Skinfaxi - 01.06.1911, Síða 5
SKINFAXI
45
fyrirlestra á leiðinni úr Hólminum og yfir
Mýrarnar.
Svo fór eg upp í sveitir þær, þar sem eg
var á þernsku og æskuárunum: Stafholts-
tungur og Þverárhlíð. Þar hélt eg 3 fyrir-
lestra. Var þeim og mér tekið prýðisvel.
Og var mér hver stundin dýrmæt, er egskoð-
aði æskustöðvarnar, og talaði við ættmenn
og kunningja, sem eg ekki hafði séð í lieil-
an mannsaldur.
Mikil breyting var orðin til hins betra í
byggingum á sveitum þessum. En einna
ánægjulegast var þó að sjá og heyra, að skógar
hafa tekið miklum framförum þar á seinni
árum. Svipað er víða um Borgarfjörð. Svo
heimsótti eg æskufélög Hálssveitinga, Hvítsíð-
inga og Reykdæla og hélt þar 4 fyrirlestra.
Alt mjög ánægjulegt þar að sjá og heyra eins
og áður.
Síðan fór eg ofan á Mýrar og hélt 4
fyrirlestra í æskufélaginu í Alftanesshreppnum;
vóru þeir haldnir á 2 stöðum þar, því langt
er á milli félagsmanna, sveitin víðlend og
örðug yfirferðar. Umtalsefnin voru oftast
þessi: Noregs þjóðlíf og búnaður, Andleg
hringsjá, Trygð við ættjörð o. s. fr.
Síðan fór eg út í Hraunhrepp og hélt
þar 2 fyrirlestra, og seinast einn í Borgar-
nesi. Líkaði mjer einnig mjög vel við fólk
á Mýrununi.
Alstaðar annars var mér tekið mjög vel.
Aftaf boðin ókeypis fylgd á hestuin,
svo eg reið miklu oftar enn eg þurfti, og
annað var eftir þessu.
Mikil er framför í vegagjörð og hýbýla-
bótum.
Eru margir bæir mjög vel hýstir. En dýrt
hlýtur þetta að verða bændum.
Af ýmsu merkilegu, sem eg sá, vil eg
rétt nefna bæinn í Vogi í Hraunhreppi. Hann
er timburhús og er 57 ára ganiall ogstend-
ur vel!
G. H.
Fyrsta
íþróttamót U. M. F. íslands.
það var ckki veigaminsti þátturinn í
100-ára minningarhátíðinni miklu, sem
nú er um garð gengin. Og allmikið var
í það spunnið, því eigi stóð það skem-
ur en viku, 17. -25. júní. Má svo telja,
að það tækist mjög vel og að flestu leyti
óllum vonum fremur. f>átt-taka talsverð,
aðsókn allgóð og veðrátta hagstæð mjög.
Oftast nær helti hásumarsólin geislabless-
un sinni yfir leikvöllinn mikla, þar sem
hraustur æskulýður keppti um verðtaun
í margbreyttum íþróttum kvöld eftir kvöld.
Alls mun uin 70 íþróttamanna hafa tek-
ið þátt í íþróttum þessunr að ieikfimis-
flokkum meðtöldum. Einstakir íþrótta-
menn gáfu sig fram, um 40, en vóru þó
sumir þeirra úr leikfimisflokkum þeim, er
sóttu mótið.
Pað var fögur sjón og nýstárleg hér
á landi — og minnisstæð öllum þeim
er íþróttum unna — laugardagskvöldið
þ. 17. sjáifan þjóðminningardaginn síð-
degis, er íþróttamótið var sett: Lúðrasveit-
in lék fótgönguiag, og fjöldi áhorfenda
streymdi inn að leikvellinum, sem var
skreyttur fagurlega íslenskum fánum og
fjöldamörgum blá-hvítum veifum. Sáust
þar eigi aðrir litir. Oekk þá íþróttasveit-
in inn á völlinn í stórri fylkingu. Hvítt
og blátt voru þar aðallitirnir á búningum
íþróttamanna. Fremstur gekk leikfimis-
flokkurjUngmeyjafélagsins »lðunnar,« þar
næst íþróttafélag R.víkur«, svo leikfimis-
flokkur U. M. F. R.víkur svo »Fótbolta-
félag R.víkur« og Fótboltafélagið Fram«
og síðan ýmsir íþróttamenn utan félaga,
sér í hóp. Var fáni borinn fyrir liverjum
flokki. — Fylking þessi gekk samstíg og
fjörlega fram á leikvöllinn, þar til er fylk-
ingahlið var beint andspænis ræðupalli
þeim, er reistur var fyrir miðri vallarhlið í
»skógi blárra fána.« Sneri þá fyikingin
sér að ræðupallinum, hver flokkur mynd-