Skinfaxi - 01.07.1911, Síða 6
54
SKINFAXI
ungmennafélög geri mikið gagn, þá er engin
efi á því, að þau vinna þó gagn, þó það
ekki sjáisl nema að vel sé að gætt.
Það hefir til dæmis ekki litla þýðingu
fyrir hvern ungmennafélaga og aðra, að temja
sér að beita starfskröftuni sínum í félagi og
utan félags, og að vera félagslyndur, því ef
allir ungmennafélagaruir eru vel samtaka,
eins og þeir læra auðvitað á skömum tíma,
þá líður lieldur ekki á löngu, áður en þeir
afkasta miklu.
Svo hefi eg þetta brot ekki lengra að
sinni: Eg óska þér góðrar framtíðar »Skin-
faxi« minn!
Svínafelli vorið 1911.
Jón Pálsson.
U. M. F. „Tindastóll“
er eitt hinna eldri Sambandsfélaga í U.
M. F. í. Er því löngu tími til kominn
að geta þess að nokkru í Skinfaxa. Hefir
það meðlimi aðallega úr Sauðárlireppi
hinum forna (nú Skarðs- og Sauðárkróks-
hreppur). Starfaði fyrst 1 ár sem mál-
fundaog skemtanafélag. Tók sér þó þegar
Ungmennafélags nafn, seui slíkum félög-
um er títt. Knúðist nú brátt til meiri al-
vöru um hina nýju þjóðfélagshreyfingu.
Afsalaði sér því nokkrum meðlimum með
undirskrift Sambands-skuldbindingarinn-
ar. Sneið lög sín í grundvallaratriðum
eftir Sambandslögunurn og gjörðist reglu-
legt Sambandsfélag haustið 1908. Hefir
síðan starfað og smáþroskast fyrir anda
og hugsjón U. M. F. í. - Þegar fyrsta
árið lagði félagið stund á glímur og hóf
leikfimiskenslu. Keypti talsvert af leik-
fimisáhöldum og leigði dýrt hús. Ekki
annars völ. Mun »Tindastóll« vera hið
fyrsta U. M. F. utan kaupstaða áíslandi,
er hefir leikfimi fuilkomlega í því sniði,
senr hún nú er rekin um öll norðurlönd.
Auk tveggja leikfimisflokka (karla og
kvenna) innan félags hefir barnaskóli og
unglino-askóli Savtðárkróks einnig notið
leikfimi hjá félaginu á hverjum vetri síð-
an. —Reglulega fundiheldur félagið jafn-
aðarl. 2var á mánuði yfir veturinn. Fer
nú að hafa fundi og mót við og við að
sumrum einnig — Handritað blað »Ár-
geislinn« lesið upp á fundum. Hvort-
tveggja fundur og blað oft með talsverðu
fjöri og alvöru. Ýmsum mikilverðum mál-
um, jafnvei hinum dýpstu og helgustu
hefir verið hreyft íræðuogriti innbyrðis
í félaginu. Nokkur mál þegarí sýnilegri
framkvæmd. Auk leikfimi og glímna hefir
félagið gengist fyrir sundkenslu í köldu
vatni 2 síðustu árin hér innsveitis. í vor
bygður garður til sundtjarnarstæðis á
hentugum stað. Vinnan yfir 20 dagsverk)
mest megnis lögð fram af Ungmennafél-
ögum sjálfum. Gróðrarstöð Sauðárkróks,
áður styrkt bæði af Rækt. fél. Norðurl.
og af sýslusjóði, liafði nú síðustu árin
tapað hvorutveggja styrknum og orðin
gróða-stöð einstakra manna, en efnileg
byrjun í henni til trjáræktarog runna að
miklu leyti eyðilögð fyrirhirðuleysiogmis-
þyrming. Ungm. fél réðist í að kaupa
stöðina (350 kr.). Hefir verið ánægjulegt
margan daginn í vor að sjá félagana pilta
og stúlkur fylkja sem sjálfboðará sínum
litla sameiginlega en sorglega útleikna
rrit og hefjast handa ekki til augnabliks-
gróða, en íil framtíðarstarfs fyrir þeirra
stóra en bera framtíðarland — sjá þá
skifta með sér verkum, gera nýjar brautir,
undirbúa jarðveg, plægja og mylda, rið-
ast að illgresi, planta, (trjám í tugum og
hundruðum, og jurtum í þúsundum),
hlynna að og hreinsa, verma og vökva.
Slíkt starf er ungmennafélaga að gjöra
»á landi og í lundu« — Samkomur inni
hefir félagið haldið við og við á vetrum
og fyrir sjónleikjum hefir það gengist í
2 vetur, viku í senn til að afla sér fjár
til framkvæmda málum sínum.
Síðastl. vetur hélt það í stað sjónleika
uppi samkomum heila viku, með völd-
um mönnum innan héraðs (sumpart inn-
an félags} til fyrirlestra. Þá fyrirlestur,