Skinfaxi - 01.09.1916, Síða 8
112
SKINFAXI
Félagsmál.
TJ. M. F. K.
hélt 10 ára afmæli sitt 4. okt. sl. Dr.
GuSm. Finnbogason hélt þar fyrirlestur
um lífið í Ameríku og vesturför sína. Var
frásögn hans mun hlýlegri en sr. Magn-
úsar á Isafirði. Þar hélt Steinþór GuS-
mundsson ræSu þá sem birtist hér í blaS-
inu. Vegna bilunar í prentsmiðjunni kem-
ur þetta blað seinna út en til var ætlast,
og lendir því ræða þessi í septemberblað-
inu.
Fyrirlestramenn,
í Sunnlendingafjórðungi verða þessir í
vetur: Sigurður á Brúnum fer um Vest-
ur-Skaftafellssýslu, Steinþór Guðmundsson
um Arnessýslu í jólafríi sínu, en Þorsteinn
á DrumboddsstöSum um Borgarfjörð og
Mýrar. Um fyrirlestra handa Rangæ-
ingum mun og vcra samið. Verður þess
getið síðar. Sambandsstjórn mun og hafa
í hyggju að senda fyrirlesara um ein-
hverja aðra landshluta, og þá ekki síst
um Austurland, ef þar verður myndað
héraðssamband, sem inun vera á döfinni.
íþrdttanámsskeiðið
fórst fyrir í þetta sinn. Báru menn við
dýrlíðinni, enda mála sannast að miklu
er nú dýrari vistin í höfuðstaðnum en
nokkrum tíma fyr. Samt er engan bilbug
að finna á ungmennafélögunum með íþrótt-
irnar. Næsta sporið er að hafa fastan
íþróttamann til að ferðast um vetrarlangt
og halda námsskeið. Svo íþróttaskólinn,
U. M. F. Fljðtsdæla
er stærsta félagið á Austurlandi. Sveit-
in einhver fegursta bygð á landinu og
fólkið fjörugt. Samkomustaður á Val-
þjófsstað. Þar er félagið að byggja sér
tvílypt fundarhús úr steini, en ekki er
það fullbúið. Óvíða er fegurra hússtæði:
Víðáttumiklar rennisléttar grundir, sem
hallar út að Lagarfljóti. En í baksýn
himinhátt blágrýtisfjall með óteljandi hvöss-
um stöllum. Þegar hús þetta er fullgert
verða þar væntanlega haldin íþróttanáms-
skeið Austfirðinga.
Skaftfelling-ar
hafa nú myndað sitt héraðssambandið
fyrir hvora sýsluna og er það í alla staði
lofsverl. Þó er ef til vill tæplega komið
fullkomið skipulag á sambandið í vestur-
sýslunni. Félögin þar eru beðin að gæta
þess, að taka ekki inn í þennan félags-
skap nein félög, sem ekki geta og vilja
ganga inn í U. M. F. I. Sé það gert,
lendir héraðssambandið úl úr sambandinu.
En til þess mun varla koma.
Kristinn Jónsson
trésmiður.
Frakkastíg 12, Reykjavík
hefir stórt upplag af askskíðum, afarvönd
uðum. Skíði úr „pitspæn“ og furu. Einnig
birgðir af erfiðisvögnum, lystivögnum og
aktýgjum. Viðurkent best verð, eftir gæðum,
á Islandi. Sömuleiðis hrífuhausum, hrífu-
sköftuin og orfum úr ask og furu.
sem viljið fá bækur ykkar vel og ódýrt
bundnar, ættuð að senda þærjjtil
Fjelagsbókbandsins í Reykjavík
Ingólfsstræti.
Athugið það, að illa bundnar bækur eru
engin eign!
Ritslóri: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Félagsprentsmiðjan