Skinfaxi - 01.03.1916, Síða 3
SKINFAXI.
27
undarlegt, en það merkilegasla við knattsp.
■er, að allar þjóðir, sem hann hafa iðkað,
hafa tekið við leikinn slíku ástfóstri að
undrun sætir, og má með sanni segja, að
•engin ein íþrótt sem nú er iðkuð, hefir
náð meiri útbreiðslu um heim allan, en
knattspyrnan. (The Association Football). —
Eins og í öllum iþróttum, sem mikilli
útbreiðslu ná, og sem fólkinu geðjast
að, þá fór að bera mikið á iþrótta-aí-
vinnumönnum (Professional sportm.).
Fékk England fljólt á þeim að kenna,
því hvergi eru þeir fleiri og öflugri,
■en einmitt þar. Árið 1887 stofnuðu
þeir með sér „The League“. Það er alls-
herjar-samband enskra atvinnumanna í
knattsp. Er þeim bestu þar borgað £ 8
•(um 144 krónur) um vikuna, og gefur því
að skilja að margur áhugamaðurinn
(Amateur sportm.) stóðst það ekki og gjörð-
ist atvinnumaður; spiltist því um stund
þessi heilsusamlega keppni, sem i knattsp.
var — áður en atvinnumennirnir komu
itil sögunnar. Heilsusamleg keppni þrifst
-ekki, þar sem að peningar eru í aðra
hönd, — eftir sigurinn. Ekki var það
'þó fyr en árið 1907, að stofnsett var
knattspyrnu samband áhugamanna (The
Amateur Association) til varnar því að allir
gjörðust atvinnumenn í knattspyrnu. Voru
Jika mörg fjelög farin að misbeita valdi
sínu, og kvöddu áhugam.félög, að gerast
atvinnum.félög, því á þvi væri meira
að græða. En nú var rösklega við
ibrugðið, og bannað, að áhugamenn hefðu
nokkur mök saman viðatvinnum. Voru sett
lög um það, að áhugamenn og atvinnumenn
mættu ekki einusinni keppa saman (hver
á móti öðrum), né þiggja mútur, eða
neitt þess háttar. Það átti að halda fast
við þá algengu reglu, sem er um áhuga-
menn að þeir iðka iþróttina listarinnar
vegna, en ekki vegna peninga, eins og
áhugamenn gjörðu og gera.
Sem — dæmi um, hve stranglega þetta á-
hugamanna félag hegnir, ef út af reglunum
er breytt, skal þess getið að í fyrravor (í
aprílmánuði) kepptu knattspyrnuflokkur
frá Manchester og frá Liverpool saman.
Knattspyrnan fór fram i Manchester og
fóru svo leikar að M.flokkurinn vann.
En við það fanst eitthvað athugavert —
svo þetta félag áhugamanna (Amateur Asso-
ciation) tók málið til rannsóknar. Kom
þá í Ijós að flestir keppandanna í Liver-
pools-flokknum voru leigðir af veðmála-
stjórunum (the bookmakers); fengu þeir
álitlega upphæð peninga, fyrir að tapa
leiknum. Sem von var fengu þeir
mjög strangan dóm, fjórir þeirra voru
reknir fyrir fult og all úr knattsp.fj. og
mega aldrei oftar taka þátt í knattspyrnu,
sem áhugamenn.
Eins og menn sjá, þá er ekki við lambið
að leika sér, þar sem þetta áhugam.félag er.
Lleimssamband knattspyrnufélaga (The
Worlds Union) var stofnað 1908—09.
Eru í því eru flestar þær þjóðir, sem knatt-
spyrnu iðka, undir einhverri stjórn.
Þetta er nú i stuttu máli saga knatt-
spyrnunnar á Englandi. Mættum við ls-
lendingar læra af þessum félagsskap þeirra
Engl. samheldni, þá væri niikið fengið.
Ef til vill eiga knattsp.félögin eftir að
vinna það verk.
Má þá segja að betur er af stað
farið en heima setið.
(Fih.)
Heima og erlendis.
Gcstuiiefudin.
Ungm.fél. í Reykjavík hafa í vetur gert
allmiklar tilraunir til að komast i samband
við þá mörgu ungmennafélaga, sem til
bæjarins koma og dvelja þar um lengri
eða skemri tíma. Verða að tilhlutun gesta-
nefndarinnar haldnar þrjár samkomur á
vetrinum með þessum aðkomumönnum.
Fundir þessir hafa tekist ágætlega og verið