Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.12.1911, Side 5

Skinfaxi - 01.12.1911, Side 5
SKINFAXI 93 á félagsgjöldum, þá ynnu ]>au nie8 því stórmikið gagn. Og að auka skilvísi ungra manna ætti aS vera sameiginlegt áhugamál allra Ung- mennafélaga. En þetta tvent, að auka skilvísina og efla hag félaganna, sameinum við með því, að ganga ríkt eftir félagsgjöldunum i'hvert sinn er þau falla í gjalddaga, hjá öllum sem geta borgað, en ekki nema sjálfsagt að gefa hinum, sem fátækir eru. Er því nauðsynlegt, að hafa duglegan og sam- viskusaman fjárheimtumann. Kvittun ætti að gefa i hvert sinn sem goldið er. Þá er bókfærslan. Hún þarf að vera glögg og óbrotin. Fyrst ætti að hafa bók með nöfnum allra félagsmanna, þar sem hver hetði sinn reikning, og eru í hanafærðar undir,, gjöld“, félagsgjöldin jafnóðum og þau falla í gjald- daga, en undir „tekjur“ það sem borgað er. Nafnaregistur ætti að hafa í bókinni. Annað er sjódsbók, þar sem á aðra síð- una eru færðar allar tekjur, en á hina öll gjöld. Én mismunurinn sýnir hag félags- sjóðs, í hvert sinn sem saman er talið hvort um sig. Þriðja bókin er yfirlitsbók, svo séð verði af henni, hvaðan fé er fengið, og hvað af því verður. Gjöld og tekjur eru færðar í þennan reikning jafnóðnm ; öll stærri félög ættu mánaðarlega að láta lesa hann á fundum sínum, en minni félögum nægði að gera það ársfjórðungslega. Grein þessari fylgir sýnishorn af yfirlitsreikningi. — Eyðublöð undir hann fást hjá fjórð- ungsstjórnum (100 saman) upp úr nýjári, eða jafnvel fyr. Auk aðalreikningsins, sem um áramót er samin upp úr yfirlitsreikningi og félags- gjaldabókinni, að því er kemur til útistand- andi skulda, ættu svo öll félög að semja eignareikning, þar sem alt, er talið stórt og smátt, sem félagið á. Þegar alt er þannig í góðri reglu um fjárhag félaganna, þá kemur hitt miklu fremur af sjálfu sér, að verja fénu vilnr- tega. Q M

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.