Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1917, Blaðsíða 1

Skinfaxi - 01.05.1917, Blaðsíða 1
Ágreiningsatriðin á stefnuskrá U. M. F. í. Á ferðum minum meðal ungmennafélag- anna norðanlands hefi eg heimsótt allmörg félög utan sambands U. M. F. Í. Hefi eg gert mér far um að hvetja þau til samvinnu og til þess að ganga í samhand- ið. Því nær alstaðar hafa menn kornið auga á samvinnuþörfma. Frá því eru þó undantekningar. í Kræklingalilið hefi eg orðið var við minstan félagslegan þroska. Hvervetna annarsstaðar í Eyjafjarðarsýslu var erindi mínu tekið nijög vel, og naut eg þar hinnar mestu gestrisni og fyrir- greiðslu. í Suður-Þingeyjarsýslu er nokkuð öflugt héraðssamband, sem hefir enn ekki séð sér fært að ganga í samband U. M. F. I., og er það illa farið. Það mál hefir nú verið tekið til rækilegrar íhugunar í félög- um S. Þ. U. og mö.inum er að verða það ljóst, að hér þarf meira, ef vel á að fara, en að setja fyrir sig fætur. Það sem mest mælir með sambandi allra ungmennafélaga er að mínu áliti þetta: 1. Um ungmennafélögin gildir hið sama og önnur félög, að áhrif þeirra út á við á ýmsum sviðum þjóðmálanna verða því meiri, sem þau eru fjölmennari, öflugri og standa betur saman. 2. Þar sem U. M. F. í. hafa að und- anförnu notið styrks frá rikinu, eru likur til þess, að sá styrkur fari vaxandi með vexti sambandsins. Að félögunum aukist þannig bolmagn til framkvæmda, og fleiri njóti styrks þessa beinlínis og óbeinlínis. 3. Að góð samvinna inn á við í félög- unum er þeim sæmdarauki, vottur um heilbrigði og gefur von um langlifi. Það ávinnur þeim traust og virðingu þjóðar- innar. Hver sú heild, sem er sjálfri sér sundurþykk, er dauðadæmd. Lífsskilyrði hvers einstaks félags eru meira og minna háð afstöðu þeiíra og sambands við önnur slík félög. Með hugböndum og viðkynningu félag- anna berast hugsjónir og andlegir straum- ar milli þeirra, sem glæða áhugann, og hrinda kröftum til starfa. Hvert það fé- lag, sem vill einangrast og búa að sínu, og þykist sjálfu sér nóg, veltur um sjálft sig fyr en þau, sem taka höndum saman við önnur. Sjálfsþótti getur aldrei sam- rýmst sönnum og heilbrigðum félagsanda. 5. Einstökum félögum er þvi sem næst ókleyft að veiia sér fyrirlestra og íþrótta- kenslu, þar sem stærri samböndum veitist þetta léttar og þvi léttar, sem þau eru stærri. ,6. Ungmennafélögin mega ekki setja sér tægra stefnumið en það, að verða eitl af menningaröflum þjóðarinnar. Þess vegna ætti þeim, sem standa í félagsskapnumt að verða hann svo kær og hjartfólginn, að þeim væri létt og ljúft að fórna miklu hans vegna af því, sem snertir hvern ein- stakan persónulega. Fleira mætti telja, en þetta gefuj- hverj*

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.