Skinfaxi - 01.10.1913, Qupperneq 7
SKINFAXI
79
U. M. F. svo strjál þar ennt að ekki þarf
að gera þeim sambönduin skóna að sinni.
A Austurlandi liggur fyrirtaksvel við að
félögin á Héraðinu taki höndum saman
við Lagarfljót á einhverjurn fögrum stað.
Þannig munu myndast stærri og minni
sambönd víðsvegar á landinu, þar sem nátt-
úran leyfir mönnum að taka höndum sam-
an til að velta í sameiningu steini úr göt-
unni.
En hvað líður þá allsherjarsambandinu?
munu menn spyrja. Málum þess, sam-
eiginlegu málunum, verður að fjölga nokk-
uð, þegar fjórðungasamböndin verða að
minni heildum. Hinsvegar gæti sambands-
þing þá orðið fámennara en öflugra en
það er nú. Nægilegt væri þá, að á það
kæmi, sem svaraði, einn fulltrúi fyrir hverja
sýslu. Samböndin ættu ekki erfitt með að
kosta þingsetu svo fárra manna, og þá
mætti líka velja þá færustu og áhugamestu
í stað þess, að nú verður oft að velja til
þingsetu, þá sem staddir eru í Reykjavik.
Eins og nú, mundi blaðið verða band-
liður milli félaganna. Ennfremur iþrótta-
kenslan og fyrirlestrastarfsemin. Ekki
þykir mér ólíklegt, að mjór verði mikils
vísir með iþróttanámsskeið sunnlendinga-
fjórðungs í vetur, að það verði upphaf að
öflugu námsskeiði fyrir landið alt.
Veturinn fer í hönd; annir minka og
tómstundum fjölgar. Vel væri farið, að
sem flestir ungmennafélagar vildu segja
álit sitt um, hver sé heppilegust breyting
á fjórðungsskipuninni.
Ung’mennafélög'iii.
í Sunnlendingafjórðungi þau sem ætla
að fá aðsenda íþróttakennara i vetur, þurfa
að róða róðum sinum í þeim efnum hið
allra fyrsta, svo að léttara verði að koma
á hæfilegu skipulagi. Félögin í Árnes- og
Rungárvallasýslu ættu að snúa sér beint
tíl stjórnar Skarphéðins, og félögin á Faxa-
flóaundirlendinu til stjórnar sambandsins í
Borgarfirði, En önnur félög ættu að snúa
sér beint til fjórðungsstjórnarinnar.
Þar sem sérstök námsskeið verða hald-
in, mættu þau varla standa minna en viku
i stað, og helst lengur. Engin von er til
að eins eða tveggja daga æfing marki nokk-
urt spor. Og okkur liggur lífið á að íþrótta-
framfarirnar verði engin akta-skrift.
Stækkuu — skil.
Eins og um er getið annarstaðari blað-
inu er í ráði að stækka Skinfaxa. Erþað
hvorttveggja að útgefendur og kaupendur
finna til þess að hann er of litill, hefir ekki
rúmað nærri alt er hann þyrfti og ætti að
flytja, og mýmargir kaupendur óskað þess,
að hann stækkaði, telja bann gott blað og
altaf sé of lítið til af góðum blöðum. Þá
er það og í ráði að hann flytji myndir,
ekki upp úr öðrum blöðum eins og sum blöð
gera, þó það gcti komið fyrir, heldur alt
aðrar, aðallega af verkum ungmenna-
félaga, þeirra sem framúr skara og náð
verður myndum, af efnismönnum og þeirra
verkum og öðru því liku.
En eins er vænst í sambandi við þessa
ráðagerð: að menn standi í skilum um
andvirði blaðsins, og jafnvel þó að ekki
hafi komið með skilum, — ef menn segja
til um vantanir, verður úr þeim bætt.
Ef Skinfaxi fær það sem hann á hjá
ykkur, þá færist hann í aukana um ára-
mótin. Og fylgiritið fá þeir einir, sem
gjalda andvirðið i tæka tíð. G. M.
Íslandsg'líman
var háð hér í Rvík að kvöldi hins 24.
sept. eins ug auglýst hafði verið. Annars
átti að glíma á ísafirði í vor sem leið, sam-
kvæmt ósk Vestfirðinga. En þegar til kom,
vildu engir þar taka þátt í glímunni, ein-
hverra orsaka vegna. og var henni þá frest-
að til hausts og vígvöllurinn færður til
Reykjavíkur. En þar tók lítið hetra við.
Einir fjórir kappar vildu glíma. Þaðvoru: