Skinfaxi - 01.01.1912, Page 8
8
SKINFAXl
mætti. Það ætti hverjum ungum manni
að vera ljúft, að vinna fyrir ekki
neitt í fáeinar vikur, ef þeir hefðu krafta
til þess, því með því að vinna þannig,
gjöra menn hvortveggja: að hæta og prýða
tandið, og að læra að vinna.
Eg held naumast, að skiftar skoðanir
verði um það hjá landsmönnum, hvort þegn-
skylduvinnan ætti að lögleiðast eða ekki.
En það er frekari von til að skiftar verði
skoðanir um það, hvernig tilhöguninni á
vinnunni skuli háttað. Mér finst að flestu
leyti gott fyrirkomulag það á þegnskyldu-
vinnunni, sem Hermann Jónasson áætlar i
ritgerð sinni; hérætlaég ekki að lýsa því,
því ég veit að flestum mun það kunnugt.
En eiltatriði í þegnskylduvinnunni er, það
sem mér finst enn betur þurfa að athuga,
áður enn vinnan verður lögleidd. Það er
að vinnan komist sem jafnast niður á
sveitirnar, eftir því sem þær leggja til
menn í vinnuna, en ef vinnustöðvar yrðu
okki nema 1—2 í hverjum landsfjórðungi,
sýnist mér ekki mögulegt að góður jöfn-
uður yrði á þessu, því sumar sveitirnar
yrðu að bíða, eftir að þegnskylduvinnan
er komin á, svo árum skifti eftir því að
röðin kæmi að þeim. En til að koma í
veg fyrir að misrétti geti átt sér stað í
þessu, þá þyrfti vinnustöð að vera í minsta
lagi í hverri sýslu á landinu, og ætti að
vinna í tveimur sveitum í sýslunni árlega
Með þessu móti þurfa engar sveitir að
biða Iengi eftir því að unnið yrði hjá þeim.
Og er það i minum auðum afar mikils-
vert, því það er nijög sennilegt, að þær
sveitir, sem þyrftu i mörg ár að senda
hóp ungra manna í aðra sýslu, findu að
þær væru rangindum beittar, og að það
væri nær að þessir menn ynnu sinni sveit,
sem allra fyrst, að því að bæta hana og
klæða með fögrum skógi, og miklum
gróðri.
Eg get ímyndað mér að sagt muni verða,
að það sé ekki hægt að hafa vinnustöðv-
arnar nema eina í hverjum landsfjórðungi,
vegna þess, að ekki verði hægt að fá
FUi
SKINFAXI
— mánaðarrit U. M P. í. — kemur útiReykjavik
og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
RITSTJÓRI:
Jóna8 Jónsvon frá Hriflu.
Skólavörðustig 35.
Afgreiöslumaöur:
Björn Þórhallsson Laufási
Ritnelnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrondur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
_____ ______________________________ i
marga vel hæfa menn til að standa fyrir
þegnskylduvinnunni, einkum þó fj'rst á
eftir, að vinnan er komin á. En það mun
þó fáum dyljast, að það riður mikiö á því,
að byrjunin sé góð, því með því má von-
ast eftir, að þjóðin verði ánægð með þegn-
skylduvinnuna. Og það verður því að
vanda til als, er að þegnskylduvinnunni
lýtur. Menn þeir, sem fyrir vinnunni standa,
þurfa að vera vel vaxnir starfa sínum, og
ef ekki verða nógu margir hæfir menn
til, sem geta tekist á hendur verkstjórn
við þegnskylduvinnuna, þá þýðir ekki að
löggilda hana, fyr en hægl er að fá vel
hæfa menn til umsjónar.
Svínafelli «/„ 1911
Jón Pálsson.
Nytt sambandsfclag.
Ungmennufélagið Brúin í Hvílársíðu er geng-
ið í sambandið. Frá félagi þessu verður sagt í
nœsta blaði.
íþróttavöllurinn
liefir því miður ekki verið notaður enn i vetur
að nokkrum mun. Valda því fyrst og fremst úr-
komur og frostleysi; þá hefir útbúnaðinum verið
í nokkru áfátt í fyrstu, en innan skamms mun
bœtt úr því.
Kappglíma.
Maður nokkur af dönsku bergi brotinn, H.
Svendsen að nafni skoruði nýlega Sigurjón Pét-
ursson á bólm í grísk-rómverskri glímu og lugði
við 50 kr. Sigurjón vann fljótan sigur; hann
gaf síðan U. M. F. R. upphœð þessa.
Félagsprentsmiðjan.