Skinfaxi - 01.06.1911, Page 4
44
SKINFAXI
O ...— ■■■ o
S K I N F A X I
—mánaðarblað U. M. F. í.—kemur út í Hafnarfirði
og kostar 1 kr. árgangurinn.
Ú tgefan di:
Sambandsstjórn U. M. F. I.
Ritstj órn:
Helgi Valtýsson. Guðm. Hjaltason.
Pantanir og blaðgjöld sendist
AFGREIÐSLU „SKINFAXA“, HAFNARFIRÐI
O ......=■■..—.....-- ■■■ ■ ^-o
Sambandsþing
U. M. F. í.
Nú er hið þriðja sambandsþing« ungmenna-
félaga íslands um garðgengið. Verðaþing-
fréttir ofl. að bíða næsta tbl. sökum þrengsla,
og skal hér að eins drepið á fáein atriði.
Þingið sátu 13 kjörnir fulltrúar og voru
9 þeirra af Suðurlandi: einn úr Borgarfirði,
fjórir úr Rvík. einn úr Mosfellssveit, tveir úr
Árnessýslu og einn úr Rangárvallasýslu; þrír
vóru af Norðurlandi og einn af Austurlandi.
— Stóð þingið yfir f 3 daga, 14.—16., og
má segja, að unnið væri daga og nætur.—
Sátu fulltrúar að lokum Jóns Sigurðssonar
fagnaðinn með ungmennafélögum Reykjavíkur
og vóru viðstaddir, er íþróttamótið var sett.
Báru því allmargt úr býtum þótt fara yrði
aftur þegar þ. 25. júní.
Eitt aðalstarf þingsins var breyting sam-
bandslaganna á þann veg, að nú ersamband-
ið aðallega fjórðungasamband og var því
sú breyting ger á sambandsstjórn, að nú er
aðeins einn sambandsstjóri, eins og stungið
var upp áá sambandsþingi 1908. Erufjár-
forráð mestöll og eins sameiginleg mál
lögð í hendur fjórðungsstjórna og fjórðungs-
þinga.
Sambandsstjóri til næstu þriggja ára var
kosinn Quðbrandur Magnússon prentari í
Reykjavík. Vóru eigi fleiri í kjöri.
Sambandsstjórinn nýi.
»Skinfaxi« óskar ungmennafélögum íslands
til heilla og hamingju með sambandsstjór-
ann nýja! Betri dreng og sannari ungmenna-
félaga gátum vér vart fengið.
Ouðbrandur Magnússon er kornungur
maður. Skaftfellingur að uppruna, en alinn
upp eystra á Seyðisfirði. — Hann er einn
af frumherjum ungmennafélaganna hér á
landi. Það var hann og Jón prentari Helga-
son, er gengust fyrir stofnun U. M. f.
Reykjavíkur, og vóru báðir í stjórn þess
félags fyrsta árið. — O. M. hefir tvívegis
verið formaður U. M. F. R. og er það nú.
Er alkunnugt, hve vel það félag hefur starf-
að á marga vegu, þarf eigi annað en nefna
»Skíðabrautina«, — »Sundskálann« o. m. fl.
Q. M. hefur dvalið árlangt á lýðháskóla í
Danmörku og ann öllum þeim straumum,
er myndað hafa hina djúpu og aflmiklu elfu
ungmennafélagsskaparins.
»Skinfaxi« getureigi beturóskaðsambands-
stjóranum nýja, en að honum veitist líf og
lán til að vinna U. M. F. í. til gagns og
blessunar.
Og að honum verði starfið til gleði!
H. V.
Fyrirlestraferð.
Eg var í Stykkishólmi um páskana ásamt
þeim Hermanni Jónassyni búfræðingog Einari
Helgasyni garðyrkjumanni Héldu þeir fyrir-
Iestra fyrir Búnaðarfélagiö, en eg fyrir Al-
þýðufræðslufélagið. Vóru fyrirlestrar mínir
4, ogefm þeirra þessi: Trúarhetjurnar, Þjóðlíf
Noregs, Andleg hringsjá, Jón Arason. Við
byrjuðum með 150 áheyrendum. Höfðum
seinast 300áheyr. Athygli ágætt; líkaði mér
rnjög vel við Hólmverja þá, sem eg hafði
nokkur kynni af.
Þaðan fór eg yfir Kerlingarskarð og í
Miklaholtshrepp. Hitti þar fornkunningja. Hélt