Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1910, Qupperneq 5

Skinfaxi - 01.09.1910, Qupperneq 5
SKINFAXI 93 Skuldbinding okkar er slíkt járn. Ef þjóð- in ber það og verður skír, þá sannar hún ætt sína, — sver sig í ætt þeirra manna, sem brugðu sér hvorki við sár né bana og voru mest göfugmenni sinnar tíðar. — En ef hún rýfur skuldbindinguna og kastar anda hennar frá sér, þá glatar hún ættgöfgi sinni og sest á bekk með afkomendum þrælanna. »Hinum ungu er framtíð íslands falin.« Við höfum því að nokkru leyti bæði veg og vanda af því, hvernig hún verður. Og skuldbindingarskrá okkar sýnir, að við þekkj- um þær skyldur, sem hvíla á okkur gagn- vart fósturjörðinni og viljum reyna að upp- fylla þær! Sigurður Vigfússon. P— íslenska iðnsýningin 1911 Og Ungmennafélögin. Eins og alkunnugt mun nú orðið um land alt, er ællast til, að haldin verði ísl. iðnsýning að sumri, á 100 ára afmæli Jóns Sigurðssonar. >Þá á að sýna ment og mátt ísl. þjóðar- innar«. Fyrirtæki þetta er gleðilegt mjög en einn- ig alvarlegt. Því það er mjög mikils vert, hvernig sýning þessi fer úr hendi. Sjálfstœði er það orðið, sem hæst og feg- urst hljómar í eyrum æskulýðsins nú á dög- um. Og það er fagurt orð. En það þarf að vera meira en orðið tómt. Sjálfstæði í verkum. Sjálfstæð þjóðmenning. — — Sýn- ingin að sumri á að bera vott um »sjá!f- stæði« ísl. þjóðarinnar. Á að sýna, hvort sjálfstæðishrópið er orðin tóm, eða annað meira. Vér skiljum því öll, livað í húfi er! — Þjóðarsómi vor, álit og framtíðarhorfur! Fátt gæti því orðið þjóð vorri betra vopn í sjálfstæðisbaráttunni en góð og öflug iðn- sýning, þar sem þjóðin öll mælti sér mót og bæri fram »dýrmætustu hugsun vora í iðn- aði, fegurstu gerðir vorar«. Og dómur sá, er lagður verður á sýning- una, verður dómur um ísl. sjálfstœði! Hér verða ungmennafélögin að hlaupa undir bagga. Þau verða að blása í glæður áhugans, svo skíðlogi í allan vetur á hverju heimili milli hafs og lilíða. Og ungir menn og efnilegir, konur og karlar eiga að nota veturinn vel til að vinna að því, sem þeim lætur allra best, og senda það á sýning- una! Hamingjan gefi, að sú verði raun á, að enn eimi eftir af gömlum ísl. heimilisiðnaði. Að verklægni afa og ömmu sé eigi liðin undir lok. — Það væri gleðileg frétt! — Stúlkurnar verða að spinna, prjóna, vefa og sauma, eins og þær kunna best, bregða bönd, spjaldvefa og þreyta allar þær bestu og fegurstu »handlistir«, er þær kunna. Pilt- arnir, snn'ða tré og járn, skíði, skauta, sleða t. d., skera í tré, ríða karfir, o. m. fl. Setjum svo, að kæmi upp úr kafinu hing- að og þangað í sveitum landsins munir ný- smíðaðir, er stæðu jafnfætis því besta, ervér höfum séð af ísl. iðnaði frá fyrri tímum, t. d. silfursmíði, tréskurði (rúmfjalir og stokk- ar) karfir úr lituðum tágum o. m. fl. — Það væri menningar- og sjálfstæðisvottur, er tal- aði máli voru kröftuglega víða um heim. Því óefað munu fjöldamargir útlendingar sækja sýningu þessa, þeir er til landsins koma alt sumarið. Ungmennafélagar! Eggið nú hver annan lögeggjan og alla sveitunga yðar unga og gamla til að styðja mál þetta af mætti. Starfa að því af alefli að sýna og sanna í verki sjálfstæði ísl. þjóðarinnar. — Beri það starf sigur úr býtum, er mikið unnið! — Sýningarnefndin hefir sent öllum prestum og próföstum út um land alt, o. fl. prentuð bréf til útbýtingar, og fást þar eflaust ýms- ar skýringar á máli þessu. Blöð vor öll hafa skýrt frá því í sumar. Hluttakan þarf að verða almetin, »og má því enginn óttast, að hann geti ekki búið til eitthvað, sem boðlegt sé.« Mál þetta er ungmennamál í fyllsta og dýpsta skilningi. Það er skylda vor að sam-

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.