Skinfaxi - 01.06.1912, Side 7
SKINFAXI
47
tekið á erfðafestu, 10 dagsláttur að stærð,
mest gamlar mógraíir. Ungmennafélagið
hefir farið þangað margar ferðir til að
pæla og jafna yfir grafirnar; oft syngur
allur hópurinn ættjarðarljóð á eftir, áður
en heim er gengið. Þar hafa unnið bæði
konur og karlar.
Hús Bárufélagsins á Akranesi hefir fé-
lagið keypt að hálfu fyrir 3,225 krónur.
Iþróttalíf Akraness er í bernsku. Þó
hefir Ungmennafélagið haft æfingar í leik-
fimi og glímum tvo vetur hina síðustu.
Talsverður íþróttaáhugi hefir vaknað með-
al ungmennanna og þó ekki sem skyldi.
Vonandi er að hann aukist, bæði af straum-
um frá Reykjavík, aðseturstað iþróttanna
hér á landi, og af íþróttamótum, sem ár-
lega skulu haldin hér á Akranesi.
Þetta félag og Ungmennafélag Leirsveit-
inga „Haukur“ hafa ákveðið, að kapp-
sund skuli fara fram á haustin og kapp-
glímur snemma í desember, þar sem þessi
tvö félög verða þátttakendur í.
Þótt Akranes sé umflotið sæ á þrjá vegu
og nóg sé um vikur og varir, eru hér eng-
ir sundmenn. Þessu veldur atvinnu-öfug-
streymið og svo auðvitað áhugaleysi sam-
fara blindni fyrir nauðsyn sundkunnátt-
unnar.
Það var síðastliðinn vetur, að Árni
Böðvarsson, form. Ungmennaf. „Hauks“
sýndi þá rausn af sér, að bjóðast til að
kenna nokkrum ungmennum úr „Ung-
mennafélagi Akraness sund i Leirárlaug.
Boðið var þegið með þökkum og fóru
margir piltar upp í Leirársveit og dvöldu
þar í viku við sundnámið.
Skógræktardag hefir félagið samþykkt að
hafa á ári hverju. Einn er þegar liðinn,
og voru þá meðal annars gróðursettir frjó-
angar í kringum kirkjuna.
Handritað blað innan félagsins er lesið
upp á hverjum fundi. Það heitir „Morgun-
roði“.
Stofnendur voru 49, en nú munu vera
97 karlar og konur í félaginu. Það eru
niiklir kraftar og með samheldni, ósér-
plægni og öruggri trú á stefnu sína. ætti
þessi hópur að geta unnið margt nytsamt
í þarfir lands og þjóðar. q a
Frá U. M. F. Skjalldborg; í Mcðallaudi.
U. M. F. Skjaldborg var stofnað 5. nóv.
1911. Stofnendur þess voru 12, og hefir
þvi ekki aukist meðlimafjöldi siðan.
Hér í sveit er talsverðum erfiðleikum
bundið að sækja fundi á einn stað, og var
þvi félagið Skjaldborg stofnað hér austan
Eldvatns. Þess skal getið, að það er ekki
deild, úr U. M. F. Meðallands, heldur er
það sérstakt félag. Fundi heldur félagið,
tvisvar í mánuði á veturnar, en einu sinni
í mánuði á sumrin.
Starf fél. er ekki mikið, enda er það enn
un'gt og fáment, en með góðum vilja og
samtökum télagsmanna mun það eflaust
geta blómgvast, og staiifað eins og önnur
Ungmennafélög að mörgum góðum og göf-
ugum hugsjónum.
Það hefir komið á fót hjá sér dálitlu
bókasafni, þannig að félagsmenn láta þær
bækur, er þeir eiga, og tileinka þær félag-
inu; er því öllum meðlimum félagsins gef-
inn kostur á að lesa þær bækur, sem eru
innan vébanda þess.
Tóbaksbindindisdeild er verið að koma
á í félaginu, og er það eitt af þvi, er Ung-
mennafélögin ættu að beita sér fyrir.
B. E.
Á fundi sem haldinn var í U. M. F.
Skjaldborg þ. 21. apr. 1912, var þegn-
skyldumálið tekið til umræðu og var samþ.
í því þannig hljóðandi fundarályktun.
„Félagið telur þegnskyldumálið fagra
hugmynd, og telur víst, að slíkt geti haft
heillavænleg áhrif fyrir einstakling og.
þjóð er tímar líða“.
Tillögur fél. í rnálinu eru;
1. að þegnskylduvinnan verði leysl af hendt
á aldrinum 16—22 ára.
2. að vinnustöðvar séu sem flestar og sveit-
irnar verði látnar njóta vinnunnar í hlut-