Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1911, Síða 6

Skinfaxi - 01.06.1911, Síða 6
46 SKINFAXI aði brjóstfylkingu, og gengu svo allir flokkar samhliða yfir þveran völlinn, stað- næmdist fá skref framundan ræðupalli og kvöddu »merkismenn« með fánum sínum biskup vorn, er sýndi oss þann heiður og miklu vinsemd að setja íþrótta- mótið með snjallri ræðu. Pað var fögur sjón og gleðileg! — Það kvöld vóru aðeins íþróttasýningar nokkurar, en engin köpp. Leikfimisflokk- arnir þrír sýndu leikfimi; o. fl. Dagskrá mótsins var á þcssa leið: 18. júní, kl. 12 á hádegi: Keppt í leikfimi af íþróttafélagi Rvíkur og leikfimisflk. U. M. F. Rvíkur. kl. 4 síðdegis: Fegurðarkappglíma, Hástökk, Lang- stökk, Knattkast, Kúluvarp og Kappganga 8042/s stiku. 19. júní kl. 9 síðdtgis: c . ( 200 st. bringusund ( 150 st. fyrir drengi yngri en 18 ára. 20. júní kl. 9 síðd.: Kapphlaup 100 st. og 402*/? st., Stang- arstökk og Knattspark, samkeppni milli félaganna. 21. júní kl. 9 síðd.: Flokkaglíma, í 4 flokkum eftir þyngd, Lyftingar (aflraunir). 22. júní kl. 9 síðd.: Kapphlaup 8042/g st., Spjótkast, Mílu- hlaup og Girðingahlaup. 25. júní kl. 4 síðd. Grísk glíma í tveim flokkum; síðan skrúðganga íþróttamanna, verðlaunum út- býtt, og mótinu slitið með stuttri ræðu, er vararform. framkvæmdarnefndarinnar (H. V.) hélt. Frumrissið að verðlaunaskjölunum hafðí gert Ásgrímur málari Jónsson. Verðlauna- peningar vóru úr silfri og eir (bronce) af : sömu stærð og gerð, á við 2ja krónu pening. Öðru megin er mjög skýr og" falleg mynd af Jóni Sigurðssyni, upp- hleypt, og kringum hana letrað: Islandi alt. Hinu megin stendur r sveig: íþróttamót Ungmennafélaga ís- lands 1911, en innan í er svo grafið verðlaunin (1., 2. eða 3.); er verðlauna- peningurinn borinn í bláu og hvítu bandi. Verðlaunaskrá íþróttamótsins: Fimleikaflokkur, íþróttafélags Reykjavíkur 113 stig, verðl. silfurskjöldur. Fimleikaflokkur I Ingmennafél. Reykjavíkur 112 stig, verðl. heiðursskjal. Fimleikaflokkur Ungmennafél. »Iðunn« kepti ekki, en fékk silfurskjöldjf fyrir sýningu sína. Fegurðarglíma: 1. verðl. Hallgrímur Bene- diktsson (silfurbikar). 2. verðl. Geir Jón Jónsson. 3. verðl. Magnús Tómasson. Hástökk: 1. verðl. Magnús Ármannsson, stökk 1,48 stik. 2. verðl. Kristinn Pétursson, stökk 1,44 stik. Langstökk 1. verðl. Kristinn Pétursson, stökk 5,37 stik. 'f'b 2. verðl. Sigurjón Pétursson, stökk 5,26 stik. 3. verðl. Kári Arngrímsson, stökk 5,22 stik. Knattkast 1. verðl., Sigurjón Pétursson, kas . 70,85 stik. 2. verðl., Ágúst Markússon kastaði 61,15 stik. Kúluvarp: 1. verðl. Sigurjón Pétursson, kast. 8,87 stik. '&J- l ft, ^ 2. verðl. Helgi Jónasson, kastaði 7,55 stik. Kappganga yfir 8042/., stik.: 1. verðl. Sigur- jón Pétursson, á 4 mín. 15 sek. Heiðursskjal: Helgi Þorkelsson,á 4 mín. 16 sek. Sund yfir 150 stikur: I. verðlaun Erlrngur Pálsson, á 2 mín. 24 sek. 2. verðlaun Sigurður Magnússon, á 2 mín. 55 sek. Sund yfir 2U0 stikur: 1. verðh Erlingur Pálsson, á 4 mín. 2'/., sek. Kapphlaup, 100 stikur: 1. verðl. Kristinn Pétursson, á 114/r> sek. 2. verðl. Geir Jón Jónsson, á 12y6 sek. 3. verðl. Sigurjón Pétursson, á 122/a sek.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.