Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.08.1913, Page 4

Skinfaxi - 01.08.1913, Page 4
60 SKINFAXI fjórðungsins, og eg finn ekki, að við vinn- um saman að öðrum málum en þeir ung- mennafél. sem eru á Norður- og Austur- landi. Finn ekki, þó ég leiti að þessum málum, sem fjórðungurinn ætti að vinna að, að við gerum það í sameingu. Og til hvers er þá að hafa fjórðungssambandið svona stórt? Ef ég svara því, þá er það ekki til nokkurs. Það á ekki að vera stærra en það, að menn geti haft þau mál sameiginleg sem saman eiga að vera, eins og t. d. íþróttirnar og skógræktina, og ekki stærra en það, að menn geti kynst, svo að gagn megi að verða. Yfirborðsmála- mynda-kynning er einkisvirði. Þetta er kjarni þessa máls fyrir mér, en aukaatriði þess eru mörg. Þar má nefna fjáreyðslu, en hún er meiri, ef fjórð- ungurinn er stór. Bæði er þá það, að ferðir allar verða dýrari og svo hitt að með því að hafa mörg smá-sambönd í stað færri stærri, þá sparast þau gjöld sem nú eru í þeim smærri samböndum sem til eru. Af hverju er Skarphéðinn og U. M. S. B. til orðin? Ekki nokkrum sköpuðum hlut öðrum en þeim að fjórðungnum var ó- mögulegt að að vinna óskiftur nema í orði. Menn gátu talað livor í sínu horni, en fundist og unnið saman reyndist ókleyft því fjórðungurinn var of stór. Af sömu ástæðu er það að fáir sitja ijórðungsþing*). Og ekki einungis fáir, heldur líka mest menn, sem eru í Reykja- vík. Félögin utan af landi hafa ætíð slæðst til þess, að láta þá, sem staddir eru í Rvík sitja þingin. Er þar sparsemdarandinn sein hefir ráðið. Hann er í sjálfu sér lofs- verður, en hve heilladrjúgt þetta er fyrir framkvæmd málanna er annað mál. Og út yfir tekur svo, þegar því er bætt við aðra erfiðleika, að setja þingin á þeim tíma sem *) Mér er sagl að 23 menn hnfi verið á síð- asta þingi, og sé það rétt hermt er víst mikið vafn-atriði hvort Jiað er Iöglegt, og hvort ekki verði að boða til aukaþings til þess að gera lög- legur samþyktir (sbr. 11. gr. sambandslaganna. verst gegnir, eins og t. d. var gert í vetur er leið, að minsta kosti fyrir okkur Borg- firðinga. Væri ólíkt hægra að sækja þing innan- héraðs, sem tæki 3—4 daga, eða vera 14 daga í þingferð eins og við Borgfirðingar hefðum orðið að vera styst, ef farið var i vetur með skipsferðum, en 6—7 daga ella. En þetta er í mínum augum auka atriði; hitt er aðalatriðið, að sem stendur er nauða- lílið gagn að fjórðungssambandinu, af því það er ofstórt til þess að menn geti unnið saman, og raunar líka ofstórt til þess hægt sé, að stjórna því, eða svo virðist reynsl- an sýna, þó ótrúlegt sé. Mér er kunnugt um það að þetta er orsök þess að allmörg ungmennafélög eru ekki enn gengin í U. M. S. í. og er slíkt illa farið. Af þessu öllu saman vona eg nú að mönnum sé Ijóst að það sem l'yrir mér vakir er i stuttu máli þetta: Félagshagn- um er best að samböndin innan U. M. F. I. séu ekki stcerri en svo, að þau geti óskift unnið að þeim málum sem þau œtla og vilja vinna að. Hin sem öllum eru sameiginleg ber að vinna að af U. M. F. I. svo sem fyrirlestrastarfsemi, blaðaútgáfu o. fl. En þegar sambönd- in eru stœrri en svo að allir geti sam- einað sig innan þeirra um málin er fyrir liggja, þá orsakar það dreifing krafta eða myndun minni sambanda innan hinna og þau krefja aukin fjár- útgjöld og gera minna gagn. Ástæður sem eg hefi heyrt á móti þessu svo sem um skiftingu Sunnlendingafjórð- ungs, að bréfaviðskifti öll séu greiðust við Reykjavík, þar sé völ bestra manna í stjórn, þangað eigi svo margir ferðir og því verði viðkynningin svo náin, ef Reykja- vík sé miðstöðin, Sunnlendinga-fjórðungur sé stærstur og geti því haft tögl oghagld- ir á Sambandsþingum o. m. fl. eru öllat- riði, sem sumpart eru alveg röng, og sum- part sprottin af þeim hvötum, að það er

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.