Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.09.1910, Side 2

Skinfaxi - 01.09.1910, Side 2
90 SKINFAXI nú ekki að byrja þar eins og annarstaðar, byrja á því að ryðja brautir til alls góðs? Fyrirgefa verður æskan gamalmennum, þótt þau skilji ekki sumar hugsjónir æskunnar. Reyna að vinna þau með góðu, með kær- ieika. Niðurlag. Já, mikið er nú ætlunarverk ungmenna- félaganna. Hef eg þegar nefnt allmikið af því. En sun:t er enn ótalið. Skal nú nefna í fám orðum það lielsta, sem komið er. Og það er þetta: Elska ættjörð, sögu liennar og mál; votta elsku þá í verkinu, meðal annars með þvi að þekkja og nota vel gæði landsins og rækta það vel og rækja vel móðurmálið. Fullkomna sig í alefling líkama og sálar ineð íþróttum og sjálfstjórn, siðgæði og trú- rækni. Verða þannig verulega frjáls og öðlast sanna og varanlega gleði. Gleðja sig með því einu, sem er gott og fallegt. Takist nú æskufélögunum þetta, svo mun fólkið hænast að sveitunum, og dáð og sið- gæði þróast í þeim, og þar verður þá gaman að lifa, og nógur verður vinnukrafturinn. En hvað er nú mest áríðandi af ætlunar- verki ungmennafélaganna? Ætli það sé ekki siðgæðið? En gleymið því ekki, ungmenna- félagar, að kristileg trá — og aðra trú að- hyllist þið aldrei að gagni — er rót siðgœð~ isins! Án trúar og siðgœðis þrífast œsku- félögin aldrei! Verða þá til ónýtis eða ills eins. Pað fer að draga úr íþróttunum og œttjarðarástinni, þegar siðgœðið er farið. Þá fer og freisið í hundana, og gleðin verður óhrein og svikul. Grikkir fornu voru mestu íþróttainenn. En heldur hrakaði þeim í fim- ieikum og fleiru góðu, þegar trú og siðgæði fór að hnigna hjá þeim. Hugsum oss drukkinn æskulýð, eða á »vissum« veiðum. Hann kærir sig kollóttan um skíði, glímur og sundi íslands æskumenn! y Eflið og styðjið Ungmennafélögin, svo að þau geti franikvæmt áður nefnd og önnur ætlunarverk sín. Þau eru svo vegleg og nyt- söm, að allir ættu að gleðjast við framkvæmd þeirra. Verið alvörugefnari og staðfastari. Léttúð og hviklyndi klæðir ykkur afarilla. Lífið er enginn leiknr, síst hér á landi. Það er alvarlegasta skylda. Enginn sér fyrir endann á afleiðingum þessa lífs. Varlegast að gera ráð fyrir eilífum afleiðingum; alténd að minsta kosti mjög langvinnum. Það, til dæmis, sem þið gerið nú á þess- um alvarlegu sögumótum þjóðar vorrar, hefir ómælanleg álirif nær og fjær. Áhrif á heimilin, sveitirnar, þjóðina, já, á aðrar þjóðir. —- Slór sómi væri það, að hrífa líka á þær til góðs. — Áhrif á komandi kynslóðir — ill eða góð áhrif. Undir ykkur er að miklu leyti komið, hvort þjóðin lifir skamt eða lengi. Ekki má mikið út af bera, til þess hún deyi út. Bara hún deyi þá með sóma! Hún er svo fátnenn. Verður því að nota vel þá fáu krafta, sem til eru. Sameina þá vel. Og halda svo vel út í samvinnunni. Jón Sigurðs- son mikli taldi samtakaleysið og þolleysið með lökustu þjóðgöllum vorum. Enda eru þeir meir en nógir til þess að drepa þjóð- ina smánardauða, ef þeir verða ekki mink- aðir og helst afmáðir í tíma. Nógar eru gáfurnar, ekki vantar oss þær. Bara viljinn væri nógu sterkur til að beita þeim til góðs. Góður og öflugur vilji er sál allra framfara. Án hans eru gáfurnar hefndargjöf. Hann er hjarta kærleikans. Guð gefi ykkur vit, en umfram alt vilja, afl og þol til að bæta, manna og efla þjóðina. Biðjið hann um hjálp til þess. Bænin lijálp- ar, hvað sem hver segir. Guðmundur Hjaltason. Skuldbindingarskrá. U. M. F. <L ■’ .",1 . ■:.! ----------.. (Ágrip af ræðu fluttri á aðalfundi U. M. F. Drífanda ,n/i 1910.) Skuldbindingarskrá pkkar hefir það hlut- verk eitt að brýna fyrir okkur og minna

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.