsþing verði haldið ausian fjalls. 9. Stjórnarkosning. Þorkell Þ. Clementz, formaður. Guðmundur Davíðsson, ritari. Ragnhildur Pétursdóttir gjaldkeri. Varastjórn: Einar Þórðarson, v.formaður. Lóa Þórðardóttir, v.ritari. Guðbrandur Magnússon, v.gjaldkeri. Svo hljóðandi þingsályktunartillaga var samþykt: FjórðungsþingSunnlendingafjórðungsl 910 lýsir því yfir, að það felst á skoðun Þ. Þ. Clementz fjórðungsstjóra um fjórðungssam- bandsmál, að þau gangi gegnum hendur fjórðungsstjóra og þaðan til sarnbandsstjórnar, ef þörf er á (sbr. 8 tbl. Skinfaxa 1. ár.) Þ. Þ. C.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.