Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1913, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.08.1913, Blaðsíða 8
64 SKINFAXI mundur Davíðsson kennari og Sigurjón Jónsson málari. Endurskoðendur kosnir: Þorvarður Þorvarðsson prentsmiðjustjóri -og Brynleifur Tobíasson kennari. Utanáskrift Bandalagsins verður fyrst um sinn á Skólavörðustíg 35, Reykjavík. Til kaupenda. Vanskil eru ótrúlega mikil á blaðinu til kaupenda í ýmsum sveitum; hafa sumir ekki fengið nema 2—3 blöðaf þessum árg. Þó er ekki afgreiðslunni um að kenna; hlýtur því óregla þessi að stafa af lítilli nákvæmni sumra póstmanna. Verður reynt uð komast fyrir, hverjum um er að kenna. En til að koma reglu á í bráðina, -vill afgreiðslan leita til formanna í ung- mennafélögunum, og biðja þá um stund- arsakir, að vera milligöngumenn milli kaupenda og afgreiðslunnar. Kaupendur sem fyrir vanskilum verða snúa sér þá til formannsins í sínu félagi. Hann gerir af- greiðslunni aðvart, fær send þau eintök sem vanta og skiftir þeim. Afgreiðslan ændurgreiðir formönnum þann kostnað sem bréfaskiftin kunna að liata í för með sér. Frá hendi afgreiðslunnar verður alt gert sem unt er, til að kippa þessu máli í lag, •og vitaskuld sendir hún kaupendum eigi síður í skörðin, ef þeir vilja hafa fyrir að segja til vantana. Með þessu móti gerir afgreiðslan sér von um að geta grafið fyrir rætur vanskilanna, og ráðið bætur á. 2?ylg-irit Skinfaxa fer nú að koma fyrir almennings sjónir. En þvi er það ekki fyr á ferðinni, að ætl- ■ast er til, að sem flestir hafi goldið and- virði Skinfaxa, þegar það kemur, svo af- greiðslan geti sent það frá sér að mestu leyti í sömu skorpunni, en þeir einir fá það ókeypis, sem goldið hafa andvirði blaðsins. Horfurnar um eimskipafélagsstofnunina eru núorðn- ar góðar, svo miklu fé hefir verið lofað. SKINFAXI — mánafiarrit U. M. F. 1. — kemur út i Reykjavík og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr. RITSTJÓRI: Jónas Jónsson f'rú Hriflu, Skólavöröustig 35. Afgreiðslumaður: Bjarni Þ. Magnússon Skðlavörðustíg 6 B. Ritnelnd: Agúst Jósefsson, Guðbrandur Magnússon, Tr. Þórhallsson, Óefað hafa ungmennafélagar leitast við að gera hér skyldu sina og hjálpa til með því að leggja sjálfir stein í hleðsluna og fá aðra til þess. Skinfaxi veit um einn, Björn Guðmundsson kennara á Núpi, hann safn- aði 16 hlutum í sínu nágrenni. íþróttamót var háð hér 2. og 3. ágúst; þátttakend- ur ílestir úr ungmennafélagi og íþróttafé- lagi Rvikur. Björn Jakobsson hafði manna mest undirbúið mótið. Veður var gott, og fóru íþróttirnar hið besta fram; eru hér taldir hinir helstu vinningar: Kapphlaup 800 stikur: Sigurjón Pétursson 2 mín. 15'/2 sek., Magnús Tómasson 2 mín. 19 sek. Kapplilaup 100 stikur: Kristinn Pétursson 13 sek., Guðm. Kr. Guðmundsson 132/s sek. Spjótkast: Magnús Tómasson 33,62 stik., Carl Ryden 28 stikur. Kapplilaup 1500 stikur: Magnús Tómasson 4 min. 524/6 sek., Sigurjón Pétursson 4 m. 55 s. Kapplilaup 10000 stikur: Guðm. Jónsson 33 mín. 19 sek., Tómas Guðmundsson 45 min. Boðhlaup 4X100 stikur: 2. flokkur 1 min. 1 sek. 1. flokkur 1 mín. 2% sek. Ennfremur þreyttu drengir G0 stikna hlaup. Kringlukast: Sigurjón Pétursson 30,88 stik., Ólafur Sveinsson 23,93 stik. Kúluvarp: Signrjón Pétursson 9,53 stik., Guðm. Kr. Guðmundsson 9,37 stik. Stangarstökk: Benedikt G. Waage, Ólafur Sveinsson og Tryggvi Magnússon 2,60 stik. all- ir jatnir. Fegurðarglíma: Bjarni Bjarnason, Magnús Tómasson. Knattspark: Fótboltafélagið Fram og Fótbolta- félag Reykjavíkur, 2 hjá hvoru. F élagsprentsiniðjan.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.