Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.1915, Page 3

Skinfaxi - 01.01.1915, Page 3
SKINFAXI 3 7. Hœsta takmark íslendinga er ekki skilnaður, þótt siálfsagður sé á sínum tima, heldur fullkomnun Islendinga sjálfra, svo að þjóðarstofninn lifi hverja raun, jafnvel ánauð hinna grimmustu nútíðar- þjóða, og að geta rétt sig við að nýju, þeg- ar heimurinn vex í réttlæti. Hærra en alt form, sem sifelt breytist, er ódauðleiki hins íslenska kynþáttar. 8. Yegur formsins mun eins og hing- að til verða fjölfarinn af Islendingum, þó að reynslan vitni á móti honum, þó ber- sýnilega sé of lágt stefnt, og sótt með vopnum, sem enginn úrslitasigur verður unninn með. Þessi stefna vill lækna IJtlenda auðmag-niö. • • * . . þjoðarmeimn með stor- stígum verklegum framförum, er hrundið sé af stað með lánuðu, útlendu auðmagni. Heldur er flokkur þessi fámennur enn, og þó liklegur til mikilla áhrifa á kom- andi árum. Ber bæði til að forvígismenn eru harðsnúnir og hilt að gera má mál- stað þennan allfýsilegan. 1. Fésýslumenn þessir sjá réttilega að gæði lands og sjávar verði eigi til muna notuð fyr en veitt er inn talsverðu útlendu fjármagni. 2. En þeir hika ekki við að fá þetta starfsfé frá Dönum, eða með þeirra milli- göngu, þótt það gerði skilnað ókleyfan. 3. Þeir hirða ekki um, þó þjóðin sé alls ófær til að hagnýta sér, til sannra heilla, skyndilega fengið útlent fjármagn. Og alls ekkert gera þeir til að undirbúa þjóðina í þessu efni. Hugmynd fésýslumannanna: Auðmagn án alþýðuþroska er þrautreynd í menn- ingarlöndunum og hefir gefist illa. Yafa- Jaust að sveitafólk okkar er mun lífvæn- legri stofn en iðnaðarmúgur Mið-Evrópu og Bandaríkjanna. 5. Fésýslumenn þessir sýna, að þeir eru grímuklæddir þjónar kúgandi auðvalds. Sbr. aðdáun þeirra á togaraveiðinni og fyrirlitning þeirra á landbúnaðinum, og er þar þó þjóðheillamunur á þeim tveim atvinnuvegur eins og þeir eru nú stund- aðir. 6. Ef fésýslumönnunum tekst að velta hér inn útlendu auðmagni meðan þjóðin kann ekki betur með að fara en nú er, yrði það þjóðaróhamingja. Það mundi binda hendur komandi kynslóða, bæði út á við og inn á við. En þegar við höf- um undirbúið okkur til að fara vel með fé, og lært af reynslu annara þjóða, þá er auðmagn, þótt lánað verði, sjálfsagt og hættulaust viðreisnarmeðal. En nú um stund er full þörf á að standa móti forsjárlausu fjármálabraski fyrir hönd þjóð- arinnar. Þeir sem þessa leið vilja Innlend viðreisu f , , , . r , . tara, gleyma ekki trelsis- eða auð-von Islendinga, en þeir geyma hana. Þeir líta svo á, að þekkingin og manngöfgin séu hin dýrasta eign manna og þjóða, og að frelsi og fé sé hégómi efa jafnvel voði í höndum manna, sem skortir þessa kosti. Þeir telja vel unt að vinna til muna að menningarframförum íslendinga með því stjórnarformi, og litla auðsafni, sem við nú höfum, ef rétt sé að farið. Þeir álíta reynslu fengna fyrir, að lækning stjórnmálamanna og fésýslumanna sú, er þeir bjóða þjóðinni, sé heldur grunn- tœk; mein Islendinga séu of mörg og gömul til að hverfa fyrir geislastaf papp- írsfrelsis eða auðkúgunar. Nú verður reynt i nokkrum greinum, er hér fara á eftir, að gera nánari grein fyr- ir þessari stefnu, þeirri, að endurreisa is- lensku ]\jóðina með innri framförum, sem síðan leiði lika til fullkomins efnalegs- og stjórnar-sjálfstæðis. Mjög lítið af þeim at- hugasemdum munu verða nýmæli. Hið eina, sem verulega kann að verða nýjung í, er að taka alla umbótastarfsemina í heild, að líta í einu á alla aðalþætti þjóðlífsins, og benda á skyldleika þeirra og eðlilega framþróun.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.