Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1913, Síða 5

Skinfaxi - 01.08.1913, Síða 5
SKINFAXI 61 leitt að þær skuli heyrast frá ungmenna- félögum. Eg ræði þær því ekki hér, en þær mót- bárur vil eg ræða, er fram koma í Skin- faxa móti þeirri hugsun að minka fjórð- ungana svo ekki verði stærri svæði í sam- bandi innan U. M. F. I. en svo að öllum innan sambands sé létt að sjást, finnast og vinna saman að sömu málum, og þær röksemdir er fram koma móti því sem sagt er hér að framan um afleiðing þess, að fjórðungarnir séu of stórir og kostina við minni sambönd, áttunga, eða hvað það verður kallað. Að endingu svo aðeins það, að ef fjórð- ungasambandið að eilífu verður málamynda- samband, þá verður það víst, að framfara- gata þess verður skrykkjóttari en ella, eða ef það væri ekki haft stærra en svo að allir innan þess næðu saman og gætu unn- ið saman. Ég vænti nú þess að þeir menn, sem gert hafa þetta að kappsmáli, ræði málið i Skinfaxa. Baugabrot. Veðreiðar. Hversvegna eru veðreiðar svo vinsæl- ar hvervetna i heiminum? Af því að þær eru ímynd mannlífsins, í þeim sjá menn sjálfa sig. „Öll ógæfa og eymd kemur af því,“ sagði Pascal, „að maðurinn kann ekki að halda kyrru fyrir í íleti sínu . . .“ Það var satt á 17. öld en þó enn sannara nú. Mannkynið kann enn síður en fyr að hvílast; æfin öll er óstöðvandi veðreið, þar sem kept er um völd, heiður, auð, atvinnu, kept um til að keppa, til að sigra. Sannasta lýsing mannsins er sú, að hann séu‘ veðhlaupari, eins og fornskáldin sögðu. — Framfarirnar, breytingarnar, sem við óskum eptir og trúum á, eru heljarhlaup, voðastökk, hröpuð út í óvissa framtíð eftir einhverju, sem enginn þekkir og enginn veit neitt um, en sem fæst þó einn góðan veðurdag, ef nógu hart er runnið. Menn horfa á veðreiðar, eins og menn horfa á sjónleiki, til að líta inn á við í eigin barm, til að skynja sál sína. En munurinn er mikill. Sjónleikurinn er brotabrot, örlítill þátlur slitinn út úr marglitri, fjölbreyttri lífsvoð tilverunnar. En veðreiðin er Iífið sjálft, ótal strengir undnir saman í réttum hlutfölíum. Þar má sjá metnaðinn, öfundina, hégómleik- ann, fjárgræðgina, alt stefnandi að einu marki, þvi að hlaupa, sigra, vinna. Veð- reiðar og mannlegt líf, smámyndin og heildarmyndin eru hvort öðru svo líkt á furðumarga vegu. En þá ættu veðreiðarmennirnir að hlaupa sjálfir, reyna sig sjálfir. Nei, einmitt ekki. Það gera menn heldur ekki á mannfélagS' ins grænu grundum. Þar eru þeir líka fyrstir, sem eru bornir fram af öðrum; þeir vinna veðhlaupið, sigurinn, frægðina. En sá sem bar, fær að kenna á svipu og; sporum eins og hesturinn. Veðreiðarmenn fara eftir hringbrautum^ en ekki beinum brautum. Þar er önnur líkingin. Þannig brunar fram kynslóð eftir kynslóð, menningin öll, en bitur æ í sporð sér, víkur þangað sem hún fyr var, leitar aftur að huggun og hressingu í einfeldni lífsins frá æskudögum mann- kynsins, eftir tildrið og prjálið, sem glep- ur hugann um hádegisskeið framsóknar- innar. Og hversvegna flykkist manngrúi að veðreiðunum til þess að horfa á þessar hringferðir? Eins og í mannheimum eru. þar tveir mannflokkar, annar starfandi,. hinn sem horfir á, fylgist með atburðum, lætur þá leiða sig og klappar lof í lófa. En um síðir safnast allir, bæði hinir flug- hröðu garpar, og þeir, sem kyrrir stóðu.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.