Skinfaxi - 01.06.1912, Side 8
48
SKINFAXl
falli við vinnukrafta er hver þeirra legg-
ur.
3. að með þegnskylduvinnunni verði sér-
stök áhersla lögð á, að einstaklingurinn
hafi hennar sem best og beinust not og
ennfremur einkum unnið að því að bæta
og prýða landið.
Efri Steinsmýri 5. maí 1912
Einar Sigurfinnsson Bjarni Eyjólfsson
fundarstj. ritari.
íþróttir.
Skíðakappleikur.
Norskur maður Bergendahl að nafni
vann i vetur skíðakappleik í Svíþjóð. Hann
gekk 50 km. á 4 klst. 28 mín. 35 sek.
(Idrætten).
Svíar
heimta af íþróttamönnum sínum, þeim
sem vilja fá að taka þátt í olympisku
leikjunum, að þeir a. m. k. fullnægi þess-
um skilyrðum:
Langstökk (með tilhlaupi) .... 6,60 m.
— (án tilhlaups)............. 3,10 —
Hástökk (með tilhlaupi............ 1,80 —
— (án tilhlaups)............... 1,47 —
Stangarstökk...................... 3,40 —
Hlaup 100 m....................... ll'/5 sek.
— 200 -.................. 23 —
— 400 -.................. 52 —
— 800 -.................. 2 mín.
— 1500 -.................. 4,12 —
— 5000 -.................... 15,45 -
— 10000 - . :............... 33,15 -
(Idrætten),
Alhcimskepni í skautaklaupum
fór fram í Þrándheimi seint í Febr. s. 1.
Þar unnu:
500 m Sæterhaug (norskur) 45,8 sek.
10000 m Ippolitow (rússn.) 18 m. 10 sek.
5000 m Ippolitow 8 mín 42 sek.
(Idrætten).
Ameríkumenn
hafa skotið saman 50,000 dollurum
fianda Olympíuförum sínum.
Kapphlaup.
17. marz var kapphlaup fyrir Dani í
Árósum. Vegalengdin 10 km. á hæðóttu
landi. Fljótastur var E. Jensen úr Viborg
37 mín. 55 sek. (Idrælten).
Iþróttasamband Danmerkur
fær 5000 kr. árlega úr ríkissjóði.
Knattspark.
Talið er að hvern vetur frá Okt. til Apríl
horfi 3 miljónir manna á knattspyrnuleiki
Englendinga. Þar eru seldir árlega 400,000
knatta.
Þjóðverjar
senda 160 iþróttamenn til Olympisku
leikjanna. Gert er ráð fyrir að hver mað-
ur þurfi 500 kr. til ferðarinnar eða um
80,000 alls. Ríkið leggur til 50,000 kr.,
greifi nokkur hefir safnað 10,000 kr. 20
þúsundunum sem vanta, á að safna með
almennum samskotum.
Flug:kona.
16. Apríl s. 1. flaug fyrsta konan yfir
Ermarsund. llún heitir Miss Quimby, úr
Ameriku. Nokkrir landar hennar biðu á
ströndinni Frakklands megin og vörðu hana
ásókn ljósmyndaranna, sem óvægir vildu
fá að mynda hana.
Leiðrétting'.
Lesendur Skinfaxa eru vinsamlega beðnir að
leiðréttn tvœr prentvillur í grein minni: „Góðar
bækur“ í 4. tbl. þessa árgangs.jbls. 31 : „Vallýrs“
(2. dálki 7. línu að neðan) fyrir Valtýs og „samd-
andi“ (2. d. neðstu línu) f. sambandi.
Eg vil ennfremur biðja þá, sem eiga fyrsta ár-
gang Skinfaxa, að leiðrétta tvær villur 1 grein
minni „Skuldbindingarskrá U. M. F. í.“ (1. árg.
12 tbl.) Villur þessar eru: „helgasta skilyrðið“
(bls. 91, 1. dálki 17 1. a. o.) f. helsta skilyrði og
„loforð um að halda þær“ (sömu bls , 2. d , 9. 1.
a. n.) f. loforð um að rœkja þœr.
i2/6 1912
Siyurður Vigfússon.